Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.01.1962, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
3
Lítld um öxl á ávamótum
Það er garnall og góður siður að staldra örlítið við á hverjum áramótum og líta
yfir farinn veg og þá jafnframt að reyna að skyggnast inn í framtíðina á næsta ári
°g gera sér grein fyrir hvernig það geti orðið hverjum og einum að beztu gagni
og gæfu. í þessari grein verður það látið nægja að líta um öxl til liðins árs, en
framtíðarmálin tekin til meðferðar annars staðar í blaðinu og í næstu blöðum.
Arið 1961 var Hafnfirðingum gott ár á flestum sviðum. Atvinnulíf var í miklum
blóma, atvinnuleysi óþekkt, ný fyrirtæki fluttust í bæinn í vaxandi mæli, íbúunum
fjölgaði, umsvifamiklar framkvæmdir voru hjá bænum og bæjarmálefnum var stjórn-
að af festu og framsýni. Það er því ekki út í bláinn, að Hafnfirðingar þakka liðið ár,
mn leið og þeir óska bæði sér og öðrum gleðilegs og gæfuríks árs á árinu 1962.
Hér á eftir verður aðeins stiklað á stóru í málum Hafnfirðinga á árinu, sem leið.
STÖRF
gjaldkera og innheimtumanns eru laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. þ. m.
Rafvcita Hafnarfjarðar
IIAFNARFJÖRDIIR!
Símstöðin í Hafnarfirði
flutti afgreiðslu sína og skrifstofur í hið nýja hús
pósts og síma að Strandgötu 26, sunnudaginn 14.
janúar 1962.
Frá sama tíma lagðist öll afgreiðsla niður í gömlu
símstöðinni að Austurgötu 11.
S töðvarstjóri.
Stórstígar framfarir í hafn-
flrmálum Hafnfirðinga.
Síðast á árinu 1960 var nýr
hafnarbakki tekinn í notkun í
Hafnarfirði. Þetta var stórt og
glæsilegt átak í hafnarmálum
Hafnfirðinga og stórbætti hafn-
arskilyrði í Hafnarfjarðarhöfn.
Þetta átak kostaði rúmlega 10
milljónir króna. Um sama leyti
var syðsti hafnargarðurinn
breikkaður um rúman helming.
Það hefur því myndarlega ver-
ið tekið til höndunum í Hafnar-
fjarðarhöfn og á árinu sem leið
fór árangurinn strax að koma í
ijós. Umferðin um höfnina fór
ört vaxandi. Stærstu skip lands-
manna lögðu leið sína til Hafn-
arfjarðar. Gullfoss byrjaði
ferðir sínar beint frá Hafnar-
firði til útlanda og Trölla-
foss kom hingað beint frá Amer-
iku og losaði um 1800 tonn af
ýmissi voru á land hér í Hafn-
arfirði. Töluverðum hluta af
þessu vörumagni úr Tröllafossi
var ekið til Reykjavíkur og er
það vissulega gleðileg þróun, að
Reykvíkingar þurfi stundum að
sækja sitt til Hafnarfjarðar.
Þá fór og á árinu sem Ieið
fyrsti stóri vikurfarmurinn til
Þýzkalands, en með honum
hófst vikurútflutningur Hafnar-
fjarðarbæjar. Hófst þar þáttur
i hafnar- og atvinnumálum
Hafnfirðinga, sem getur orðið
mJ°g þýðingarmikill í bæjarfé-
laginu.
A síðasta ári urðu því þátta-
skil í sögu Hafnarfjarðarhafnar,
er Hafnfirðingar sáu margra
ara draum sinn rætast um inn-
°g útflutningshöfn í Hafnar-
firði.
Útgerðarmál
Ekki hefur neitt ræzt úr fyrir
togaraútgerðinni á íslandi á
árinu 1961 frá árinu áður. Sömu
erfiðleikarnir hafa steðjað að,
fádæma aflaleysi. — Lengi
vel voru torgararnir aðal und-
irstöðutækin undir sjávarútveg
landsmanna, og enn gegna þeir
þar stóru hlutverki, þótt hlutur
þeirra sé miklu minni en áður.
Það er því mjög þýðingarmikið,
að mögulegt verði að halda
þessari útgerð áfram, og sér í
lagi fyrir Hafnfirðinga, sem svo
lengi hafa byggt afkomu sína
á togaraútgerð. Það er því von
allra, að hægt verði hið fyrsta
að finna viðunandi rekstrar-
grundvöll fyrir togaraútgerð-
ina.
