Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 28.04.1951, Síða 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 28.04.1951, Síða 1
Alþýðublað Hafnarfjarðar Albvðublað Útgefandi: Álfnjöuflokkurinn í Hafnarfirði JTl JL ky V w UL Jky -L vJL w Skrifstofa flokksins er í Alþýðuhúsinu, sími 9499 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eyjólfur Guðmundsson Hafnarfjarðar Prentað í Prentsmiðju Hafnarfjarðar h.f. X. árg. Hafnarfirði, 28. apríl 1951 8. tölublað Verkakvennafélagið semur um mánaðarlega greiðslu fullrar vísitölu Verkakvennafélagið Framtíðin hefur undirskrifað samninga um greiðslu fullrar vísitölu mánaðar- lega, við bæinn og fyrirtæki hans, svo sem Bæjarútgerðina og Raf- veitu Hafnarfjarðar, svo og við Fisk h.f. Þegar miðstjórn Alþýðusam- bands íslands hvatti sambandsfé- lögin til að segja upp gildandi samn ingum með það fyrir augum, að sem flest þeirra gætu orðið samferða í baráttunni fyrir auknum kaupmætti launanna, með kröfunni um mánað- arlega greiðslu fullrar vísitölu, varð Verkamannafélagið Hlíf eitt hið fyrsta til að segja upp samningum sínum, með það fyrir augum að gildistími þeirra rynni út 1. þ. m. Verkakvennafélagið var bundið með sína samninga til 10. apríl, og með tilliti til þess, að félögin yrðu samferða, í sameiginlegri baráttu fyrir kjarabótum handa hafnfirzku verkafólki, varð það að samkomu- lagi milli þeirra, að Hlíf frestaði að gerðum til þess tíma, að verka- kvennafélagið hefði lausa samninga, en það boðaði jafnframt vinnustöðv- un strax og samningar þess rynnu út, ef nýir samningar hefðu þá ekki tekizt. Síðan varð svo ofan á, að félög- in legðu út í vinnustöðvun 19. apríl, ef þá hefðu ekki náðst samningar. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hélt fund 4. þ. m. Og samþykkti að bær- inn og fyrirtaeki hans semdu við félögin um greiðslu fullrar vísitölu mánaðarlega. Hinn 9. þ. m., eða sama dag og samningar verka- kvennafélagsins gengu úr gildi, und irritaði bæjarstjóri nýja samninga við félagið f. h. bæjarsjóðs, hafnar- sjóðs, rafveitunnar og Bæjarút- gerðar, samkvæmt samþykkt bæjar stjómarfundar 4. þ. m. og í sam- ráði við bæjarráð. Bæjarstjóri greindi formanni Hlíf- ar strax að afloknum bæjarstjórnar- fundinum frá samþykkt fundarins, og að hann væri reiðubúinn til að undirskrifa samninga við félagið, að fengnu samþykki bæjari'áðs um gildistíma hans. Málið horfði því þannig við í upp hafi, að verkalýðsfélögin áttu þess kost að fá strax samninga við bæinn og fyrirtæki hans, auk þess sem reikna mátti með, að fleiri atvinnu- rekendur mundu þá koma fljótt á eftir. Fullyrða má því að fá verkalýðs- félög muni hafa liaft jafn góða vígstöðu, því að þótt félögin hefðu orðið að heyja nokkra daga deilu við þá atvinnurekendur í Hafnar- firði, sem nú bafa gerst taglhnýting ar Reykjavíkurvaldsins með Ingólf Flygenring í broddi fylkingar, þá er ekki að efa, að þau hefðu að lokum borið fullan sigur af hólmi. En þá var það. að Hermann Guð- mundsson form. Hlífar virðist gerast próventukarl kommanna í Dags- brún og semur við þá um að fresta nú öllum aðgerðum, og vill jafn- framt ekki taka boði bæjarins um samninga. Verkakvennafélagið stóð