Þytur - 17.06.1955, Blaðsíða 3
r> y t t; r
3
í
fDjódkátídin
17- jÚtlí 1955
Okkar gæfumesta mann
metum við nú hann, sem vann
þjóð, sem átti ekkert vald,
ádrátt launa, tign né gjald.
Sögu liennar, lög og lönd,
leitaði uppi í trölla hönd.
Tók frá borði æðstan auð:
ástir liennar, fyrir brauð.“
(St. G. St.)
Þcgar fagnar þjóðin öll,
þá cr bjart um íslandsf jöll.
Fornra stöðva vitjar vorið,
vermir Iandið endurborið,
svo að klökkna klaki og mjöll.
Lofgjörð syngur Iandsins harpa,
leika börn í grænum varpa.
Gróðrarmáttur, gömul vé,
glæða lífi blóm og tré.
Þó að vetur Þorrakaldur
þylji margan svartagaldur,
eiga bæði Sól og Saga
sína fögru júní daga.
Andi fjallsins, frjáls og skyggn
fagnar þeirra dýrð og tign.
Stundum getur þyngsta þraut
þjóðum markað sigurbraut,
vafið saman veika þætti,
valdið nýjum aldarhætti. —
Þaimig vekja neyð og náð
nýja krafta, dýnri ráð.
Davíð Stefánsson
„GLÖGGT ER GESTSAIIGAB“
Þegar við Siglfirðingar ferð-
umst til annarra kaupstaða t.d.
Ólafsfjarðar, Húsavíkur eða Akur
eyrar, þá tökum við þegar eftir
því, að utanhúss umgengnismenn-
ing þessara staða er á allmiklu
hærra stigi en okkar. Hús eru
snoturlega máluð utan. Þriflegir
grasblettir eða trjágarðar prýða
lóðirnar, og eitt eða annað er gert
til að gleðja auga þess, sem um
götuna fer.
Ósjálfrátt fáum við þá hug-
mynd, að íbúar þessara staða séu
þrifið og reglusamt fólk, sem vert
sé nánari kynningar. Hvernig er
svo ástandið hjá okkur í þessum
málum ?
Flestir muna vikuna fyrir stofn-
un lýðveldisins 1944 þegar Siglu-
fjarðarbær gjörbreytti um svip á
einni viku og aldrei hvorki fyrr
né síðar, hefur bærinn okkar litið
eins þrifalega og vinalega út. Þá
var áhuginn fyrir hendi, en því
miður hefur hann dvínað, og nú
er undirbúningur þjóðhátíðar
okkar lítið annað en það, sem
þjóðhátíðarnefnd og bærinn láta
gera, og máttvana hróp þessara
aðila í blöðum til bæjarbúa.
Þetta er illa farið. Gestir sem
um garð fara fá allt aðrar og
leiðinlegri hugmyndir um okkur
Siglfirðinga en efni standa til, því
til undantekninga má það kallast,
ekki er þrifalegt og vel um
gengið þegar inn fyrir dyrnar er
komið. Þó gæti svo farið, að þar
yrði breyting á til hins verra.
Hver veit nema, að við séum að
sljófga þrifnaðar og fegurðar-
smekk yngri kynslóðarinnar með
lélegri umgengnismenningu ?
Fyrir nokkrum árum var stofn-
að félag hér í bæ, er Menningar-
og fegrunarfélag Siglufjarðar
nefndist. Sá félagsskapur virðist
hafa átt örðugt uppdráttar, og
fékk hægt andlát, eftir að hafa
ráðið niðurlögum eins eða tveggja
fiskhjalla hér í bæ. Nú hafa fisk-
hjallarnir gengið aftur, ekki
aðeins einn eða tveir, heldur tugir,
að ógleymdu brotajárni, fjárliús-
um o.fl. svo eitthvað sé nefnt. Hér
þarf úrbóta við. Eldri kynslóðin
verður að gera hreint fyrir sínum
dyrum í bókstaflegri merkingu og
kenna hinu uppvaxandi fólki þá
umgengnismenningu, sem sæm-
andi er Siglfirðingum, og gætu
barna- og unglingaskólar gjarnan
ýtt undir þá viðleitni.
Þrifnaður og snyrtimennska er
aðalsmerki hvers manns, hvort
sem hann er ungur eða gamall. —
Og menningarbær getur enginn
kaupstaður kallast nema þrifnað-
ur sé bæði utan húss og innan.
