Alþýðublað Hafnarfjarðar - 09.06.1956, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ÚTGEFANDI:
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Etjjólfur Guðmundsson, (sími 9607).
AFGREIÐSLA í ALÞÝÐUHÚSINU, SÍMI 9499.
PRENTSMIÐJA HAFNARFJARÐAR H.F.
+---
IM—H»—M« «
Vinnum gegn einæðishneigðinni
stjórnaði honum. Tvær inntöku-
beiðnir bárust, og voru þær sam-
þykktar. Þá las ritari upp fund-
argerðir stjórnarinnar frá starfs-
árinu, og gjaldkeri ]as og skýrði
reikningana endurskoðaða, og
var hvort tveggja samþykkt. Því
næst flutti formaður ársskýrslu
um hin ýmsu störf stjórnarinn-
ar og gæ/lumanna. Var skýrsl-
an einkar fróðleg, og skýrði frá
margháttuðu starfi stjórnarinn-
ar í sambandi við verndun og
aðhlynningu ýmissa dýra, bæði
í bænum og uta'n hans.
Þá var stjórn félagsins öll end- telja Ólaf Guðmundsson, Hauk
svo vel skuli vera að sundmál-
um búið, að sótzt skuli vera eft-
ir því að halda slík stórmót hér
í Firðinum. Framkvæmd mótsins
tókst mjög vel og urðu árangrar
góðir, sérstaklega seinni daginn,
en þá voru sett þrjú ísl. met.
Pétur Kristjánsson setti ísl.
met í 100 m flugsundi karla á
1:15,3 mín. Agústa Þorsteins-
dóttir setti nýtt ísl. met í 100 m
skriðsundi kvenna á 1:12,7 mín.
Boðsundssveit Reykvíkinga setti
ísl. met í 3X50 m þrísundi
kvenna á 1:58,6 mín.
Þátttakendur frá Hafnarfirði
voru aðeins 4 og kemur það sér-
staklega til af því, að margt
góðra sundmanna af yngri sund-
mönnum voru farnir burtu úr
bænum og svo var erfiðum próf-
um nýlokið.
Heimamenn stóðu sig með ágæt-
um og skal þá fyrstan frægan
urkosin, en hana skipa: Þórður1
Þórðarson formaður, Jón Gest-
ur Vigfússon ritari og Sigurður
Þórðarson gjaldkeri. Meðstjórn-
endur Björn Jóhannesson og Jón
Sigurgeirsson. Gæzlumenn þeir
Einar Andrésson, Hermann
Wendil og Frímann Þórðarson.
Þá hafði Björn Jóhannesson orð
fyrir fundarmönnum, og þakk-
aði sérstaklega formanni svo og
stjórn og gæzlumönnum gott og
göfugt starf í þágu dýranna, sem
samkvæmt skýrslunni hefði bor-
ið allverulega góðan árangur á
starfsárinu. Síðan las hann sögu-
kafla úr Dýrasögum Þorgils
gjallanda. Formaður þakkaði
gott samstarf á árinu, sleit síðan
fundi með nokkrum hvatningar-
orðum og árnaðaróskum til fé-
lagsins.
Um S**ndm«‘istara-
mótið
Sundmeistaramót Islands 1956
var haldið í Sundhöll Hafnar-
fjarðar 27. og 28. maí sl.
Þetta er í fyrsta sinn sem
meistaramót í sundi er haldið
hér og gott til þess að vita, að
um, afburða snjallan sundmann.
Varð hann Islandsmeistari í 100
m baksundi karla og 4. í 100 m
skriðsundi karla og setti þar nýtt
hafnfirzkt met á 1:05,5 mín.
Guðlaugur Gíslason, SH, varð
annar í 100 m skriðsundi drengja
og í 100 m baksundi drengja og
setti þar hafnfirzkt sundmet á
1:33,3 mín. Guðlaugur er mjög
efnilégur skriðsundsmaður og
má mikils af honum vænta í
framtíðinni.
