Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.06.1956, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Valið er auðvelt, ef við
hugsum um hag fjöldans
24. júní n. k. göngum við til alþingiskosninga og veljum okkur
fulltrúa til að gæta þjóðarbúsins næstu 4 ár. Til þessara kosn-
inga er gengið einu ári áður en núverandi kjörtímabil átti að ljúka,
núverandi stjómarsamstarfi er slitið. Hverjar em þá orsakir þær,
sem til þess liggja að þetta hefur gerst?
Til þess að gera okkur grein
fyrir því, verðum við að líta
nokkur ár aftur í tímann, og
virða fyrir okkur þróun þjóðfé-
lagsmálanna á undangengnum
árum.
Eins og við öll vitum bafa
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn verið við stjórn
og myndað meirihluta á Alþingi.
Árið 1950 felldu þessir flokkar
gengi islenzku krónunnar í full-
kominni andstöðu við verka-
lýðshreyfinguna og óþökk allra
launþega í landinu.
^ Viðvöiun Alþýðu-
ílokksins
Alþýðuflokkurinn barðist
gegn þessum aðgerðum stjóm-
arflokkanna og varaði við afleið-
ingum þeirra, hann benti á aðrar
leiðir til að leysa þann vanda
sem atvinnuvegir þjóðarinnar þá
áttu við að etja. Á þær aðvaran-
ir og ábendingar var ekki hlust-
að af stjómarflokkunum, þetta
var barið í gegn af miklu harð-
fylgi.
Alþýðflokkurinn benti á að
gengisfelling væri engin fram-
tíðarlausn á vandamálum at-
vinnuveganna, þvert á móti
myndi gengisfelling hafa þær
afleiðingar, að sú dýrtíðaralda
skylli yfir þjóðina, að hún vart
gæti undir því risið, að með
þessum aðgerðum væri verið
að binda þá snöm um háls ís-
lenzku þjóðarinnar, sem erfitt
myndi að leysa hana úr, og að
atvinnuvegir yrðu innan
skamms tíma enn ver settir en
áður.
Allt það sem Alþýðuflokkur-
inn sagði um þessar ráðstafanir
stjórnarflokkanna kom fram og
að mörgu leyti fyrr en búast
mátti við. Dýrtíðin óx hröðum
skrefum og afkoma atvinnuveg-
anna fór hraðversnandi, einkum
þó bátaútvegsins og var ekki
annað sýnna en að hann stöðv-
aðist algjörlega. Þá ér enn grip-
ið til nýrrar gengisfellingar, að
vísu dulbúinnar — hins svokall-
aða bátagjaldeyris. Nú átti allt
að vera í lagi. Nú var loks fund-
in sú leið sem með þurfti og
bjarga mundi þjóðarbúinu. Nú
gat þjóðin litið björtum augum
til framtíðarinnar. Allt í stakasta
Jagi.
Reynzlan
En reynzlan varð allt önnur.
Nú fór fyrst fyrir alvöru að
síga á ógæfuhliðina. Dýrtíðin óx
með enn meiri hraða en áður,
töp útvegsins urðu enn stórkost-
legri, sparifé þjóðarinnar rýrn-
aði með hverjum degi, sem leið
og kaup verkamanna og annarra
launþega í landinu nægði ekki
fyrir brýnustu nauðsynjum. —
Verkalýðsfélögin gátu ekki og
máttu ekki horfa á þessa þróun
málanna aðgerðalaus, þau urðu
að freista þess að bæta kjör með-
lima sinna annað hvort með
beinum kauphækkunum eða
verðlækkun á brýnustu nauð-
synjum. I desember 1952 eru
þau neydd til að hefja verkfall
til að ná þessu fram. Þetta verk-
fall stóð í 3 vikur. og lauk með
því að verkamenn fengu kjör sín
bætt í bili í formi verðlækkunar
á ýmsum helstu nauðsynjum sín-
um. Héldu menn og rómuðu að
hér væri verið að marka nýjar
leiðir í verðlagsmálum þjóðar-
innar og breytta stjórnarstefnu,
en svo var þó því miður ekki.
Svo að segja allt samkomulag,
sem gert var við verkalýðslneyf-
inguna var srnátt og smátt svik-
ið.
Munui ei á mönnum
Enn var verkalýðshreyfingin
neydd til þess að fara út í kaup-
gjaldsbaráttu á síðastliðnu ári og
sú barátta stóð í 6 vikur, ströngu
og miskunnarlausu verkfalli við
íslenzku auðmannastéttina og
meðal annars hér í Hafnarfirði.
