Þytur - 17.06.1955, Page 1

Þytur - 17.06.1955, Page 1
r SIGLFIRZKT BÆJARMÁLABLAÐ 1. tölublað Föstudagurinu 17. júní 1955. 2. árgangur. ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNÐ beinir þeim tilmæium til almennings, að liann f jölmenni við hátíðahöldin 17. júní, kaupi merki dagsins og dagskrána, þar sem öll dagskráratriði eru auglýst. Þá hvetur nefndin alla, sem geta, að draga fána að liún á þjóðhátíðardaginn. Félagasamtök eru beðin að mæta með fána sína kl. 13 á Hafnarbryggjunni. ÞJÓÐHÁTlÐARNEFNDIN Siglufjörður „á sér enn vor ef fólkið jþorir // Landnám Siglufjarðar „tílfr víkingr ok Ölafr bekkr fóru samskípa til íslands. Úlfr nam Úlfsdali ok bjó þar. Ólafr bekkr var sonr Karls ór Bjarkey af Hálogalandi. Hann vá Þóri inn svarta ok varð fyrir þat útlægr. Ólafr nam alla dali fyrir vestan ok Ólafsfjörð sunnan til móts við Þormóð ok bjó at Kvíabekk. — Hans synir váru þeir Steinmóðr faðir Bjarnar ok Grímólfr ok Arn- oddr, faðir Vilborgar, móður Karls ins rauða. Þormóður inn rammi hét maðr. Hann vá Gyrð, móðurföður Skjálgs á Jaðri, ok varð fyrir þat land- flótti ok fór til Islands. Hann kom skipi sínu í Siglu- fjörð og sigldi inn at Þormóðs- eyri ok kallaði af því Siglufjörð. Hann nam Sigluf jörð allan á milli Úlfsdala ok bjó á Siglunesi. Hann deildi um Hvanndali við Óláf þekk ok varð sextán manna bani áðr þeir sættust, en þá skyldi sitt sumar hvárr liafa. Þormóðr var sonur Haralds víkings, en hann átti Arngerði, systur Skíða ór Skíðadal. Þeirra synir váru þeir Arngeirr inn hvassi ok Narfi, faðir Þrándar, föður Hríseyjar-Narfa, ok Alrekr, er barðist í Sléttulilíð við Knörr Þórðarson“. (Landnámabók) —oOo— ibúatala Siglufjarðar FYRR OG NÚ 10 síldarleysisár og samdráttur atvinnulífs hafa þjakað Siglufjörð. Vöntun á vinnuafli í ört vaxandi bæjum suðvestur-landsins, hefur verkað sem voldugur segull, sem dregur fólkið suður í starf og líf. Þetta er að vissu marki eðlilegt og skiljanlegt, en frá þjóðhagslegu sjónarmiði óheilbrigt, er tæmast byggðir og ból af fólki, hvar áður var blómlegt líf. Sigluf jörður, sem byggði tilveru sína á síld, mikilli síld og engu nema síld, hefur svo sannarlega átt í vök að verjast. Og íbúum bæjarins hefur fækkað frá 1948, en ekki mikið og ekki ört. Þrátt fyrir allt og allt eru íbúar Siglu- fjarðar nú svipað margir og t.d. í byrjun síðari heimsstyrjaldar- innar 1940—1942 Til fróðleiks og samanburðar birtir ,,Þytur“ hér tvær saman- burðarskýrslur, merktar A og B. Fyrri skýrslan sýnir íbúatölu Siglufjarðar á árunum 1941—‘54. Seinni skýrslan sýnir íbúatölu ís- lenzku kaupstaðanna á árinu 1954 Má af skýrslum þessum sjá, að enn heldur gamli Siglufjörður velli og er sennilega kominn yfir versta kafla sögu sinnar, því þegar er farið að vora í Siglufirði. A. íbúatala Siglufjarðar. 1941 — 2833 1942 — 2790 1943 — 2841 1944 — 2873 1945 — 2877 1946 — 2957 1947 — 3007 1948 — 3124 1949 — 3092 1950 — 3048 1951 — 2980 1952 — 2921 1953 — 2842 1954 — 2786 B. íbúatala kaupstaöanna 1954. Reykjavík ...... 61.829 Akureyri......... 7.472 Hafnarfjörður .... 5.724 Vestmannaeyjar 4.056 Kefíavík ........ 3.437 Akranes ......... 3.108 Siglufjörður .... 2.786 (Framhald á 4. síðu) LANQSBJáÁSAi i( 20309? ÍSLANDS

x

Þytur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þytur
https://timarit.is/publication/425

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.