Setjum því markið hátt og strengj
um þess heit, að gera Siglufjörð
þrifalegasta bæ á landinu, miðað
við þær aðstæður, sem hér eru.
Lúðrasveit í Siglufirði
Þegar hið glæsilega söngmót
kirkjukórasambands Eyjafjarðar-
prófastdæmis var haldið hér hinn
30. maí 1954 vakti það mikla
hrifningu meðal bæjarbúa, að með
í förinni var Lúðrasveit Akureyr-
ar. Lúðrasveitin spilaði á Ráð-
hústorgi frá kl. 4—5 þann dag,
öllum þeim fjöimörgu áheyrend-
um til mikillar ánægju, sem þar
voru mættir. Þetta atriði rifjar
upp fyrir manni, hve oft við Sigl-
firðingar höfum saknað þess að
hafa ekki hornamúsík á hátíðis-
dögum bæjarins og 17. júní, til
þess að auka fjölbreytni og liátíð-
leik.
Nú er það svo, að Siglfirðingar
eru orðnir langt á eftir öðrum
kaupstöðum, á þessu sviði, þrátt
fyrir ötult og árangursríkt starf
Karlakórsins ,,Vísis“ í þágu tón-
listar í bænúm. Hvernig væri nú
að liin dugmikla stjórn Vísis
ásamt stjórn tónlistarskóla Vísis,
hæfist handa á næsta hausti og
kæmi upp námskeiði fyrir unga
Siglfirðinga í meðferð blásturs-
hljóðfæra, sem svo gæti orðið
,,vísir“ að Lúðrasveit Siglufjarðar.
Karlakórinn ,,Vísir“ hefur á
undanförnum þremur áratugum
veitt Siglfirðingum fjölmargar
ánægjustundir, enda eru vinsældir
kórsins rniklar. Það mundi auka
vinsældir kórsins um allan helm-
ing ef hann gerðist einnig braut-
ryðjandi í meðferð blásturshljóð-
færa og yki þannig fjölbreytni
tónlistarlífsins í bænum.
Hér mun einnig fyrir nokkrum
árum hafa verið stofnað tónlistar-
félag, sem bæjarbúar hafa vægast
sagt lítil kynni af. Kannske að
samstarf gæti tekizt milli Vísis
og Tónlistarfélagsins um þetta
málefni, og ef til vill fjölbreyttari
tónlistarkennslu í bænum.
Síld í lém
ÍSLENZKUR FISKUR H. F.
BÆJARBRAGUR (Frh. af 2. s.)
námsöld. Hún er ýmist dimm sem
vetrarskammdegi eða björt sem
júnídagur, en alltaf merkileg og
lærdómsrík. Þessa sögu þarf að
skrá. Og hér þarf að koma upp
byggðasafni.
Þetta tvennt má ekki gleymast,
þótt lotið sé að lægri viðfangs-
efnum.
Nú er þjóðhátíð. Guði sé lof.
En gleymum því ekki, þegar við
hyllum ættjörðina, að minnast
heimahaganna, þess hluta hennar,
sem stendur okkur næst: Siglu-
fjarðar.
s.
eru alltaf fallegust í
VERZLUNINNI TÚNGÖTU 1
Ritsafn Jóns Tratisfa
og ýmsar aðrar bækur og bóka-
flokkar selt gegn afborgunum.
BÓKAVERZLUN
IIANNESAR JÓNASSONAR
Silicnte
bílabónið fræga, nýkomið.
VERZLUN
ÁSGEIRS JÓNASSONAR
NOTAÐUR EN GÓÐUR
barnavagn til sölu
Upplýsingar í síma nr. 13
n.k. mánudag.
Nýjar vörur
Fáum öðru livoru ýmsar nýjar
vörur á góðu verði. Atliugið verð
og gæði á þeim vörum, sein við
höfum, áður en bið ákveðið kaup
annars staðar.
VERZLUN
HALLDÓRS JÓNASSONAR
Siglf irðingar!
Nýlagnir og viðgerðir fram-
kvæmdar fljótt og vel.
Góðar vörur, gott verð.
INGÓLFUR ARNARSON
Rafvirkjaverkstæði Aðalgötu 8
Kvenkjólar
KVENDRAGTIR
POPLINFRAKKAR
SUNDBÖLIR o.fl. o.fl.
★
Aðalleiðin liggur um Aðalgötuna
inn í
AÐALBtÐINA