Var þessari miskunnarlausu
baráttu atvinnurekendavalds-
ins gegn ykkur, verkamenn og
konur, stjórnað af alþingis-
manni Hafnfirðinga hr. Ingólfi
Flygenring, þáverandi for-
manni Atvinnurekendafélags
Hafnarfjarðar. En jafnframt
því að við minnumst þáttar hr.
Flygenrings í þessari deilu, þá
skulum við líka minnast hins,
góðir Hafnfirðingar, hver það
var sem átti drýgstan þáttinn í
því að leysa þessa alvarlegu
deilu. Það var Emil Jónsson al-
þingismaður og núverandi
frambjóðandi Alþýðuflokksins
hér í Hafnarfirði. Hann kom
með þá tillögu til lausnar deil-
unni, sem öðru framar leysti
hana, á ég þar við atvinnuleys-
istryggingamar. Þetta eigum
við og skulum muna 24. júní
n. k.
Sporin hiæða
Valdaaðstaða Sjálfstæðis-
flokksins hefur nú algjörlega
siglt þjóðarfleytunni í strand. —
Helstu atvinnuvegum þjóðar-
innar er haldið uppi með styrkj-
um af opinberu fé eða með gíf-
urlegum toll- og skattaálögum
á neyzluvörur almennings. Jafn-
hliða þessu er milliliðum látið
haldast uppi að féfletta almenn-
ing með óhóflegri álagningu á
þessar vörur.
Þjóðin býr nú við svo mik-
inn gjaldeyrisskort að stöðva
hefur orðið að miklu leyti inn-
flutning á brýnustu nauðsynj-
um. Þrátt fyrir vaxandi fram-
leiðsu og greiða sölu á frarn-
leiðslu þjóðarinnar og miklar
gjaldeyristekjur af varnarliðs-
framkvæmdum safnar þjóðin
skuldum erlendis, og þjóðin
býr við sívaxandi lánsfjárskort.
Alþýðuflokknum og Fram-
sóknarflokknum eru Ijósar þær
staðreyndir að þessa óheilla og
öfugþróun verður að stöðva og
brjóta á bak aftur ofurvald milli-
liða og gróðastétta. Þeim er það
enn fremur ljóst að tryggja verð-
ur öllu vinnandi fólki fullan af-
rekstur vinnu sinnar. Alþýðu-
flokknum og Framsóknarflokkn-
um er líka Ijóst að tryggja verð-
ur atvinnuvegum þjóðarinnar
öruggan starfsgrundvöll, og að
tryggja verður það í samvinnu
við verkalýðshreyfinguna að
framleiðslustéttir þjóðarinnar
séu öruggar um það að þær beri
úr bítum sannviðri vinnu sinnar.
■ýc Samvinna Alþýðu-
og Fiamsóknaifl.
Fyrir því hafa Alþýðu- og
Framsóknarflokkurinn efnt til
víðtæks samstarfs í þessum kosn-
ingum og þeir munu að kosn-
ingunr loknum mynda sameigin-
lega stjórn, ef íslenzka þjóðin ber
gæfu til þess að veita þeim þann
stuðning, sem þarf til að ná ör-
uggum meirihluta á Alþingi. Til
ykkar sem þetta lesið leita þess-
ir flokkar stuðnings um að svo
rnegi verða og heita á ykkur að
láta einskis ófreistað til þess að
það megi takast.
Það er á ykkar valdi hvort
þingmaður Hafnfirðinga næsta
kjörtíma verður víðsýnn og
frjálslyndur umbótamaður, eða
þröngsýnn afturhaldsmaður.
Valið er auðvelt. Ég veit að
þið gerið allt, sem í ykkar valdi
stendur til þess að Emil Jóns-
son, frambjóðandi Alþýðu-
flokksins, nái kosningu 24. júní
n. k. og ekki aðeins að bann
nái kosningu, heldur með meiri
og glæsilegri sigri en nokkru
sinni áður.
Keppinautainii veiða
ekki kosnii
Hér hefur ekki verið talað um
aðra flokka eða frambjóðendur,
sem til ykkar leita um kjiirfylgi
í þessum kosningum. Ef til vill
gefst tækifæri síðar, til að ræða
þá sérstaklega.
Að lokum þetta:
Við kjósurn ekki frambjóð-
anda Þjóðvarnarflokksins
vegna þess, að hvert atkvæði,
sem sá frambjóðandi fær, fell-
ur dautt og ómerkt, þar sem
sá flokkur hefir ekki möguleika
á að fá mann kjörinn í þessum
kosningum. Þjóðvarnarflokk-
urinn verður strikaður út af
skrá um pólitíska flokka á Is-
landi í þessum kosningum.
