Brjef til Y.-D.-drengja frá K.F.U.M. í Reykjavík - 16.01.1927, Blaðsíða 4

Brjef til Y.-D.-drengja frá K.F.U.M. í Reykjavík - 16.01.1927, Blaðsíða 4
4 henni; eptir prjá mánuði fengu þeir brjef frá ræðismann- inum? að prátt fyrir auglýsingar í blöðunum hefði enginn gefið sig fram, nje heldur komið með nokkrar upplýsingar. Hugsanlegt var að ástæðan til pess, meðal ef til vill margra annara orsaka, væri sú að konan hefði ekki látiú uppi sitt rjetta nafn við fólkið, sem hún bjó hjá, af mis- skildum ótta t'yrir pví að hún gjörði manni og börnum minnkun með pví að ganga í vinnumennsku. Nú liðu pannig nokkrir mánuðir að engar fregnir komu. Peir feðg- arnir voru ákaflega niðurbeygðir, sjerstaklega yngri dreng- urinn. Hvað átti til bragðs að taka? Föðurnum hafði fyrst dottið í liug að ieggja sjálfur af stað í konuleit, en hver átti pá að lita eptir drengjunum og hvernig færi um at- vinnuna? Eldri sonurinn gat heldur ekki farið, pví nú var hann farinn að vinna fyrir kaupj, og máttu þeir ekki af pví missa. Frh. -----«•> öX*.-- Sumir drengir gleyma sjer stundum, þegar peir eru margir saman og láta rnjög dónalega; ráðast á fólk, sem gengur eptir götunni og láta dynja snjóbolta á pað. Góðir Y-D-drengir eru ekki með í þeim ósóma. Sumir drengir hanga aptan í bílum, sem er stórhættulegt. Sumir gera pað, sem verra er: kasta hörðum snjóboltum í bíla, sem eru á ferð. Pað getur vald- ið stórslysi. Drengir, sem gera pað, ættu að fá mjög stranga refsingu. — Góðir drengir ættu að aðvara fjelaga sínar sem pað gera, og ef þeir vilja ekki hætta við slíkan ósóma, ættu þeir að hætta við að vera með þeiin. Ef einhver verður var við, að einhver Y-D-drengur hafi ekki fengið petta blað, pá geri hann sveitarstjóra sínum aðvart. Engir aðrir en Y-D-drengir fá petta blað. — Pað kemur í staðinn fyrir sunnudagsfundina, meðan fundir eru ekki baldnir. Prentsmiðja Ljósberans.

x

Brjef til Y.-D.-drengja frá K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brjef til Y.-D.-drengja frá K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.