Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.09.1951, Qupperneq 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
3
Auglýsing nr. 11 1951
frá Innflutnings-. og gjaldeyrisdeild fjárhagsráðs.
Ákveðið hefur verið að „SKAMMTUR“ 11, 1951 og
„SKAMMTUR“ 12, 1951 af núgildandi „Þriðja skömmtun-
arseðli 1951“ skulu hvor um sig vera lögleg innkaupaheim-
ild fyrir 500 grömmum af smjöri, frá og með deginum í
dag og til loka desembermánaðar 1951.
Mjólkurbúum skal vera heimilt, fram til 16. septem-
ber 1951, að afgreiða til smásöluverzlana smjör gegn
SKAMMTI 10, 1951. Smásöluverzlunum er hins vegar
ekki heimilt að afgreiða smjör til viðskiptavina sinna gegn
skammti 10, 1951, eftir 31. ágúst þ. á.
Reykjavik, 1. september 1951
INNFLUTNINGS- OG
GJALDEYRISDEILD FJÁRHAGSRÁÐS
Brunamálareglugerðin
Framliald af 4. síðu.
Þótt Gunnar léti af starfi sínu á
slökkvistöðinni var talið rétt að
halda sama fyrirkomulagi áfram og
með það fyrir augurn var fljótlega
ráðinn maður í hans stað.
En svo undarlega brá nú við að
slökkviliðsstjóri gerðist andvígur
mannaráðningu þessari og neitaði
að taka við manninum til starfans.
Ekki þó vegna þess að hann teldi
hann ekki fullfæran í starfið held-
ur af þeirri ástæðu, að hann leit
svo á að bæjarstjórn ætti ekki að
ráða manninn heldur brunamála-
nefnd og þá eftir hans tilvísan.
Hann hafði þó ekkert haft við
það að athuga, er bæjarstjórn réði
Gunnar Ásgeirsson til starfans.
Brátt kom í Ijós, að slökkviliðs-
stjóri var í máli þessu æstur upp af
sér verri mönnum. Hin nýja forusta
íhaldsins i bæjarstjórn hugðist
fleyta pólitískan rjóma ofan af
máli þessu. Var nú af henni og fleir
um að því unnið að æsa upp slökkvi
liðsstjóra á þeim grundvelli að ver-
ið væri að gera lítið úr vakli hans
o. s. frv. Ennfremur var slökviliðs-
mönnum ta'lin trú um að verið Vceri
að sniðganga þá með því að aug-
lýsa ekki starf þetta og gefa þeim
þannig kost á að sækja um það.
Sendu nokkrir þeirra á grunvelli
jjessa, mötmælaskjal. Fyrir slökkvi-
liðsstjóra var Útbúið bréf eitt mik-
ið til félagsmálaráðuneytisins, þar
sem meirihluti bæjarstjórnar var
kærður út af máli þessu og beðið
um úrskurð þess í því.
I svari til ráðuneytisins var á
það bent að meirihlutinn liti svo á
að hér væri einungis um að ræða
ráðningu á manni til véla- og áhalda
viðgerða, gæzlu og hirðingu þeirra,
og þar sem ekki væri gert ráð fyr-
ir starfi þessu í brunamálalögun-
um heldur upptekið af bæjarstjórn
og til þess veitt sérstakt fjárfram-
lag., þá hlyti ráðningarvaldið að
vera hjá bæjarstjórn einni.
Félagsmálaráðuneytið vildi hins
vegar telja starf þetta sem starf
slökkviliðsmanns Og á þeim grund-
velli taldi það, að ráðning manns-
ins félli undir ákvæði hinnar al-
mennu reglugerðar frá 1949 um
ráðningu slökkviliðsmanna.
Er þessi skilningur ráðuneytisins
áreiðanlega mjög umdeilanlegur.
I brunamálalögunum er ákveðið
að bæjarfélögin setji sér samþykkt-
ir um brunamál, þar er og heimild
til að ákveða, að störf brunamála-
nefnda skuli falla undir bæjarráð,
og að bæjarstiórn ráði fasta starfs-
menn slökkviliðsins.
