Afturelding - 01.11.1938, Side 3

Afturelding - 01.11.1938, Side 3
iAFTURELDIN G Fordæmi Jóels I Suður-Amenku, þar sem Hjálpræðisherinn starfaði, kom unujingapiltur dag nokkurn inn á sjómannaheimilið. Piltinn getum við nefnt Jóel. Hann óskaði eftir því, að mega vera á sjómanna- heimilinu einhvern tíma, á þann hátt, að hann mætti vinna á heimilinu fyrir mat sínum, því hann var alveg atvinnulaus og févana. — Hann fékk' að vera á heimilinu. I frístundum sínum gekk hann út um bæinn, til þess að skyggnast eftir atvinnu. Eitt sinn, þeg- ar hann kom heim, gat hann þess, að hann hefði von um að geta fengið einhverja þóknun fyrir þaö, að safna auglýsingum í blað. Hann fór strax að stunda þetta af næsta kappi, en kaupið var ,sára lítið. »Ég varð ekki lítið undrandi«, segir yfirmaður sjómannaheimilisins, »þegar hann fyrsta kveldið, sem hann hafði fengið ofurlitla greiðslm, fyrir erf- iði sitt, drap á herbergisdyr mínar, og óskaði aé mega láta nokkra aura til trúboðsins, það var tí- undi hlutinn af xaupi hans«. »Nei, Jóel«, sagði ég. »Þér hvorki getið né megið gefa neitt af þessum fáu aurum, er þér hafið unnið yður inn«. Og þeg- ar ég hafði virt fyrir mér bættu og snjáðu fötin hans, og ga.tslitnu skóna, er hann hafði á fótun- um, bætti ég við: »Sparið heldúr þetta litla, þangað til þér hafið safnað einhverju saman handa yður í föt eða skó, því að þess þarfnist þér vissulegac. Hvorki svari hans né áhrifunum, sem fylgdu orð- unum, get ég nokkurntíma gleymt. Með ástúðlegu brosi og andlitið Ijómandi af friði, sagði hann: »Eg hefi gefið Guði það loforð, að gefa honum tí- unda hlutann af öllu því, sem ég vinn mér inn«. Svo rétti hann mér fáeina aura, og ég fann um leið í hjarta mínu, að í augum Guðs voru þeir miklu meira virði en margar krónur, undir venju- legum kringumstæðum, því að þeir voru gefnir með réttu hugarfari og af hreinu hjarta. Hætti þessum hélt Jóel áfram, allt til þess að hann fór af sjómannaheimilinu, til næstliggjandi borgar til þess að leita sér atvinnu þar. Mörg ár liðu, og við heyrðum aldrei neitt frá honum. Svo var það dag einn, að ég var kvaddur til dyra, að velklæddur maður stóð úti fyrir. Hann heilsaði kunnuglega, og brosti um leið. En þegar hann sá það, að ég kannaðist ekkert við hann, og heldur ekki konan mín, sem bar að í þessu, sagði hann: »Hafið þið virkilega gleymt mér?« Við urðum að viðurkenna það bæði, að við þekktumi manninn ekki. Þá kynnti hann sig og minnti okkur á tímann, er hann hafði verið á sjómanna heimilinu. Jóel var þá kominn þarna, en svona umbreyttur, að okkur var ómögulegt að þekkja hann. Sagði hann okkur nú í fáum orðum, hvað á daga hans hafði drifið, og hversu Guð hafði verið honum undursamlega góður. Þegar hann kom til borgarinnar, fékk hann um leið atvinnu. Störf sin rækti hann af mestu samvizku- semi, og dag einn kom forstjórinn til hansi og spurði hann eftir því, hvort hann vildi verða sölumað- ur félagsins, er hann hafði, unnið hjá, í landsþorp- unum:. Þetta tók hann að sér, og það heppnaðist svo vel, að það fór langt fram úr vonum félagsins. Nú hafði hann fasta stöðu með háum launum, svo ytri kringumstæður hans voru ekki orðnar þekkj- anlegar við þao, sem áður var. Allur persónuleiki hans vitnaði ótvíræðast um það. Með yfirvegandi augum horfði ég á liann um leið og ég spurði: »Seg mér, Jóel, gefið þér áframhald- andi tíund til Guðs ríkis?« »Já, auðvitað, eða hversvegna ekki það? Munur- inn er aðeins sá, að nú gef ég ekki örfáa aura á viku hverri, heldui margar krónur. Ég er búinn að greiða allar gamlar skuldir mínar«. Þegar ég hafði heyrt. þetta og virt hann fyrir mér, var eins og ég heyrði orð Drottins hljóma í hjarta mínu: »Færið alla tíundina í forðabúrið .. og reynið mig .. segir Drottinn hersveitanna, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun«. (Mal. 3, 10). Ég sannfærðist um það, að þetta fyrirheiti hafði bóksitaflega uppfylist á Jóel. Allir, sem hafa próf- að það, að fylgja boði Drottins með tíundina, hafa fengið að reyna alveg óvæntan ávinning af því, en auk þess, og það sem mest er um vert, ómet- anlega andlega blessun. — »Og reynið mig .. á þennan hátt, segir Drottinn hersveitanna«. Á. E. Ó, G-uð leysir ótal fanga, úttekur sér frjálsa þjóð, frelídsverlcið fram skal ganga fyrír heilagt Jesú blóð. 0. E. 63

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.