Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.09.1951, Blaðsíða 2

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.09.1951, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐÚBLAÐ HAFNARFJARÐAR Frá bæjarstjórnarfundi l r ýin§nm áttum Bæjarstjórn hélt fund s. 1. þriðju- dag ogvoru mörg máltil afgreiðslu. Samþykkt var að veita Bjarna Jónssyni, Hellisg. 1 viðbótarlóð við lóð hans, Merkurg. 11,, að veita Kristjáni Benediktssyni og Jóni Kristjánssyni, Oldug. 22A viðbóar- lóð, að veita Ogmundi Jónssyni, Hlíðarbraut 7 byggingarlóðina nr. 32 við Hringbraut, að veita Borg- þór Sigfússyni land til ræktunar í Kaplakrika, að veita Birni Bjarna- syni, Reykjavíkurvegi 12 lóð upp af Skerseyri, að veita Páli Einars- syni, olíustöðinni í Hvalfirði lóð undir 70—80 ferm. hús við Köldu- kinn, að veita Birni Jóhannessyni, Vesturbraut 9 land á svonefndum Háu-reitum norðan Víðistaða til þess að reisa á fiskhjalla og leigja Bátafélagi Hafnarfjarðar h.f. land austanverðu við Reykjavíkurveg til þess að reisa á því fiskhjalla. Samþykkt var að lengja vatns- lögnina vestur Langeyrarmalir. Bærinn leggi til rörin en Fiskur h.f. vinnuna, og að leggja vatnsæð til síldarverkunarstöðvar Gunnars Asgeirssonar. Samþykkt var að veita Guð- björgu Guðjónsdóttur, Ijósmóður noklcur laun úr bæjarsjóði. Sambvkkt var að hafna forkaups- rétti á húseigninni Garðaveg 9, og húsinu Selvogsgötu 8. Samþykkt var að leggja affallsrör í Selvogsgötu til að taka við yfir- borðsvatni af Selvogsgötu, Holts- götu og Hringbrautarsvæðum. Samþykkt var með tilliti til þess, að nú hefur verið að mestu levti unnið fvrir hið áætlaða fé til vega, vatnsveitu, holræsa o. fl., og telja l iH stjjornai*- Imeykisliá ciiii|kí Tvö ísl. flutningaskip hafa nú verið leigð til Vesturheims, annað minnst eitt ár, er það m.s. Katla, en hitt er m.s. Jökulfell, sem leigt var til nokkurra mánaða. Á sama tíma borga landsmenn offjár fyrir skio til áð flytja vörur að og frá landinu, og í mörgmn tilfellum bíða útflutningsvörur eft- ir afskipun. Eru dæmi til þess að slitnað hefur upp úr samningum um sölu á framleiðsluvörum, vegna ónógs skipakosts og framleiðendur orðið fyrir stórtjóni fjárhagslega. Ríkisstjórnin og þá fyrst og fremst siglinga- eða viðskiptamála- ráðherra hafa leyft þetta og er það einn þáttur hinnar frjálsu athafna- semi, sem ríkisstjórnin gumar nú mest af. verður atvinnuástandið í bænum eftir atvikum, með betra móti, að fækkað verði mönnum í bæjarvinnu nú þegar að allverulegu leyti, þann- ig að ekki verði unnin önnur verk en þau, sem brýnasta nauðsyn kall- ar á. Jafnfram samþvkkti bæjarstjórn að fela vinnumiðlunarskriftofunni að greiða fyrir þeim mönnum, er sagt verður upp í bæjarvinnunni. Samþykkt var ný reglugerð um brunavarnir og brunamál í Hafn- arfirði. Vitnið þögla fær mál Á bæjarstjórnarfundi lá m. a. fyrir tillaga bæjarráðs um að bæjar- sjóður ábyrgist lán fyrir fátækan mann hér í bæ til húsakaupa, en bærinn hefur gert mörgum mannin- um á þann hátt kleift að komast yfir husnæði. Þegar ábyrgðarheimild þessi, sem allir bæjarráðsmenn höfðu orðið sammála um, kom til afgreiðslu skeði það að hið nýja andlit íhalds- forustunnar í bæjarstjórn, sem með- al almennings í bænum hefur feng- ið nafnagiftina vitnið þögla, fékk allt í einu líf, reis úr sæti sínu og mælti mjög gegn ábyrgð þessari. Emil Jónsson varð fyrir svörum og gerði grein fyrir því, hvernig það hefur verið stefna bæjarstjórnar- meirihlutans og bæjarstjórnarinnar yfirleitt, að bregðast sem bezt við um alla þá aðstoð er hægt væri að veita fólki í bænum í húsnæðisvand- ræðum þess, þó innan allra eðli- legra takmarkana. Lét vitnið þögla sér að kenningu verða ofan í gjöf formanns þæjar- ráðs, og burðaðist ekki við að mæla fleira á fundinum. Vcrðhækkun kola Ein af síðustu náðargjöfum nú- verandi ríkisstjórnar er hækkun kolanna. Hefði verið leyfður inn- flutningur kola frá Bandaríkjunum mundi kolaverðið vera óbreytt, að öllum líkindum. En innflutningsyf- irvöldunum þóknaðist heldur að flvtja inn kol frá Póllandi, enda þótt það kosti neytendur um 6 millj. króna í auknum útgjöldum fyrir