Éins og áður segir eru bruna-
málalögin frá 1948. Bæirnir hafa
ekki sett sér reglugerðir samkvæmt
þeim fyrr en nú, að Hafnarfjörður
hefnr forustuna þar um. Er öll
andstaða þeirra íhaldsmanna um
setningu reglugerðarinnar hinn
mesti skrípaleikur, og allt brölt
þeirra út af ráðningu starfsmans-
ins á slökkvistöðina til jiess eins
gert að reyna að skapa úlfúð og óá-
nægju, spilla góðu samstarfi þeirra,
er að brunavörnum bæjarins vinna,
gerandi þannig tilraun til að skapa
um þær tortryggni bæjarbúa, ef
þetta allt mætti svo veita þeim ein-
hvern pólitízkan hagnað af jiví að
renna færi í vatn það, er þeir
hyggjast hafa gruggað upp.
Svo koma þessir sömu menn og
tala um nauðsyn samstarfs í bruna-
málum bæjarins. Almenningur mun
í þessu máli sem öðrum sjá í gegn-
um hræsnishjúp bæjarstjórnar-
minnihlutans.
Verkakvennafélagið Framtíðin, Hafnarfirði.
Tilkynning um kaup
Frá 1. september til 1. desember 1951 verður kaup verka-
kvenna í Hafnarfirði sem hér segir:
pr. klst.
1. Almenn vinna................................ kr. 9.17
2. Vinna við saltfisk......*...................... — 9,42
3. Uppstöflun á saltfiski og uppskipun á fiski .... — 9,92
4. Þvottur og ræting.............................. — 10,09
5. Ilreingerningar ............................... — 11,47
Eftirvinna reiknast með 50% álagi og nætur og helgidaga-
vinna með 100% álagi á dagvinnukaup.
6. Ákvæðisvinnulaun við fiskþvott:
Fyrir hver 100 stk. þorsk.................... kr. 20,00
— — 100 — löngu ........................ — 20,00
— — 100 — stórufsa ................... — 15,00
_ _ 100 - labra 18”—24”................. - 16,25
— — 100 — labra undir 18”............... — 12,50
— — 100 — ýsu ......................... — 12,50
— — 100 — smáufsa ...................... — 12,50
Fyrir þessa vinnu kemur verðlagsuppbót til viðbótar fram-
angreindum ákvæðisvinnutöxtum, er nemur kr. 1,14 fyrir
hverja klst. í dagvinnu.
7. Ákvæðisvinnulaun við sfldarsöltun:
Fyrir að kverka og salta....................... kr. 8,12
----kverka og sykursalta........................ 9,58
----kverka og krydda.......................... — 9,58
----slóg og tálkndraga ...................... — 18,26
----kverka og magadraga........................ — 14,61
----kverka og tálkndraga...................... — 18,26
----hausskera og sykursalta................... — 13,15
— — hausskera og krydda..................... — 13,15
----hausskera og slógdraga.................. — 18,26
----hausskera og slægja........................ — 21,94
----flaka og sálta............................ — 62,49
----rúnnsalta................................. — 5,50
----kverka og salta smá- og millisíld......... — 29,19
Ef síld er þvegin gréiðist aukreitis .......... — 0,81
Ef síld er flokkuð greiðist aukreitis.......... — 3,66
Öll vinna við síldarverkun greiðist með kr. 9,92 pr. klst.
í dagvinnu.
Hafnarfirði, 10. september 1951.
STJÓRNIN.
Tónlistarfélag Hafnarfjarðar.
Tónliitarskólinii
tekur til starfa þann 20. þ. m. Auk venjulegra kennslugreina
verður starfrækt listdansdeild — ballet — við skólann í vet-
ur. Kennari er ráðin Sigríður Ármann. Kennt verður í þrem
flokkum:
1. flokkur 5—11 ára nemendur
2. flokkur 12—14 ára nemendur
3. flokkur 15—20 ára nemendur
Umsóknum sé skilað fyrir 18. september til skólastjór-
ans, Hverfisgötu 42, sími 9914, sem veitir allar nánari upp-
lýsingar.
TÓNLIST ARSKÓLIHAFNARFJARÐAR