Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.11.1962, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFN ARFJARÐAR
Kveníélag Alþýðuflokksins
i Hafnarfirði 25 ára
Kvenfélag Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði var stofnað hinn 18.
nóvember 1937, og varð því 25
ára 18. nóvember sl. Fyrstu
stjórn þess skipuðu: Sigurrós
Sveinsdóttir, formaður, Una
Vagnsdóttir, Sigríður Erlends-
dóttir, Amfríður Long og Guð-
rún Nikulásdóttir. Félagið var
stofnað til þess að vinna að mál-
um Alþýðuflokksins og hefur
félagið ætíð verið trútt þessu
markmiði sínu og skilað ágætu
starfi. Þau er ekki ófá málin,
sem kvenfélagið hefur haft for-
ystu um að koma í framkvæmd
til hagsbóta fyrir hafnfirzkar
húsmæður og hafnfirzka æsku.
Þá hefur félagið og lagt hinum
almennu umbótamálum Al-
þýðuflokksins ómetanlegt lið á
liðnum árum.
Félagið minnist þessara tíma-
móta í kvöld í Alþýðuhúsinu
og munu fylgja þeim þar marg-
ar hlýjar heillaóskir í tilefni af-
mælisins. Núverandi stjórn fé-
lagsins skipa þessar konur: Þór-
unn Helgadóttir, formaður,
Guðrún Guðmundsdóttir, Sig-
ríður Erlendsdóttir, Svanfríður
Þórunn Helgadóttir,
form. félagsins
Eyvindardóttir og Þuríður Páls-
dóttir.
Þennan aldarfjórðung, sem
félagið hefur starfað, hefur Sig-
ríður Erlendsdóttir óslitið verið
gjaldkeri félagsins og mun
fremur sjaldgæft að menn skili
svo langri og mikilli félagsþjón-
ustu.
Alþýðublað Hafnarfjarðar vill
færa félaginu beztu heillaóskir
á þessum tímamótum þess.
Árni heimtar - Hafstcinn neitar
Einn ai bæjaríulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins rekur mál gegn bæjar-
félaginu og hagsmunum þess
Mönnum er enn í fersku
minni, þegar Ilamar rauk upp
í vor og gerði það að blaða-
máli, að þáverandi bæjar-
stjóri Stefán Gunnlaugsson neit-
aði að greiða tafarlaust fjár-
heimtukröfu, sem Arni G. Finns-
son gerði á hendur bæjarsjóði
f. h. Ásgeirs Long. Taldi bæjar-
stjóri, Stefán Gunnlaugsson,
þessa fjárheimtu svo hæpna, að
ekki væri stætt á því fyrir bæj-
arsjóð að verða við henni at-
hugasemdalaust. Rak þá Ham-
ar upp mikið ramakvein og kall-
aði þessar aðgerðir þáverandi
bæjarstjóra „pólitíska ofsókn“,
sem varla ætti sinn líka, og
gerði málið að blaðamáli. Þeg-
ar Hamar hafði heimtað með
þessu opinberar umræður um
Hvað tefur byggingu biðskýlis
við Strandgötuna?
Á sl. vori voru biðstöðvar
strætisvagnanna fluttar frá Bæj-
arbíói og Apótekinu og sam-
einaðar í eina biðstöð gegnt
húsinu nr. 19 við Strandgötu.
Forsaga málsins var sú, eins og
öllum er kunnugt, að á sl. ári
var Strandgatan breikkuð með-
fram Thorsplaninu, frá verzlun-
arhúsi Kaupfélags Hafnfirðinga
að Linnetsstíg. Sú framkvæmd
stórbætti fyrir allri umferð og
skapaði mönnum aðstöðu til að
leggja bílum sínum við götuna
í mun ríkari mæli en áður var.
Er lokið var breikkun göt-
unnar á umræddu svæði, þótti
sjálfsögð ráðstöfun að flytja bið-
stöðvarnar frá Apótekinu og
Bæjarbíói og sameina þær á áð-
urnefndum stað. Sá var þó ljóð-
ur á að biðskýli vantaði, en
menn bjuggust við að fljótlega
yrði bót á því ráðin og fengust
ekki um, enda fór sumar í hönd.
