Heimilisblaðið - 01.09.1894, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.09.1894, Blaðsíða 7
HEIMILISBLAÐIÐ. 8? mannalýðnum í þessu máli, ef hún snerist eindregið á það band. Enginn þarf það að efa. Það sýnir og reynslan ann- arsstaðar, einkum í Ameríku. Það kemur líka heim, að þar fær kvennfólk allt annað uppeldi en hjer, margfalt meiri og betri menntun. Girnilegt hlutverk ætti það að vera fyrir hið nýja Kvenn- fjelag íslenzka, að taka að sjer bindindismálið. Taka það að sjer öðruvísi en bara í orði. Oss brestur eigi vinsamleg orð og ummæli, bindindismenn, úr ýmsum áttum. En þau eru ódrjúg á metum til þeirra mikils háttar framkvæmda, er hjer er um að tefla. Jafnvel af vörum þingmanna þeirra í sumar, er sýndu sig hvað fáfróðasta og þverbrotnasta gagnvart nýti- legum framkvæmdum til lækningar áfengisbölsins, flutu hun- angssæt velvildar-orð lil bindindishreifingarinnar. En hvað stoðar oss slíkt? Nei. Hugsi Kvennfjelagið til að skipta sjer eitthvað af því máli, þarf það að gera meira en að skrafa fagurlega um það í eyru vor. Þar verða að fylgjast að orð og gjörðir. Vjer sjáum nú, hverju fram vindur. ---------------- „Eykur glebi í landinu“(!). Innan um ýmsar hjegiljur aðrar, er andþæfendur laga- frumvarpsins um áfengisbannssamþykktir á alþingi í sumar höfðu fyrir sig að bera, var sú ein, frá dr. Valtý Guðmunds- syni háskólakennara, að víndrykkja ylti gleði í landinu. Guðl. Guðmundsson sýslumaöur svaraði því sem öðrum fáfræðis- og vanhyggjufyrirslætti þeirra fjelaga vel og rök- samlega. Hann kvaðst óska, að dr. V. gæti gefið skýrslur um, hve margar konur og börn á landinu hefði borið þung- an harm vegna ofdrykkjunnar, og ef hann gæti sannað, að sú sorg vægi ekki upp á móti þeirri gleði, er áfengi hef'ði í för með sjer, kvaðst hann mundi fúslega undirskrifa orð dr. V. En þó að hann, þ.e. dr. V., annar eins eljumaður og hannværi, væri að »hjeðan í frá og að eilífu amen«. þá gæti hann ekki komið með skýrslu, sem sannáði það. »Það er hjákátleg skoðun«, bætti ræðumaður við, »að menn geti ekki verið glaðir nema fullir; jeg hef líka reynslu fyrir mjer í þessu

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.