Árið 1961 er fyrsta árið, sem
síldveiðar liafa verið stundaðar
allan ársins hring. Hefur verið
mjög mikil vinna í frystihúsum
bæjarins við verkun síldarinnar.
Vetrar- og vorvertíðin á ár-
inu 1961 gekk ágætlega. Þess
má geta til gamans, að 2 afla-
hæstu bátarnir á landinu á þeirri
vertíð voru gerðir út frá Hafn-
arfirði. Eru það Héðinn og Fák-
ur. Yfirleitt gekk hafnfirzku bát-
unum vel miðað við aðra staði,
og er Hafnarfjörður vaxandi
verstöð vélbátaútgerðar.
>
Barnaskólinn við Oldutún
tekinn í notkun.
Nýr barnaskóli var byggður
og tekinn í notkun á síðast
liðnu ári. Þar eru 200 nemend-
ur á alldrinum 7 og 8 ára í 4
nýjum kennslustofum. Þetta er
aðeins einn áfangi í stærri bygg-
ingu. Þarna er það nýmæli í
skólabyggingu í Hafnarfirði. að
allar kennslustofurnar eru á
einni og sömu hæð. Börnin í
þessum nýja skóla losna þannig
við hina erfiðu og hættulegu
stiga. Annað nýmæli er þarna
líka, sem ekki er minna um
vert, en það er að sérinngangur
er í hverja kennslustofu, þann-
ig að hver bekkur gengur inn
um sínar dyr að frímínútum
loknum. Er þetta vissulega mik-
ill kostur og léttir alla um-
gengni í skólanum.
Árið 1961 var fyrsta heila
áirið, sem æskulýðsráð starf-
aði.
Síðla árs 1960 var Æskulýðs-
ráð Hafnarfjarðar stofnað af
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar. —
Tekizt hefur ágætt samstarf
milli þess, góðtemplarareglunn-
ar, áfengisvarnarnefndar og
skáta. Höfðu þessir aðilar opin
hús ákveðin kvöld í viku, þar
sem ungmennum bæjarins gafst
kostur á að una sér við ýmsar
dægradvalir, ef þeir aðeins |
ástunduðu prúðmennsku og
góða siði, meðan þeir voru
þarna inni. Þá voru haldin mörg
tómstundanámskeið á vegum
þessara aðila. Þarna undi sér
fjöldi æskufólks við holl og
þroskandi tómstundastörf.
Þá hefur verið stofnaður
skemmtiklúbbur æskufólks, sem
starfar að mestu leyti sjúlfstætt,
en þó undir handarjaðrinum á
æskulýðsráði og í samráði við
það. Hefur hann að markmiði
góðar og heilbrigðar skemmtan-
ir æskufólks og útilokar bæði
reykingar og áfengi frá skemmt-
unum sínum. Hefur klúbburinn,
sem hlaut nafnið Mánaklúbbur-
inn, farið vel og myndarlega af
stað og er vonandi að hann nái
því takmarki, sem hann setti
sér í upphafi, en það er: Glöð
og heilbrigð æska með fyrir-
myndar skemmtanalíf.
Og halclið var áfram að húa
í haginn ft/rir íþróttaæskuna.
Á árinu 1961 var knattspyrnu-
völlurinn á Hvaleyrarholtinu
lagfærður og endurbyggður, svo
að nú eignuðust Hafnfirðingar
Iöglegan völl í knattspyrnu-
keppni í 1. deild Islandsmótsins
og má segja að með því byrji
nýr kapítuli í sögu hafnfirzkr-
ar knattspyrnu.
Þá var á árinu hafin bygging
íþróttahallarinnar við Strand-
götu. Þar á að rísa íþróttasalir
og félagsheimili fyrir hafnfirzka
æsku. Hafnfirzkur handknatt-
leikur hefur lengi vakið þjóðar-
athygli og svo var einnig á ár-
inu sem leið. En í íþróttahöll-
inni er fyrirhugaður salur að
að stærð 20x40 metrar, sem er
lögleg stærð á alþjóðamæli-
kvarða fyrir handknattleik. —
íþróttahöllin er því óskadraum-
ur hafnfirzkra íþróttamanna og
þeir fögnuðu af heilum hug,
þegar hafist var handa um
bygginguna. Árni Gunnlaugs-
son, formaður íþróttanefndar,
hefur haft forystu í þessu máli
og kunna Hafnfirðingar honum,
og öðrum þeim, sem að þessu
hafa unnið,, beztu þakkir fyrir.
Þá ber og bæjaryfirvöldunum
þökk fyrir góðan skilning á
þessu mikilvæga máli.
Árið 1961 varð merkisár í
sögu hafnfirzkrar gatna-
gerðar.
Myndarlegar framkvæmdir í
varanlegri gatnagerð í Hafnar-
firði voru hafnar á síðast liðnu
sumri. — Þessar gatnagerðar-
framkvæmdir vöktu verðskuld-
aða athygli bæði innan bæjar
og utan og Hafnfirðingar fögn-
uðu þeim áf heilum hug. —
Ymsir þeir, sem vel fylgdust
með vexti og viðgangi Hafnar-
fjarðarbæjar, létu jafnframt
undrun í ljós að þetta skyldi
vera hægt í bæjarfélagi, sem
fer jafn hraðvaxandi og Hafnar-
fjörður. Þeim var það vel ljóst,
að ör vöxtur íbúatölu kostar öra
útþennslu bæjarins, ög þá um
leið á nýjar götur, holræsalagn-
ir, vatnslagnir o. fl. þess háttar.
Þeir vissu, að fólksfjölgunin í
Hafnarfirði hafði á nokkrum
undanförnum árum numið
meiru en öllum íbúunum á
Húsavík, eða öllum íbúunum í
Neskaupstað og ekki langt frá
öllum íbúunum á Selfossi.
Norðanmenn vissu að upp-
bygging Húsavíkur, götur henn-
ar„ vatnslagnir og holræsi höfðu
kostað ærið fé, austanmenn
vissu að mikið fjármagn var
bundið í öllum götunum og að
og frárennslislögnum í Nes-
kaupstað, og Sunnlendingar
fóru ekkert í grafgötur með það
að uppbyggingin á Selfossi varð
ekki til af sjálfu sér, heldur kost-
aði mikið fé. Þegar þeir höfðu
svo það í huga, að fólksfjölgun-
in í Hafnarfirði nú síðustu árin
samsvaraði þessum hverjum fyr-
ir sig, virtist þeim það ærið
vandamál hverri bæjarstjórn að
leysa það verkefni að leggja
götur og lagnir til þessara nýju
borgara Hafnarf jarðar. Hvað
þá að gera eins og raun ber hér
bezt vitni um.
Hugmijndasamkeppni
um skipulag.
Á árinu sem leið var efnt til
samkeppni um skipulag mið-
bæjarins í Hafnarfirði. Jafn-
framt áttu að fylgja frumdrög
að skipulagi hafnarinnar.
Það er ekki úr vegi í því
sambandi að leiða hugann stund
arkorn ag kaupum bæjarins á
húsumi og lóðunl í bænum, sem
gerð hafa vérið á fjórum síðustu
árunum, einmitt vegna skipu-
lagsmála og framtíðar bæjarins.
Á þessum fjórum árum hefur
bærinn keypt lóðir og húseignir
fyrir um hálfa fjórðu milljón
króna. Þetta hefur verið nauð-
synlegt að gera vegna ýmissa
mikilvægra mannvirkja bæjar-
ins, gatnagerðar o. fl. Það er
vel að skipulagsmálin eru tek-
in föstum tökum, því að þau
eru ein af hinum þýðingarmestu
undirstöðuatriðum bæjarins,
sem framtíðin hvílir á.
Hér liefur aðeins verið stikl-
að á stóru. Þó kémur það greini-
lega í Ijós, þegar litið er um
öxl á farinn veg, að síðast lið-
ið ár hefur verið Hafmfirðingum
yfirleitt gott ár. Þeir geta kvatt
árið 1961 í mesta hróðerni og
þakkað fyrir það og horft
óhræddir til framtíðarinnar,
vegna þess sem unnizt hefur á
liðnum árum.
Öldutúnsskólinn var tekinn i notkun á síðasta ári. Samt eru húsnæðisvandamála skólanna slík að í óefni er kom-
ið, ef ekki er gert stórt átak í þeim mádum.