Muninn

Árgangur

Muninn - 17.04.1931, Blaðsíða 4

Muninn - 17.04.1931, Blaðsíða 4
4 MUNINN bókmennta og lista löngu fyrir daga Oaliteis, Lavoisiers ogjúliusar Pet- ersens, en hann flýgur nú. Ég hefi aldrei sagt, að það væri andlaust nám að nema um lifnaðarháttu dýra. En fræði þau, sem ég hefi numið hér í framhaldsdeildinni um bygg- ingu dýra, mun ég ávalt telja yfrið andsnauð. Halldór dásamar það, hve mikið sá ætti að geta lesið á hina »opnu bók náttúrunnar*, sem þekk- ingu hefir til þess. Með þessum náttúrubókalestri hlýtur hann að eiga við það, að nokkur þekking sé nauðsynleg til þess að geta athugað náttúruna, notið fegurðar hennar og stórfengleiks, kynnt sér hið fjöl- breytta líf, sem í henni hrærist og numið af þvf. Sú »þekking<, sem hann hér á við, hlýtur að vera hin æðri náttúrufræði sem kennd er í stærðfræðideildinni, því um hana var deilt. Með öðrum orðum, menn verða að þekkja byggingu og innsta eðli alls, sem þeir eiga að geta notið og numið af. Eftir þessu fá menn ekki fyllilega notið fegurðar blómanna, nema þeir viti af hvaða frumefnum þau eru gerð, ekki söngs fuglanna, nema þeir viti hvernig röddin myndast, ekki fegurðar fjallanna, nema þeir þekki bergtegundirnar i þeim og gott ef menn geta notið kvenlegrar fegurðar til fulls, nema þeir viti hve mikinn fluor eða fosfor drott- inn hefir þurft í það listasmíði. Nei, i fávizku minni ætla eg, að menn þurfi ekki að læra að stafa á >náttúrubókina< f >Helgakverinu< siðara eða annari slfkri bók til að vérða sæmilega stautfærir á hana. Ólærði maðurinn, sem með athygli hefir kynnt sér náttúruna og fjöl- breytni hennar, og af eigin reynd þekkir dýralifið, hefir numið miklu meira en hinn, sem hefir ætlað sér að sækja samskonar fróðleik í þurrar efnafræðiformúlur og numið utanað útlimafjöldann á hverju skorkvikindi. Ég vil að lokum benda á það, að latfnan og önnur mál eru lykill- inn að dýrmætustu fjárhirzlum, sem mannkynið hefir nokkru sinni safn- að í, þar sem fólginn er sá and- legi auður er bókmenntir nefnast. Hver sem öðlast lykilinn að fjár- hirzlum þeim, getur fengið þar gnægð sina, en þó skilið þær öðr- um eftir jafnfullar. Pekking í sögu og bókmenntum gera menn færari til að lifa í hvaða stöðu sem þeir svo standa. Hún glðggvar skilning- inn á sálarlifi manna, kostum þeirra og brestum, lífsbaráttu þeirra og tilfinningum. Með mönnum lif- um við allir og skilningur á manns- sálinni er okkur öllum nauðsynlegur. Pessvegna eiga málin að skipa önd- vegissessinn í öllum almennum fram- haldsskólum. Stærðfræðin er aftur á móti ein hinna mörgu greina, er mannsandinn hefir búið til. Nokkur þekking í henni er öllum nauðsyn- leg, en æðra stærðfræðinám getur aldrei haft jákvætt gildi fyrir aðra en þá, sem gæddir eru sérlegum áhuga á þeim fræðum. En land og þjóð hefir áreiðanlega í nánustu framtíð ekki þörf fyrir fleiri sér- fræðinga í stærðfræðilegum greinum, en stærðfræðideildin í Reykjavík kemst yfir að útskrifa Ölaíur Björnsson. 77/ uppfyllingar. Hún mænir hingað meðaumkunar- augum, og minnist þess að eg á hjartasorg. Já, þarna eru hjartagæði í haugum, og hugulsemin efst í þankaborg. Eg er af hennar augnaráði bundinn, og innst í hjarta vaknar gömul þrá, en sömu augum horfin hún á hundinn, sem hleypur þarna svangur til og frá. Hún klappar seppa, kollinn strýkur blakka. Ó, konuástin, dýrleg gjöf það er! Eg smelli í góminn færi mig í frakka og fer áður en klappað verður mér. A. r Oður til efsta bekkjan Nú tengjum bræður hönd við hönd og horfum fram á veginn. Par skína ykkar óskalönd svo iðgræn sólskinsmegin. Við aftanbjarmans blfða skin er bezt að kveðja gamlan vin. »Ó jerum, jerum, jerum ó quae mutatio rerum<. Pótt hverfi sól við sundin blá og svalan blási um vanga, þá fornra daga minnast má þar munablómin anga. í barmi geymið æskueld, sem yljar fram á hinnsta kveld »Ó jerum, jerum, jerum ó quae mutatio rerum«. Karl Isfeld. Inga litla. (Oustav Fröding). Syngdu, Inga litla, sðnginn fyrir mig því sál mín reikar döpur um æfinnar stig — mitt sinni er svo einmana í sorgum. Syngdu Inga litla sönginn fyrir mig. það svalar, huggar, friðar, að hlusta á þig. — Pað tendrar Ijós í lífsins skuggaborgum.. Syngdu Inga litla, syngdu fyrir mig, Mitt hálfa konungsríki er aðeins fyrir þig og auðæfin og allar mfnar borgir. En kærleikur eru’ auðæfin i hverri minni borg og hálfa konungsríkið er hluti af minni sorg. Seg Inga Iitla, ertu hrædd við sorgir? (Lausl. þýtt). Karl Strand. Ak. Prentsmiðja Odds Bjömssonar 1931

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.