Við kjósum ekki frambjóð-
anda sósíalista (Alþýðubanda-
lagsins) vegna þess að hann
hefir ekki neinn möguleika á
að komast á þing. Stuðningur
við hann á kjördegi eykur að-
eins möguleika á því að höfuð-
andstæðingur okkar Ingólfur
Flygenring frambjóðandi í-
haldsins nái kosningu. Þess
vegna kemur frambjóðandi sós
íalista ekki til álita hjá hafn-
firzkum kjósendum.
Við kjósum ekki frambjóð-
anda Sjálfstæðisflokksins,
vegna þess að hann hefir með
stuðningi sínum við hrunstefnu
íhaldsins unnið sér til óhelgi og
á ekki á Alþingi íslendinga að
vera. Hann sýndi Hafnfirzkum
verkalýð þann fjandskap í síð-
ustu ,-vinnucleiIu, að enginn
hafnfirzkur verkamaður eða
kona, getur sóma síns vegna
falið honum umboð sitt á Al-
þingi.
Hatntiiðinqai kjósa
Emil
Hafnfirðingar kjósa þann fram
bjóðanda, sem með áratuga
starfi sínu fyrir þetta bæjarfélag
bæði á Alþingi og utan þess,
hefur sýnt og sannað, að bonum
einum er treystandi til að vinna
að hagsmunamálum okkar og
þjóðarinnar í heild af drengskap,
festu og skilningi. Við kjósum
frambjóðanda Alþýðuflokksins
Emil Jónsson. I bans höndum er
umboði okkar vel borgið.
Fyrir því fylkjum við
Hafnfirðingar liði 24. júní
n. k. og sendum Emil Jóns-
son á þing, með meiri
glæsibrag en nokkru
sinni áður, og þurrkum út
hér í bæ öll öfgaöfl, bæði
til hægri og vinstri, um
alla framtíð.
Það er sómi okkar Hafn
firðinga.
Munum þetta 24. júní
n. k.
Yfirlýsing, að gefnu tileíni
Á síðasta bæjarstjórnarfundi gerði Stefán Jónsson bæj- |
1 arfulltrúi, lævíslega tilraun til að framkalla deilur milli full- |
| trúa Alþýðuflokksins og fulltrúa Sósíalistaflokksins í bæjar- i
| stjórn. Honum hefir sjálfsagt verið kunnugt um að sumir |
I Alþýðuflokksmenn eru ekki ánægðir með framkomu sam- i
I starfsflokksins í þessum yfirstandandi kosningum, enda hafa i
| komið fram raddir um það í Alþýðublaði Hafnarfjarðar. Án |
I þess að taka á nokkurn hátt afstöðu til þess máls lýsti ég i
i því yfir á fundinum, að það væri hvorki á mínu færi, né \
| Alþýðublaðs Hafnarfjarðar að ségja síðasta orð í því máli. i
| Það mundi stjórn Alþýðuflokksins í Hafnarfirði gera af sinni 1
| hálfu, þegar henni þætti það tímabært i
Allt tal um að ég hafi með þessu verið að ómerkja Al- |
| þýðublað Hafnarfjarðar og það sem í því stóð, er gersam- \
| lega úr lausu lofti gripið. Stjórn Alþýðuflokksins í Hafnar- |
i firði tók á sínum tíma þá ákvörðun að freista samstarfs við I
1 Sósíalistaflokkinn, um bæjarmál Hafnarfjarðar, fyrst og I
| fremst til að koma í veg fyrir það að íhaldsmönnunum með i
| „Lýsi og Mjöls“-hugsunarháttinn yrði falin forsjá mála bæj- i
| arins og eigna hans. Samvinnumöguleikar flokkanna hljóta |
| svo, að eðlilegum hætti, að mótast af þeim samstarfsvilja, I
i sem flokkarnir sýna í verki. |
Emil Jónsson. f
lll■llll■llllll•llIIIII■llllllllllllllllllllllllllllllllIIII111111111||||||IIIIIIIIIIIIIIIIIII■I■IIIII|II|||I■IIIIIIIIII■IIIIIIII■IIIII■II■I■MII
Hjóseodur Emíls Jónssonur:
Munið, að kosningaskiifstoían ei opin allan
daqinn og látið vita um þá, sem ekki veiða heima
á kjöidag. Getið skrifstofunni allar þær upplýs-
ingar, sem þið getið og að gagni mega verða.
Leggið peninga í kosningasjóðinn, því að kosn-
ingarnar kosta mikið fé. Látið öll eitthvað at möik-
um. Kosningaskiifstofan veitii fiamlögunum við-
töku.
Allii eitt og fiam til siguis!
Símai skiifstofunnai eiu 9985 og 9499.
Kjörorðið er: Umbótaflokkarnir fái meirihluta á Alþingi