þá eitt eftir, en þrátt fyrir- það, lagði það til baráttunnar. En þá gerist það, að félagsmenn Hlífar ganga í verk kvennanna, og lætur form. Hlífar þetta ekkji aðeins óáreitt, heldur neitar að láta mennina liætta þess- um verkum, þegar þess er krafist. Og þegar miðstjóm Alþýðusam- bandsins óskar eftir samúðaraðgerð um Hlífar, er því einnig neitað. Framkoma, sem þessi hlýtur að flestra dómi að vera hin furðuleg- asta og virðist sem formaður Hlíf- ar sé nú auðglapinn af atvinnurek- endavaldinu, hvað svo sem valda kann. Að því var unnið meðal félags- kvenna í verkakvennafélaginu, að safna undirskriftum þeirra undir á- skorun til forustukvenna félagsins um, að leggja niður baráttuna fyrir bættum kjörum verkakvenna í Hafn arfirði. Undan hvers rifjum slík nýð ingsstunga í bak samtakanna er runnin, skal ekki gizkað á, en hitt er víst að lúalega hefur hér verið vegið að verkakonum með þessari undirskriftasmölun. En þrátt fyrir þessa erfiðleika, stóð verkakvennafélagið Framtíðin meðan þess var nokkur kostur, í brjóstvörn íslenzkra alþýðusamtaka, gegn ört lækkandi kaupmætti laun- anna og hélt baráttunni fyrir kröf- unni um mánaðarlega greiðslu fullr- ar vísitölu. Verkakvennafélaginu varð líka vel ágengt í þessari baráttu þess og hefir nú tryggt öllum konum þeim, er vinna hjá bænum og fyrirtækj- um hans, þar á meðal hjá bæjarút- gerðinni, og þeim konum, sem vinna hjá Fiski h.f. fulla greiðslu mánaðarlegrar vísitölu. Síldarafnrðir liækka í v*rði Selt hefur nú verið fyrirfram tals- vert af saltsíld til okkar gömlu mark aðslanda. Síldarútvegsnefnd hefur annazt söluna, eins og undanfarið. Verð það, sem Svíar og Finnar hafa keypt fyrir, hefur verið tals- vert hærra en verða það, sem greitt var síðastliðið ár. Má því gera ráð fyrir nokkru hærra verði í ár, til fiskimanna, frá því sem var síðast- liðið ár, fyrir þá síld sem söltuð verður, bæði norðanlands og sunn- an. Síldarlýsi hefur líka hækkað mik ið, svo gera má ráð fyrir stórhækk- uðu verði á bræðslusíld. Hækkun þessi er svo mikil, að tvímælalaust verður hægt að veiða síld í bræðslu við Suðurland, í reknet, verði veiði svipuð og s. 1. ár. KAIPTAXTAR verkakvennafélagsins FRAMTÍÐIN til 1. maí. Vísitala 132 stig. A. Almenn vinna: Fyrir dagvinnu................................ kr. 8,71 Fyrir eftirvinnu............................. — 13,07 Fyrir nætur og helgidagavinnu................ — 17,42 B. Vinna við saltfisk, önnur en uppstöflun og uppskipun: Fyrir dagvinnu................................ kr. 8,95 Fyrir eftirvinnu............................. — 13,42 Fyrir nætur og helgidagavinnu................ — 17,90 C. Uppstöflun á saltfiski og uppskipun á fiski: Fyrir dagvinnu................................ kr. 9,42 Fyrir eftirvinnu............................. — 14,13 Fyrir nætur og helgidagavinnu................ — 18,84 D. Þvottur og ræsting: Fyfir dagvinnu................................ kr. 9,58 Hreingerningar, fyrir dagvinnu................ — 10,89 Á þennan lið bætist 50% fyrir eftirvinnu og 100% fyrir næt- ur og helgidagavinnu. L------------------------------------------------------------ j

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.