Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.11.1962, Qupperneq 1
Jafnaðarstefnan
er stefna
alþýðunnar
ALÞYÐ UB LAÐ
Verzlið við þá, sem
auglýsa í Alþýðublaði
Hafnarffarðar
IHIAJF NAira IFJJAviraiD)Æira
XXI. ÁRGANGUR
HAFNARFIRÐI, 24. NOVEMBER 1962
14. TOLUBLAÐ
Hvers vegna er „brádabirgðauppgjörið“ leyniskjal Sjálfstæðisflokksins?
Hefur skuldlaus eign bæjarsjóðs aukizt um
rúmar 20 milljónir króna s.l. 4 ár?
Hvers vegiui
reykvískt
fyrirtæki?
Oft heyrist um það spurt,
hvers vegna Landleiðir hf.
sé skráð í Reykjavík og hafi
bækistöðvar sínar þar. Af
einhverjum ástæðum munu
forráðamenn fyrirtækisins
eigi hafa talið sér fært að
fhjtja reksturinn hingað í
bæinn. Hverjar þessar ástæð-
ur eru virðist hulinn leynd-
ardómur, en okkur Hafnfirð-
ingum finnst eðlilegt, að fyr-
irtæki, 'sem byggir hag og af-
komu sína að langmestu
leyti á fjármunum frá bæjar-
búum, sé staðsett hér í Firð-
inum og greiði hér opinber
gjöld.
En hvernig væri annars að
bæjarstjórinn okkar hlutaðist
til um þessi mál? Honum ætti
að vera hæg heimatökin, þar
sem hann og forstjóri Land-
leiða munu vera sameigend-
ur að reykvísku gróðafyrir-
tæki.
Ferðir
innanbæjar
A sl. hausti hófust strætis-
vagnaferðir innanbæjar. Þáver-
andi bæjarstjóri, Stefán Gunn-
laugsson, vann ötullega að því
mali og kom því í framkvæmd,
þrátt fyrir nokkra tregðu af
halfu ráðamanna Landleiða.
Það hefur þegar sýnt sig, að
þessar innanbæjarferðir voru
mðnar tímabærar, enda hafa
þ*r komið fjölda bæjarbúa í
goðar þarfir. Væri athugandi,
bv°rt ekki mætti fjölga þessum
b'iðum og láta þær ná til enn
bleiri bæjarbúa en nú á sér stað.
|F«F.J. í nafnarfirði
il| beZcZur félagsfund í
||j Alþyðuhúsinu sunnudag-
j|j {nn 2. des. kl. 2.30 e. h,
lll Ejölmennum á fundinn.
STJÓRNIN
í Hamri frá 3. nóv. sl. er það
eftir bæjarstjóranum, Hafsteini
Baldvinssyni, að „vanskilaskuld-
ir“ bæjarsjóðs hafi numið a. m.
k. 13% milljón króna, þegar
hann tók við.
Það var haft eftir bæjarstjór-
anum, að þessar tölur byggð-
ust á uppgjöri, er hann hefði
látið gera og miðað við 30.
júní. Hefur hann um þetta
mörg orð og stór og vitnar
ótrauður til þessa „bráðabirgða
uppgjörs". Ekki höfðu bæjar-
fulltrúar fengið „uppgjöí" þetta
í hendur og hafa ekki enn feng-
ið og hafa þó farið þess á leit.
En þegar bæjarfulltrúar vilja fá
plaggið í sínar hendur, þá
bregður svo kynlega við að bæj-
arstjórinn fer undan í flæmingi
og virðist alls ekki undir það
búinn, að fá bæjarfulltrúunum
þetta „reikningsuppgjör“ sitt og
er helzt á honum að skilja að
„uppgjörið" sé svo lauslegt að
ekkert sé á því að byggja fyrir
bæjarfulltrúa. Þetta séu bara
bráðabirgðatölur, sem talsvert
geti rokkað til og frá. Hins veg-
ar liafa þær að hans dómi verið
frambærilegar fyrir félagsmenn
í landsmálafélaginu Fram og er
það út af fyrir sig nokkur dóm-
ur, hvaða augum bæjarstjórinn
lítur á þann félagsskap. Ef til
vill hefur bæjarstjórinn alls ekk-
ert ætlazt til að þetta „uppgjör"
hans kæmi fyrir almenningssjón-
ir í Hamri. En gert er gert, og
er þetta ekki í fytsta skipti, sem
Hamar kemur flokksmönnum
sínum í ógöngur.
Bæjarstjórinn, Hafsteinn Bald
vinsson, er staðinn að því að
fara með dylgjur um fjármál
bæjarins á opinberum vettvangi.
Þess vegna stendur hann nú
frammi fyrir þeirri spurningu,
hvers vegna er „uppgjörið" ekki
lagt á borðið? Hvað er það í
því, sem hann vill ekki að sjá-
ist? Hvað fjárupphæðir eru það,
sem hann kallar „vanskilaskuld-
ir“? Á því hefur hann enga
viðhlítandi skýringu gefið.
Alþýðuflokkurinn hefur
hreinan skjöld í þessu máli.