Birgir Dagbjartsson, SH, var
2. í 100 m bringusundi drengja.
Hann er góður bringusundsmað-
ur og með góðri æfingu ætti
hann að geta komizt langt í þess-
ari sundgrein.
Jón Gunnar Benediktsson, SH,
er fjölhæfur sundmaður, dálítið
þungur, en hraustur og áhuga-
samur, enda hefur hann bætt ár-
angur sinn mikið í vetur, einkar-
lega í skriðsundi. Gunnar varð
4. í 100 m skriðsundi drengja á
ágætum tíma.
Bæjarbúar ættu að fjölmenna
á sundmót þau, er íþróttafélög-
in í bænum gangast fyrir og fylgj
ast með framförum sundmanna
okkar um leið og þeir styrkja
gott málefni.
Ágætir fundir
Af kunnugum mönnum hefur
því verið spáð, að kosningar
þær, sem nú standa fyrir dyrum,
myndu mun harðari en oft áður.
Þetta hefur nú komið á daginn.
Andstöðuflokkarnir beita nú
orðabragði og bardagaaðferð
um, sem menn grunaði tæplega
að til væru í hugum fólks, sem
lengi hefur búið við lýðræðis-
stjórn. I því efni gengur vart
hnífurinn milli þeirra Sjálfstæð-
isflokksins og kommúnistanna.
Það var löngu vitað, að frá her-
búðum kommúnistanna var ým-
iss að vænta í þessu efni, því að
lýðræði hefur þar aldrei verið í
hávegum haft, nema til þess að
kitla eyru kjósendanna, þegar á
þeim þurfti að halda.
Hefur þessi baráttuaðferð
verkað svo báglega hér á landi,
að flokkurinn hefur tvisar orðið
að skipta um nafn og þannig vilt
á sér heimildir, svo að hann yrði
ekki algerlega þurkaður út.
Þegar íslenzka þjóðin var far-
in að sjá og skilja baráttuaðferð
Kommúnistaflokks Islands, var
líf hans í hættu. Þá var stofnaður
nýr flokkur, en með sömu mönn-
um, að mestu, og undir sömu
stjóm: Sameiningarflokkur al-
þýðu, Sósíalistaflókkurinn.
Var nú málum þessa flokks svo
komið að ekkert var eftir nema
andlátið. Var þá enn farið af
stað og Alþýðubandalagið stofn-
að. Er með það eins og Sósíal-
istaflokkinn að meginhluti stjórn
ar hans og yfirráða eru í hönd-
um stofnenda ,og „agitatora“
Kommúnistaflokksins sáluga.
Flokkur, sem tvisvar hefur
staðið yfir sínum eigin moldum
og á aðeins hálfan mánuð eftir
að bíða þeirra þriðju, getur engu
góðu komið- til leiða fyrir al-
þýðu þessa lands. Gagnvart hon-
um geta kjósendur aðeins gert
eitt, sýnt honum eðallyndi sitt
með því að hafa sem minnstan
hávaða við beð hans.
Ástæðan fyrir lánleysi manna
þeirra, sem stýrt hafa og ráðið
þessu þristimi er fyrst og fremst
hið taumlausa hatur þeirra á AI-
þýðuflokknum og málflutningur
þeirra allur, sem byggður er á
mannfyrirlitningu og einræðis-
hneigð.
Sama lánleysið hefur fylgt
S jálf stæði sflokknum.
I upphafi var hann nefndur
Borgarabandalagið, síðar íhalds
flokkurinn og nú Sjálfstæðis-
flokkurinn. Hann hefur þannig
borið sjálfan sig tvisvar til mold-
ar og nú Hður óðum að þriðju
hnignuninni. Flokkur þessi er að
langmestu leyti byggður upp af
sérhagsmuna- og auðmönnum,
sem haft hafa fjármagn og að-
stöðu til þess að reka ófyrirleit-
inn áróður, studdan peningum
og völdum, sem beitt hefur ver-
ið til hins ýtrasta.
