Barnablaðið - 01.12.1898, Side 1

Barnablaðið - 01.12.1898, Side 1
^ÖarnaBCaöiö. i. ar. Reykjavik, desember I89G. Til litlu lesendanna. --0-- Ég hafði fengið ágæta raynd, sem át.ti söguna um „Nóttina helgu" í jólablaði Barnablaðsins, en þegar átti að fara að prenta hana, var hún svo skemd, að hætta varð við það. Ég verð því að biðja litlu lesendurna að afsaka, að í þetta sinn gat ekki komið mynd í jólablaðinu, en í stað þess vil ég lofa þeim fallegri páskamynd í vetur, sem ég er svo heppin að eiga vísa. Með ósk um gleðilegt ár. Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Perlan hennar Aðalmínu. (Þýtt). —o— (Framh.). I3á varð Aðalmína í fyrsta sinni á æfinni þreytt og þyrst, og settist niður við uppsprettulind að hvíla sig. Hún lót svo lítið, að hún jós vatni úr lindinni með sinni litlu kóngsdóttur-hönd, og drakk alveg eins og aðrir gera, þegar enginn stend- ur hneigjandi að bjóða þeim vatnsglas á diski. í sama bili sá hún mynd sína í lindinni. — „Ó hvað ég er falleg", sagði hún við sjálfa sig, og um leið beygði hún höfuðið lengra niður að vatninu til að sjá sig þess betur. — Boms. — fá datt gull- kórónan af höfðinu á Aðalmínu ofan í Nr. 12. lindina og hvarf eins og örskot í straum- inum. Aðalmína tók varla eftir því, svo hrifln varð hún af fegurð sinni. En hvernig fór ? Óðara en vatnið í lindinní varð tært og kyrt, sá Aðalmína í lindinni alt, aðra mynd en af sér. Hún sá ekki lengur kóngsdótt- urina undurfögru í gullsaumuðu fötunum með gimsteina í hárinu og ljómandi dem- antshringi í eyrunum; hún sá ekki nerna aumingja smalastelim, ljóta og fátæklega, berfætta og berhöfðaða með ógreitt hár. Alt í einu hvarf líka öll hennar mikla vizka; hún varð svo fáfróð og einföld, eins og þeir sem ekkert vita. Og það sem mest var vert, hún vissi ekki lengur hver hún var, livaðan lrún kom og livert hún ætlaði að fara. Hún mundi aðeins óglögt, að einhver mikil breyting hefði orðið á fyrir henni, og hún varð svo hrædd við það, að hún hljóp burt frá lindinni og stökk altaf lengra og lengra inn í skóginn, án þess hún vissi hvort hún fór. Nú var komið kvöld, og orðið aldimt, og úlfarnir ýlfruðu í skóginum. Aðalmína varð alt af hræddari og hræddari, og hljóp lengra og lengra, þangað til hún sá ijós. Hún gekk á ljósið, og þegar þangað kom var þar ofurlítill kotbær. Þar bjó gömul og fátæk kerling. „Aumingja barnið“! sagði kerlingin, „hvaðan kemur þú svo seint að kveldinu?" En Aðalmína gat ekki svarað þvi. Ilún vissi ekki einu sinni

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/410

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.