Good-Templar - 01.06.1902, Blaðsíða 1

Good-Templar - 01.06.1902, Blaðsíða 1
GOOO-TEMPLAB BLAD STÓR-STÍJKU ÍSLANDS A F I. 0. G. T. VI. AllG. REYKJAVÍK, JÚNÍ 1902. 6. BLAÐ. Bindindismanna-söng’ur eftir br. Friðrik Guðmundsson 24. nóv. 1901. Vor hugsjón er fögur og háleit og rétt. Vor' hugsjón á „Framtiður* starfsmark er sett. Vor hugsjón er samvaxin ættjarðarást, Sem aldrei til mannheilla-framsóknar brást. Vor ætlun og vilji er ákveðið starf, Og áhuga, varhygð og mannkærleik þarf Hver einasti að sýna á samvinnu leið, Og svo verður heiidinni framkvæmdin greið. Vort félag er lítið og fámennt, en þó Ef fastur er áhugi og viðleitni nóg, Þá vimium vér þjóðinni verulegt gagn Og víðfrægjum Reglunnar framkvæmdar-magn. Og störf okkar séu með laginni lund, Með lipurð og einlægni á sérhverri stund, Að innræta þjóðinni óvildar-geð Á áhrifum vínsins og böli þess með. Og störf okkar séu með staðfastri lund Að styðja hvert annað með hjálpfúsri mund, Með þolgóðri samvinnu, huga og hönd Að herja á Bakkusar ofdrykkju lönd.

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.