Heimilisblaðið - 31.10.1894, Qupperneq 4
92
•HEIMILISBLAÐIÐ.
skuli vera að eyðileggja, í skjóli laganna, fjármuni meðbræðra
sinna, heimilislán þeirra, heilsu þeirra, lít og sálarfrið, og strá
allt í kringum sig synd og sorg og glötun, þar sem hinir 332
vinna hver á sinn hátt að gagni lands og lýðs með arðbærri
iðju ?
Þeir, þessir 332, byggja upp, en áfengissalarnir rífa niður.
Þeirra iðja, þessara 332, gerir ekki viðskiptamenn þeirra að
ólánsmönnum um tíma og eilífð, þar sem hans atvinna, þessa
eina, rýir út frá sjer, og er gróðrarreitur blóts og formælinga,
lyga, raups og kláms.
Hvergi í mannfjelaginu er meiri ólifnaður en í og hjá
drykkjukránum. Sumstaðar skera menn þar líka upp heilsu-
tjón og efnaglötun.
Allt þetta eiga þessir 332 að gera sjer að góðu. Þeir
eiga að láta þennan eina mann gjöra það, sem honum veitir
stundar-\\a,g, en vinnur öllum hinum mein, ýmist beinlínis eða
óbeinlínis.1
Þeir mega ekki einu sinni tæpta á því, að slíkt sje nein
skerðing á persónulegu frelsi. Hann segir sína atvinnu lög-
lega og heiðvirða (!).
Þannig er og þannig verður, þangað til hver skynsamur
maður, hver heiðvirður og rjettsýnn maður, hver mannvinur
og hver kristinn maður rís upp í gegn hinni auðvirðilegu og
illu áfengissölu, sem ekki ætti að tolla, heldur banna gersam-
lega. Veitingahúsum og ölkrám ætti að loka, fyrst frá laug-
ardagskveldum til mánudagsmorgna, og síðan frá mánudags-
morgnum til laugardagskvelda, — eins og Sir Wilfrid Lawson
komst einu sinni að orði«.
Nokkur einföld vanheilsuráð.
Það þykir sannreynt, að heilræði lærist mönnum öllu
betur i öfugmæla-búningi en hins vegar, eins og t. d. háð er
margsinnis mikið betri siðferðisleg kennsluaðferð en alvarleg
vandlæting.
Heilbrigðisráð lesa menn þrásinnis á prenti og — láta inn
um annað eyrað og út um hitt. Þeir samsinua þeim, en fara
ekki hót eptir þeim.