Ráðamenn Landleiða höfðu líka
skuldbindið sig til að reisa skýl-
ið á sinn kostnað, og því virt-
ist málinu borgið. En svo bregð-
ast krosstré sem önnur tré. Bið-
skýlið er ókomið enn og allt
bendir til, að þeir Landleiða-
menn ætli enn um sinn að láta
sitja við orðin tóm í þessu efni.
Og því er ástæða til að spyrja:
Hvað tefur byggingu biðskýlis-
ins? Ætla forráðamenn Land-
leiða að láta ár og daga líða
án þess að hefja framkvæmdir?
Við, sem þurfum á þjónustu
strætisvagnanna að halda, erum
orðin leið á að bíða eftir
„strætó“ í haustrosum og vetr-
arkuldum á bersvæði Thors-
plansins.
>♦♦♦♦♦♦♦♦
Ihaldsloppan I vasa launþegans
„Hæsta útsvarsupphæð sem lögð hefur
verið á í Hafnarfirði var á lögð við síð-
ustu útsvarsálagningu" segir Hamar 3. nóv.
s.l. og aldrei þessu vant rataðist blaðinu
þar satt orð á munn. Þetta var eitt fyrsta
verkið, 'sem núverandi meirihluti kom í
framkvæmd eftir valdatöku sína. En Ham-
ar segir ekki söguna alla. Hann gleymir
alveg að geta þess, að jafnframt þessu var
mótuð ný stefna í álagningu útsvara hér
í bæ. Hann gleymdi að geta þess, að nú
þótti ástæða til að leggja útsvar á allt nið-
ur í 23 þúsund króna nettótekjur í stað 25
þúsunda áður. Hann gleymdi líka að geta
þess, að nú voru útsvörin á launþegum
hækkuð hlutfallslega, en stórrekstri í bæn-
um hins vegar ívilnað í álagningunni. Hann
gleymdi líka að geta þess, að fasteigna-
skatturinn á bæjarbúum var stórhækkað-
ur, og eru nú tilkynningar um hann að
berast bæjarbúum, svona eins og til glaðn-
ingar rétt fyrir jólin. Hamar gleymdi líka
að geta þess, að fasteignaskatturinn varð
miklu hærri en ráð var gert fyrir í fjár-
hagsáætlun ársins 1962. en það þótti samt
engin ástæða til að lækka heildarupphæð
útsvaranna, 'sem því nam. En hins vegar
gleymdi Hamar ekki að geta þess, að hann
væri þegar farinn að óttast gerðir flokks-
manna sinna, því að hann er einum 5
mánuðum eftir valdatöku þeirra í bæjar-
stjórn farinn að sverja fyrir verk þeirra.
Og bæjarbúar geta farið að velta því fyrir
sér, hve þau verða mörg verkin íhalds-
mannanna, sem þeir vilja sverja af sér eft-
ir 4 ár við stjómvölinn í bænum, þegar
þeir eru teknir að afneita verkum sínum
strax eftir 5 mánaða stjórn. Eða eiga verk
þeirra kannski eftir að hrekja þá frá völd-
um, áður en kjörtímabili þeirra rennur út?
málið, benti Alþýðublað Hafn-
arfjarðar á að það færi illa sam-
an, að vera í senn í kjöri sem
bæjarfulltrúi og jafnframt að
reka með hörku og óbilgirni
hæpnar fjárheimtur á hendur
bæjarsjóði.
Nú fóru kosningarnar svo, að
Sjálfstæðisflokkurinn tók stjórn
bæjarins í sínar hendur að þeim
loknum og réðu flokksbróður
sinn fyrir bæjarstjóra. Og ör-
Iögin settu Árna G. Finnsson
öðru hverju í bæjarstjórn. Það
hefði því mátt ætla, að sam-
herjar hans þar tækju kröfum
hans með skilningi og velvild,
væru þær ekki fram úr hófi
ósanngjarnar. En í þessu máli
hefur ekkert samkomulag náðst.