Þess vegna bíður hann þess, að
endanlegir og endurskoðaðir
reikningar komi fram. Á þeim
og engu öðru er hægt að byggja
raunhæfar umræður um fjármál
bæjarins.
Og þó að Sjálfstæðisflokkur-
inn láti búa til eitthvað, sem
halin kallar „býáðabirgðaupp-
gjör“ bæjarsjóðs, og vitni fjálg-
lega til, en vilji hins vegar ekki
leggja fram, þá lætur Alþýðu-
flokkurinn sér hægt um slík
vinnubrögð. Hann mun hér eft-
ir sem hingað til byggja rök
sín á staðreyndum, þeim stað-
reyndum sem fyrir liggja hverju
sinni. En hér í þessu máli hefur
Sjálfstæðisflokkurinn ekki feng-
izt til að leggja neinar stað-
reyndir á borðið. Hann hefur
ekkert það uppgjör, sem hann
þorir að leggja fram fyrir al-
mennings augu. Og eftir því
taka allir Hafnfirðingar.
Það liggur fyrir, að í maí-
mánuði sl. var reikningsuppgjöri
(Framháld á bls. 3)
Stálskipasmíði í Hafnarfirði?
Margir Hafnfirðingar hafa
haft áhuga á að hér í Firðinum
skapaðist aðstaða fyrir viðgerð-
ir og nýsmíði stálskipa og var
það mál m. a. á stefnuskrá Al-
þýðuflokksins hér í bæjarstjórn-
arkosningunum í vor. Nú hefur
einn af bæjarfulltrúum Alþýðu-
flokksins, Vigfús Sigurðsson,
flutt eftirfarandi tillögu í bæjar-
ráði:
„Þar sem sýnt er, að allt not-
hæft land er senn á þrotum við
Hafnarfjarðarhöfn, samþykkir
bæjanáð að fela skipulagsnefnd
ásamt hafnamefnd og bæjar-
verkfræðingi að gera sem fljót-
ast athugun og tillögur um
heppilegan stað fyrir dráttar-
brautir fyrir allt frá 500 til 2000
smálesta skip. Jafnframt verði
ætlað nægilegt landrými fyrir
hliðargarða og aðra nauðsyn-
lega aðstöðu fyrir viðgerðir og
nýsmíði stálskipa.
Jafnframt samþykkir bæjar-
ráð að láta athuga sem fyrst
alla möguleika til að slíkt fyrir-
tæki verði stofnsett í Hafnar-
firði sem fyrst.“ Þessi tillaga
Vigfúsar Sigurðssonar var sam-
þykkt í bæjarráði.
Á að svíkja í iþróttahúsmálinu?
í
■i
■:
Hafnarfjarðaríhaldið hef-
ur á undanförnum vikum
verið að sýna hug sinn til
íþróttaæskunnar hér í bæn-
um. Hefur bæjaiMjóri setið
á rökstólum með íþrótta-
nefnd og ýmsum aðilum, sem
hagsmuna liafa að gæta í
þessu máli, og nú síðast með
íþróttanefnd, íþróttafulltrúa
ríkisins og Gísla Ilalldórs-
syni arkitekt og Sigurði Thor-
oddsen verkfræðingi. Á þess-
um fundum hefur sá vilji
Framsóknaríhaldsins að
minnka salarstærð hússins og
fækka áhorfendasætum, kom
ið mjög berlega í ljós.
Auk þess sækir það fast að
láta íþróttahúsið víkja af
þessum stað fyrir fjárgróða-
sjónarmiðum flokksgæðinga
sinna.
Vegna eindreginnar and-
stöðu íþróttahreyfingarinnar
og Alþýðuflokksins hefur það
nú látið undan síga a. m. k.
í bili.
Þess vegna hefur það nú
fallist á að fela Gísla Hall-
dórssyni og Sigurði Thorodd-
sen að athuga möguleika á
að gera bygginguna ódýrari,
án þess þó að notagildi henn-
ar sé verulega skert. Það er
og hefur verið krafa íþrótta-
mamia og Alþýðuflokksins,
að leikvangur hússins verði
ekki minni en 20X40 m. Og
nú virðist þó svo komið að
Framsóknaríhaldinu hér í
bænum virðist Ijóst, að ann-
að og minna er bein móðgun
við hafnfirzka handknatt-
leiksmenn, sem svo langt
hafa náð í íþrótt sinni.
Hafnfirzkir íþróttamenn
fögnuðu því allir sem einn er
framkvæmdir við íþróttaliús-
ið hófiist og þóttust eygja
þarna farsæla lausn liins
langþráða óskadraum síns.
Og fyrir kosningar í vor
þagði Framsóknaríhaldið um
fyrirætlanir sínar í þessu
máli. Menn voru meira að
segja látnir vitna um hið
gagnstæða. En nú átti að
bregða fæti fyrir málið og
tefja það um ófyrirsjáanleg-
an tíma. En þá rak það sig
á samstöðu hinna hafnfirzku
íþróttamanna og liefur því
dregið ‘saman íhaldsseglin
sín.
Það er því einhugur og
stefnufesta íþróttahreyfingar-
innar sem fyist og fremst
getur hindrað svik Fram-
sóknaríhaldsins í bænum í
þessu brýna hagsmunamáli
liafnfirzkrar æsku.
: