Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.03.1956, Qupperneq 1
F.U.J.-félagrar!
flunið
árshálftíiiia
Sjá auglýsingu inn
í blaðinu.
\H\Æ\f Æ\m IF JJ AIHHD AR
XV. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 23. MARZ 1956 5. TÖLUBLAÐ
Stefnumál Alþýðuflokksins i framkvæmd
Að hálfnuðu kjörtímabili er Alþýðuflokkurinn
á góðri leið með að efna fyrirheit sín
fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningarnar
Fyrir síðuslu bæjarsljórnarkosningar hét Alþýðuílokkurinn m. a. að
beila sér íyrir byggingu fiskiðjuvers á vegum Bæjarútgerðarinnar,
endurbótum á gatnakerfinu, aðgerðum í húsnæðismálum, byggingu
íþróttahúss og bókasafns og áframhaldandi hafnargerð.
fisfííðjuvers
Á síðastliðnu kjörtímabili jók
Bæjarútgerðin skipastól sinn um
tvo nýsköpunartogara og bætti
stórlega aðstöðu sína í lancli til
saltfiskverkunar og fiskherzlu
með byggingu fiskþurrkúnar-
liúss, harðfiskgeymslna og fjölda
nýrra fiskhjalla. En -Alþýðu-
flokksmenn vildu ekki láta þar
við sitja. Fyrir síðustu bæjar-
stjórnarkosningar hétu þeir því,
að Bæjarútgerðin eignaðist eig-
ið fiskiðjuver, svo að aðstaða
skapaðist til vinnslu aflans í
landi. I þessu skyni tryggðu þeir
Bæjarútgerðinni yfirráð yfir
Akurgerðiseigninni, en þar eru
hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir
starfsemi slíks fyrirtækis. Þrátt
fyrir mikla örðugleika hefur
þessu máli miðað svo vel áfram,
að fálið er að hægt verði að hef ja
starfrækslu í húsinu á síðari
hluta þessa árs, hamli veður ekki
að ráði byggingarframkvæmd-
um það sem eftir er vetrar.
Það er fullkomin ástæða fyrir
verkafólk bæjarins að fagna yf-
ir, hve vel þessu mikla hagý-
munamáli þess hefur reitt af.
Með byggingu þessari er stigið
stórt skref í átt til aukinnar at-
vinnu og bættra afkomumögu-
leika alls verkafólks í bænum.
Qmnngerð o. fl.
Á s. 1. tveim áium var
úthlutað 215 byggingar-
lóðum, lagðir voru 1900
m. aí vatns- og holræsa-
lögnum, gerðir 1200 m. af
nýjum götum og malbik-
aður 600 m. langur kafli
af aðalumferðargötum
bæjarins.
Á siðustu árum hefur bærinn
stækkað óðfluga. Byggzt hafa á
skömmum tíma heil bæjarhverfi.
Þessi þróun hefur lialdið áfram
af fullum krafti síðustu tvö árin.
Á árinu ’54 voru 110 hús í bygg-
ingu með 154 íbúðum, en árið
’55 voru þau hvorki meira né
minna en 126 með .samtals 196
íbúðmn. Á sama tíma voru veitt-
ar 215 byggingarlóðir. Bærinn
hefur lagt sig fram við að full-
nægja eftirspurn eftir lóðum, og
reynt að fremsta megni að mæta
þörfum þeirra, sem í byggingu
standa með gerð nýrra gatna,
vatnsveitu- og holræsalögnum.
Allar liafa þessar framkvæmdir
kostað gífurlegt fé og það því
fremur, að gatnagerð mun
hvergi á landinu jafn-örðug
vegna hraunsins, sem bærinn er
byggður á. Vafasamt er, að
nokkurt bæjarfélag liafi á und-
anförnum árum lagt fram meira
fé hlutfallslega til þessara mála
og sýnt betri árangur, þegar
miðað er við allar aðstæður.
Á s. 1. tveim árum voru lagðir |
um 1900 m. af vatns- og liolræsa-
lögnum og gerðir 1200 m. af
nýjum götum.
Gerð gatna úr varanlegu efni
hafði á undanförnum árum set-
ið á hakanum vegna ýmissa fjár-
frekra stórframkvæmda, er bær-
inn stóð í s. s. vatnsveitu úr Kald-
árbotnum, byggingar Sólvangs,
hafnarmannvirkja o. fl. o. fl.
Þess vegna taldi Alþýðuflokkur-
inn það eitt af höfuðverkefnum
líðandi kjörtímabils að gera var-
anlegt slitlag á aðalumferðagöt-
ur bæjarins og þá fyrst og fremst
Strandgötu og Reykjavíkurveg-
ar.
Á síðastliðnu ári voru malbik-
aðir um 600 m. langir kaflar af
þessum götum, 415 m. af Strand-
götunni og 180 m. af Reykjavík-
urveg. Eins og allir vita og liafa
daglega fyrir augunum, hefur
flokkurinn staðið við heit sín í|
þessu efni og mun kosta kapps
um, að þessum framkvæmdum
verði haldið áfram.
Húsnœdismól
Sambýlishúsið vænt-
anlega fullbyggt á þessu
ári.
Alþýðuflokkurinn hefur jafn-
an látið mikið til sín taka um úr-
bætur á húsakosti alþýðunnar
við sjávarsíðuna. Orækasta sönn-
un þess er lagasetningin um
verkamannabústaði og fram-
kvæmd þeirra mála. Fyrir ötula
forgöngu ýmsra Alþýðuflokks-
manna hafa risið af grunni fleiri
verkamannabústaðir hér í bæn-
um en í nokkrum öðrum kaup-
stað á landinu miðað við fólks-
fjölda.