Bæjarstjórinn Hafsteinn Bald-
vinsson taldi fjárkröfur Árna
Grétars slíkar, að hann gæti
ekki samvízku isinnar vegna
orðið við þeim, þar sem þær
brytu í bága við hagsmuni bæj-
arins. Þessu vildi 1. varamaður
Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn ekki una og höfðaði því
mál á hendur bæjarfélaginu,
sem hann átti að gæta hags-
muna fyrir. Hefur þetta að von-
um vakið mikla furðu meðal
bæjarbúa.
Og nú velta bæjarbúar þeirri
spurningu fyrir sér, hvort Árni
Grétar hafi í þessu máli tekið
hagsmuni sína fram yfir hags-
muni bæjarfélagsins eða hvort
Hafsteinn Baldvinsson bæjar-
stjóri sé hér að héfja „pólitíska
ofsókn" gegn þessum flokks-
bróður sínum og þá hvers
vegna.
Ilaiistmdtið
Haustmót Hafnarfjarðar i knatt-
spyrnu fór fram í haust, en það hefur
legið niðri um allmörg ár. Knatt-
spyrnufélagið Ilaukar sáu um mótið
og fórst það myndarlega úr hendi.
Leikið var í 5 aldursflokkum og urðu
úrslit þessi:
1. fl. Haukar - FH 1:0
2. fl. Haukar - F'H 7:0
3. fl. Haukar - FH 1:2
4. fl. Iiaukar - FH 0:3
5. fl. Haukar - FH 1:0
Verðlaunaafliending fór fram s.l.
laugardag í Alþýðuhúsinu i Hafnar-
firði. Hófst það kl. 4 e. h. með sam-
eiginlegri kaffidrykkju, sem Yngvi
Rafn Baldv.insson form. ÍBH stjórn-
aði. Við þetta tækifæri voru nokkrar
ræður fluttar og síðan fór fram verð-
launaafhending. Veitt voru verðlaun,
sem eftirfarandi fyrirtæki gáfu: Dröfn
h.f., Steinull h.f., Nýja Bílstöðin s.f.,
Bílaverkstæði Hafnarfjarðar h.f. Auk
þessara fyrirtækja gáfu þeir Bjarni
Björnsson og Vilhjálmur Skúlason
ágæta verðlaunagripi.
i STUTTU MÁLI
STEFÁN JÓNSSON er viðræðuglaður maður,
svo sem kunnugt er. Undanfarið liafa tjmsir kunningjar ltans
spurt hann, hvort ekki væri hætta á að Framsóknarmenn fyrtust,
þegar þeir fengju engu að ráða um gang hæjarmála og ryfu þess
vegna samstarfið. Þá hefur Stefán bara brosað í kampinn og
sagt kímileitur: „Rjúfa samstarfið, nei, 'sei, sei, nei. Fúll sér sko
um Jón.“
Á SÍÐASTA fundi bæjarstjórnar kom fram, að
á árinu 1961 var 5 þúsund króna halli á Blómabúðinni Sóley og
um 10 þúsund krónur það sem af er þessu ári. Var því satn-
þykkt tillaga með öllum greiddum atkvæðum að leggja hana
niður.
★
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDINUM á þriðjudag-
inn kom það fram, að framlag Bæjarbíós til Sólvangs á árinu
1961 hafði numið 350 þúsundum króna.
NÚ FIAFA A. M. K. þrír menn verið ráðnir við
Bæjarútgerðina í stað tveggja fyrrverandi forstjóra og hafa geng-
ið hinar mstu tröllasögur um bæinn um laun þeirra. Hiris vegar
liefur Hamar engar upplýsingar gefið um málið og hefur liann
þó annars mjög gaman að velta fyrir sér tölum, ekki sízt þegar
Bæjarútgerðin á í hlut. Væri fróðlegt að Hamar upplýsi bæjar-
búa um þetta efni og 'segði þá jafnframt, liversu mikið þeh'
íhaldsmennirnir hefðu sparað fyrirtækinu með þessum ráðstöf-
unum sínum.