Við öll hugsanleg tækifæri hef
ur Sjálfstæðisflokkurinn látizt
vera lýðræðissinnaður, en þegar
á hefur hert, hefur hann aldrei
hikað við að láta hlutaðeigend-
ur ráða í, hver völdin hefði og
fjármagnið og hve hættulegt sé
að skapa sér hlutleysi þess eða
andúð.
Bezta sönnun þessa er fram-
koma Sjálfstæðisflokksins í land-
listamálinu núna fyrir skömmu.
Þar átti að beita bæði ofbeldi og
yfirgangi, sem fordæmdur hefur
verið af þjóðinni í heild og mörg-
um framámönnum Sjálfstæðis-
flokksins sjálfs. Hafa verið við-
höfð í máli þessu sams konar að-
ferðir og þýzku nazistamir
beittu og spönsku falangistarn-
ir.
Hafa aðferðir þessar verið for-
dæmdar af öllum þjóðum, nema
þjóðemissinnum Suður-Afríku.
En þeir hafa skapað sér fyr-
irlitningu allra sæmilegra lýð-
ræðisþjóða.
Kosningaundirbúningur sá,
sem nú fer í hönd, ber þess ótví-
rætt vitni, að báðir þessir flokk-
ar, Alþýðubandalagið og Sjálf-
stæðisflokkurinn ganga til vænt-
anlegra kosninga, mjög kvíðnir
og uggandi um sinn hag.
Enn er svo háttað í þjóðfélagi
voru, sem betur fer, að atkvæði
kjósenda getur breytt áformum
þeirra hættulegu afla innan ís-
Ienzka ríkisins, sem meta „SINN
HAG OG OKKAR“ meira en
þjóðarinnar í heild. Takist svo
ógiftusamlega til hinn 24. júní
n. k., að flokkar þessir fái meiri-
hluta á Alþingi Islendinga, gæti
svo farið, að atkvæðum kjósenda
yrði þrengri stakkur skorinn
framvegis en þekkst hefúr hér á
landi til þessa. í þessa átt benda
ummæli þau, sem um þessi mál
hafa verið höfð undanfarið, bæði
í Þjóðviljanum og Morgunblað-
inu. Þeir, sem annt er um, að
réttur atkvæða þeirra verði ekki
skertur framvegis, forðast það
því að greiða flokkum þessum at-
kvæði sitt 24. júní n. k.
Þeir kjóscc frambjóð-
enda Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins,
hver ó sínum stað. í Hafn-
arfirði kjósa þeir Emil
Jónsson.
Sj wn* aunail atrurinn
Sunnudaginn 3. júní var sjó-
mannadagurinn haldinn hátíð-
legur.
Hér í Hafnarfirði var hátíða-
höldunum stjórnar af Sjómanna-
dagsráði og Hraunprýðiskonum
og fóru hátíðahöld dagsins fram
á Óseyrartúninu, nema guðs-
þjónustan og dansleikirnir um
kvöldið. Veður var gott og bjart,
en kalt og allhvasst.
Séra Garðar Þorsteinsson. pró-
fastur, prédikaði í þjóðkirkjunni
og Kristinn Hallsson söng ein-
söng. Lúðrasveit Hafnarfjarðar
lék fyrir göngunni og milli atriða
á Óseyrartúni. Þar töluðu: Einar
Jónsson, vélstjóri, Þórhallur Hálf
dánarson, skipstjóri, Sigurður
Magnússon, fulltrúi og Ester
Kláusdóttir. Blandaður kór söng
undir stjórn Bjargar Guðnadótt-
ur. Gamall sjómaður, Ingólfur
Kristjánsson var heiðraður og
reipdráttur var milli kvenna úr
Hraunprýði og sjómannadags-
nefndarinnar og unnu Ilraun-
prýðiskonur. Kappróður var og
af kvennabátunum vann B-sveit
Hraunprýði, en af skipshöfnun-
um vann skipshöfnin á Erni Arn-
arsyni.
Þegar kórinn hafði lokið söng
sínum á Óseyrartúninu, fór hann
að Sólvangi og söng fyrir dvalar-
fólk þar.
Skipverjar af Röðli tóku þátt í
kappróðrinum í Reykjavík og
unnu verðlaunagripinn, fiski-
manninn, og Keflvíkingur vann
stakkasundsbikarinn.
Höfðu Reykvíkingar engin af
stærri verðlaunum sjómanna-
dagsins eftir.
Kaffi var selt í Ishúsi Haínar-
fjarðar og var það og allt, sem
þar þurfti að nota, gefið af eig-
endum þess, en sjómannakonur
gáfu kaffibrauð og framreiðslu.
Velunnandi spysavarnafélags-
ins hér í bæ, sem ekki vill láta
nafn síns getið, gaf deildinni
1000 krónur. Hefur þessi maður
áður sýnt kvennadeildinni rausn-
arskap og fært henni stórar gjaf-
ir. Er gefandanum hér með færð-
ar alúðarfyllstu þakkir fyrir hina
rausnarlegu gjöf.
Um kvöldið var dansleikur í
illum samkomuhúsum bæjarins.
Sjómannadagsnefnd og þeir,
>em að hátíðahöldunum stóðu,
báðu blaðið að færa öllum þeim,
;em lögðu hönd að verki í einni
eða annarri mynd, alúðarfyllstu
þakkir fyrir störf þeirra og fram-
lög
— • —
Prá Dýravorndunar-
iélaginu
Aðalfundur Dýraverndunar-
félags Hafnarfjarðar var hald-
inn mánud. 7. maí s.l. Formað-
ur félagsins, Þórður Þórðarson,
verkstjóri, setti fundinn og
Hinn 28. maí var fundur í Al-
þýðuflokksfélagi Hafnarfjarðar.
Var fundurinn afar fjölsóttur,
svo að þess munu fádæmi og
ræðumönnum vel tekið.
Frummælandi, Emil Jónsson,
hóf mál sitt með því að benda
fundarmönnum á ótta þann, sem
gripið hefði um sig í herbúðum
Sjálfstæðismanna. Benti Emil á
tvennt í því sambandi; óvenju-
lega gróft og illyrt orðbragð í
Morgunblaðinu undanfarið og
ákafa íhaldsráðherranna að aug-
lýsa stöður, sem eru að losna og
láta umsóknarfrest þeirra vera
útrunninn fyrir 24. júní n. k. Gat
hann þess í því sambandi, að
búið væri að auglýsa skólastjóra-
stöðuna við Flensborgarskólann,
enda þótt Fræðsluráð hefði
ekkert um það mál fjallað og að
því forspurðu.
Um samstarf Alþýðu- og Fram
sóknarflokksins fórust Emil orð
á þá leið, að Framsóknarflokkur-
inn hefði fengið fulla reynslu og
sönnun fyrir því, að efnahags-
málin verði ekki leyst í samráði
við Sjálfstæðisflokkinn.
Emil hefur tekið talsverðan
þátt í fundahöldum út um land
undanfarið. Þar hefur tvennt
komið áþreifanlega í ljós: Fólk-
ið hefur innilega fagnað sam-
vinnu Alþýðuflokksins og Fram-
sóknarflokksins, og segir, að hún
sé sú lausn, sem það hafi lengi
þráð. Hitt er, að kommúnistar
styðja sumstaðar beinlínis fram-
þjóðendur Sjálfstæðisflokksins,
þar sem þeir eru í mikilli hættu.
Stefán Júlíusson benti á, að í
höfuð atriðunum væri aðeins um
tvær stefnur að ræða; þá sem
(Framhald á bls. 3)