Bæjarstjórnin, undir forystu
Alþýðuflokksins, hefur á marg-
víslegan hátt bætt úr þörfum
fólks, sem er á hrakhólum með
húsnæði. Bærinn hefur keypt
húseignir hingað og þangað
um bæinn, sem síðan hafa
verið leigðar út til fólks í hús-
næðisvandræðum. I því sam-
bandi má nefna, að húseignin
Austurgata 26 var keypt í þessu
skyni á yfirstandandi kjörtíma-
bili. Þá hefur bærinn — meira
en nokkurt annað bæjarfélag —
gengið í ábyrgð fyrir lánum lijá
fjölmörgum einstaklingum, sem
brotizt hafa í að koma sér upp
þaki yfir höfuðið. Sá stuðningur
hefur riðið baggamuninn hjá
mörgum og gert mönnum kleift
að konxa áformum sínum í fram-
kvæmd.
Á undanförnum árum hefur
hér verið starfandi lnisnæðis-
nefnd á vegum bæjarins. Nefnd
| þessi hefur veitt mörguin hús-
næðisleysingjanum ómetanlega
fvrirgreiðslu. Formaður þessar-
ar nefndar í f jölda ára hefur ver-
ið Guðmundur Gissurarson bæj-
arfulltrúi, en núverandi formað-
ur hennar er Þórður Þórðarson
verkstjóri.
En þrátt fyrir þá aðstoð, er að
framan greinir, hafa verið hér
stöðug húsnæðisvandræði vegna
hinnar öru fólksfjölgunar í bæn-
um. Alþýðuflokkurinn hafði á
stefnuskrá sinni fyrir síðustu bæj
arstjórnarkosningar, að bærinn
hefði forgöngu um byggingu
ódýrra og hagkvæmra íbúða í
stórri íbúðarsamstæðu, sem síð-
an yrðu seldar eða leigðar eftir
atvikum. Húsnæðisnefnd hafði
þá um nokkurt skeið haft undir-
búning málsins með höndum.
Árangurinn er þegar kominn í
ljós. Risið er af grunni, sunnan
við Ásbúð, stórt og myndarlegt
hús með tólf íbúðum, og verður
húsið væntanlega fullbyggt á
þessu ári. Bæ'rinn hefur haft með
höndum framkvæmd byggingar-
innar, en að öðru leyti lxefur mál-
ið fyrst og fremst verið í hönd-
um húsnæðisnefndar. Á þennan
hátt hefur fólki gefizt kostur á
góðum íbúðum með hagkvæm-
um kjörum. Ibúðirnar hafa þeg-
ar verið seldar með kostnaðar-
verði. Þess er að vænta, að áfram
verið haldið á þessari braut.
fþróttahúsið
Ef ekki stæði á fjárfest-
ingarleyti, gæti bygging
þess hafizt nú þegar.
Á síðasta kjörtímabili var lok-
ið við yfii'byggingu sundlaugar-
innar og þar með náð merkum
áfanga í byggingu íþróttamann-
virkja í bænum. En Alþýðu-
flokknum var og er ljóst, að
þrátt fyrir þennan áfanga er enn
mikið ógert til þess, að aðstaða
til íþróttaiðkana sé viðunandi.
Flokkurinn hét því fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar að vinna
að byggingu fullkomins íþrótta-
húss og jafnliliða undirbúa
byggingu íþróttaleikvangs. Af
hálfu bæjarins er ekkert því til
fvrirstöðu, að byggingarframkv.
hefjist nú þegar. Bærinn hefur
keypt lóð undir húsið fyrir 100
þús. kr. — Grundarlóðina við
Austurgötu — og þar með hefur
húsinu verið ákveðinn staður.
Peningar eru í sjóði til byrjunar-
framkvæmda og öllum teikning-
um svo til lokið. Aðeins stendur
nú á fjárfestingai'leyfi frá stjórn-
arvöldunum, en öllum er liulið
hvenær þeim aðilum þóknast að
veita það. Málin standa því
þannig, að jafnskjótt og stjómar-
völdin veita fjárfestingarleyfi,
verður byrjað á byggingarfram-
kvæmdum. Það er því ekki sök
bæjaryfirvaldanna, að byggingin
hefur enn ekki hafizt, heldur
ríkisvaldsins.
Hafnfirzkir íþróttamenn hafa
mikinn áhuga fyrir þessari fram-
kværnd sem eðlilegt er. enda
mun hún gerbreyta allri aðstöðu
þeirra til íþróttaiðkana. Þeirra
verkefni er því fyrst og fremst
það, að vinna ötullega að þessu
máli og láta stjórnarvöldin eng-
an frið hafa, fyrr en fjárfesting-
arleyfi er fengið og málið þannig
kornið á öruggan rekspöl.
SóUnsafnið
Gert er ráð fyrir, að
húsið komist undir þak
fyrir haustið.
Fyrir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar var að mestu lokið við
teikningu af væntanlegu bóka-
safnshúsi. Húsinu hafði verið
valinn staður miðsvæðis í bæn-
um við fremur kyrrláta götu,
Mjósundið. Einnig liafði verið
byrjað á að grafa fyrir grunni
hússins. En stjórnarvöldin synj-
uðu þá um fjárfestingarleyfi, svo
(Framhald á bJs. 4)