sama vörumagn. Þannig bera þessir aðilar umhyggju fyrir þörfum al- mennings. í gær hófust æfingar hjá Taflfé- lagi Hafnarfjarðar í nýju húsakynni, en það er Alþýðuhúsið. Taflfélagið var áður til húsa í Ráðhúsinu. — Æfingar félagsins verða á mið- vikudögum og föstudögum og hefj- ast kl. 8 e. h. Aðalfundur félagsins verður sunnudaginn 23. sept. kl. 2 e. h. í Alþýðuhúsinu. ----★------ Kyndill, tímarit ungra jafnaðar- manna; maí, jún og júlí hefti I. árg. er nýkomið út. Heftið er fjöl- breytt að efni og skemmtilegt og ættu allir ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði að kaupa og útbreiða ritið og senda því greinar til birt- ingar. Áskrifendur geta menn gerst hjá Albert Magnússyni, Vitastíg 7, sími 9937 og Eyjólfi Guðmundssyni, sími 9607. ----★------ FRÁ HÖFNINNI. Unnið hefur verið af krafti við Suðurgarðinrt, möl flutt á prömm- um, undir grjótfyllinguna og má segja að verkinu hafi vel miðað áfram. Viðgerð á gömlu bryggjunni stendur yfir, og verður lokið um næstu mánaðamótv, telja má víst að bryggjan verði þá fær hinum þyngri tækjum til losunar skipum. Margir síldarbátar hafa legið í höfn hér frá 7. þ. m. vegna veðurs. Allir bátar eru komnir frá síldveið- um nyrðra nema Ólafur Bjarnason. Reknetaveiði á báta héðan gekk sæmilega frá 1. til 7. þ. m. og nú þ- 13. eru bátar að leggja út á ný. Veðurútlit betra. 10. þ. m. kom af veiðum st. Júlí með 139.6 tonn fisks til fristihús- anna og fer nú í „klössun“. 12. þ. m. kom st. Pétur Halldórs- son með 4000 síldartunnur til Ósk- ars Jónssonar. ----★------ FRÁ TÓNLISTARSKÓLANUM Tónlistarskóli Hafnarfjarðar tek- ur til starfa 20. þ. m. Verður hann rekinn með svipuðu fyrirkomulagi og að undanförnu, bæði hvað námsgreinir og kenn- nra snertir. Sú nýbreytni verður tekin upp, að starfrækt verður kennsla í listdansi — ballet — og hefur Sigríður Ármann verið ráðin kennari í þeirri grein. Er hún tal- in með snjöllustu listdansendum okkar og ágætur kennari í list sinni. Listdansinn er af mörgum talin ein hin fullkomnasta listtjáning. — Við iðkun listdansa þjálfast og stæl- | ist líkaminn, enda er þar um mikla leikfimisþjálfun að ræða. Auk þess fegrar hann og heflar framkomu manna og umgengnisvenjur. Þar sem listdans er æfður eftir hljóðfæraslætti, eykur hann og þjálfar mjög næmi fyrir hljóðfalli — rytme — og hljómlist. Einna | gleggst kemur þetta allt fram í söngleikum t. d. óperettum, en þeir byggjast mjög á öllum þessum at- riðum. Er því hér um einstakt tækifæri að ræða fyrir þá, sem aðtsöðu liafa til þess að þjálfa látbragð sitt og hljómlistarþroska. -----★------ NÝTT BLAÐ, Myndablaðið, hef- ur hafið göngu sína. Blaðið er prentað í Prentsmiðju Hafnarfjarð- ar. Ritstjóri er Hilmar Biering. -----★------ Þegar kolahækkunin átti sér stað nú síðast átti Bæjarútgerð Hafnar- ) f jarðar ca. 100 tn. af kolum. Var bví tekið það ráð að hækka þessi kol til samræmis við kolaverð í Revkja- vík, því ella má búast við, að þeir sem peninga höfðu, hefðu rifið kol- in út og þeir, sem ver voru staddir, hefðu allir orðið að sætta sig við enn dýrari kol en þau eru nú. Þann- ig fær Bæjarútgerðin 16 þús. kr., sem aftur verður notað til bess að verðjafna næstu kolasendingu. — Með þessu móti standa vonir til þess, að kolaverðið hér þurfi ekki að verða hærra en í Reykjavík. NÝTT BYGGINGARFYRIRTÆKJ Framhald. aí 1. sí8u. að framan með allt að tíu þúsund krónum, er greiðist að einhverju eða öllu leyti með gjaldi því, sem tekið verður fyrir vikurtökuna. Á bæjarstjórnarfundi s. 1. þriðju- dag var þessi tillaga bæjarráðs samþvkkt samhljóða. Telja má því víst að þetta nýja fyrirtæki rísi upp hér í Hafnarfirði, og það eigi eftir að veita mörgum manninum góða 1 atvinnu, auk þess sem vænta má, | að með iðnrekstri þessum séu að skapast möguleikar til hagfeldari og ódýrari íbúðarhúsabygginga en við til þessa höfum átt kost á. Alþýðublað Hafnarfjarðar óskar fyrirtækinu allra heilla og býður það velkomið í bæirm. Giftingarhringur fannst, síðastlið- liðinn sunnudag, við kálgarðana J Hraunsholti. Eigandi vitji hans á Tunguveg 2.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.