Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 10.05.1944, Qupperneq 4

Muninn - 10.05.1944, Qupperneq 4
1 MUNINN V legt í þessum efnum er þetta: Þegar unglingurinn hefir hlaupið frá altar- inu eftir fermingu, þykist hann vera orðinn fullorðinn maður. Hann reyn- ir að ná kynnum eldri manna og vill þekkja þeirra lög og reglur. Og það er oft undravert að sjá, hvað sumir menn eru kærulausir og skeytingar- lausir gagnvart æskunni. Þeir virðast ekki geta rennt grun í hinn hverfula og reikandi hug æskumannsins. Eins og það er glæpur að limlesta varnar- lausan mann, þá er það og glæpur að kenna æskumanni að drekka. Enginn veit, nema allt hans líf verði ein klakaauðn eða brennandi eldur vegna þess fræs, sem sáð hefir verið. Athugið málið í einrúmi og sjáið hví- líkt verk — já, hvílíkt óhæfuverk — það er að svíkjast að barni foreldr- anna og láta óvitann ganga sjálfvilj- ugan í gildruna. Þér farið með músa- gildrur í dimma ganga og veiðið mýs í þær, af því að mýsnar vinna yður tjón. En hvers vegna veiðið þér einn- ig unglinginn, sem ekkert ógagn vinnur — hann, sem er afkvæmi kon- unnar, sem þú elskar — hann, sem er barn þitt — hann, sem á að erfa landið? Viljið ekki reyna að kenna barninu að lifa og lifa hamingjulífi? Margir hafa lifað þannig, að ef þeir ættu kost á því að endurfæðast og verða aftur barn í vöggu, þá myndu þeir kjósa allt annað líf. Hversu mikið gætum vér ekki lært af hinum gömlu, ef þeir vildu í ein- lægní segja oss frá villum sínum og veikleika og ef vér vildum nema. Líf vort er svo dýrmætt, að það er heilög skylda hvers einasta manns að varð- veita heilsu sína, en njóta lífsins samt. Enda er það mála sannast, að sú gleði, sem menn njóta á kostnað heilsunnar, er sú mesta ógleði, sem hugsast getur, því að þá finna menn sárt til heimsku sinnar og skamm- sýni, er þeir sjá, hversu óviturlega þeir hafa lifað. Og þetta angrar hug þeirra svo mjög, að sál þeirra hefir orðið fyrir verulegu kali. Það hafa verið til og eru til flokk- ar manna, sem líta þannig á hið jarð- neska líf, að þeim finnst það naum- ast þess virði að lifa því. Og sumir draga sig út úr skarkala og vopnagný lífsins og lifa eins og þeir væru ekki til á þessari jörð. En aðrir njóta lífs- ins í ríkum mæli og falla svo fyrir aldur fram. Nú er hér sem fyrr vand- rataður hinn gullni meðalvegur. Það getur jafnvel verið vafamál, hvað beri að telja skaðlegar nautnir. Vér vitum, að það er hægt að venja sig á næstum því, hvað sem er. Þess vegna ber að finna hinn rétta veg, sem vér eigum að ganga. Þegar ég var lítill í föðurgarði, hlökkuðum við krakkarnir til þess, er pabbi kom heim úr kaupstaðnum með brjóstsykurspoka eða annað sælgæti. Okkur leið vel, er við brudd- um brjóstsykurinn, og engum datt í hug að skæla. Hér sjáum vér, að krakkarnir veittu sér munað, sem hægt var að vera án — og þess vegna köllum vér þetta líka munað. Hann kyrrir öldur lífsins — hann bræðir klaka sálarinnar — hann veitir oss léttara líf. En munaðurinn verður þvx aðeins að vera munaður, því að ef hann fær að vaxa, þá líkist hann ill- gresinu og vex blóminu yfir höfuð, — og þá er munaðurinn líka orðinn að ástríðu, og þá erum vér orðnir þrælar nautnarinnar. Sumir taka það ráð, er illgresi vex í görðum að eyða því með svokölluðu tröllamjöli. En vér höfum ekki fundið upp neitt tröllamjöl, sem drepur illgresið í sálum mannanna. Þar er aðeins eitt óbrigðult ráð: Það að hafa nógu sterkan vilja eða að undirbúa ekki þann jarðveg, þar sem illgresið fái fest rætur. En þá er ég kominn að því vandamáli, hvernig það megi verða. Það er til gamall málsháttur, er hljóðar svo: Hvað ungur nemur, gamall temur. Þess vegna ber oss að kenna hinum unga einungis það, sem er gott og fagurt. En það hefir sýnt sig, að sjaldan dugir að beita hörku og aga til þess að kenna barninu að njóta hins margbrotna, en þó undur- fagra lífs. En hér mun ég ekki ræða frekar um uppeldi barna innan ferm- ingaraldurs, heldur taka lítilsháttar til meðferðar líf og uppeldi æsku- mansins frá því hann tekur að starfa á meðal hinna fullorðnu. Oll fræðsla og menntun hefir auk- izt í fast og viðunandi horf hin síðari ár, en ef til vill ekki að sama skapi orðið mönnunum til farsældar. Veld- ur því margt. Þegar æskumenn fara í skóla, er hugur þeirra og skaphöfn líkust gljúpum krapaelg, sem sífellt tekur breytingum, og við hinn minnsta gust kemur rykkorn, sem festist — kannski ekki nema um stund, eða þá svo lengi sem líf end- ist — og sum korn eða flísar geta valdið mikilli ígerð. Sumir fara í fyrsta skipti að heiman um langa vegu, og getur þetta orðið einn áhrifa- ríkasti þátturinn í lífi þeirra, og vér vitum, að á þessum tímum er ungl- ingurinn mjög áhrifagjarn og óá- kveðinn og auðvelt að breyta og af- laga skapgerð hans. Þess vegna er nauðsynlegt, að skólastjórar og kenn- arar geri sér vel ljóst, hve ábyrgðar- mikið og þó göfugt starf það er, sem þeir leysa af hendi. Þar sem heimavist er í skólum, horfir þetta nokkuð öðruvísi við. Þar er betri aðstaða til þess að hafa um- sjón með lífi og athöfnum unglings- ins heldur en ef hann á heima ein- hvers staðar hjá vandalausu fólki, þar sem enginn hefir eftirlit með hon- um. Þó að hægt sé að fá unglinginn til þess að stunda nám sitt sæmilega samvizkusamlega, þá getur margt annað verið ábótavant í fari hans og gerðum. En það er hægra sagt en gert að kenna honum að ganga hina réttu leið. Enginn ungur, heilbrigður maður er svo gerður, að hann þrái ekki að skemmta sér, njóta lífsins, leika sér. Blóðið rennur hratt í æðum hans, limirnir eru léttir í hreyfingum, og honum finnst hann fær í flestan sjó. Það mun almennt svo, þegar æsku- maðurinn tekur að sækja skemmt- anir hinna fullorðnu, að þá tekur hann jafnframt að venja sig á siðu þeirra og háttu, hvort sem þeir eru nú góðir eða illir, til þess að geta „verið með“, eins og það er kallað. Það fyrsta, sem hann venst á, eru yfirleitt tóbaksreykingar. Þessi tó- baksnotkun getur haft hinar alvar- legustu afleiðingar. Það er vísinda- lega sannað, hversu mikinn skaða og ógagn tóbak vinnur, og engan skaðar það eins og hinn unga. Það verður að telja það ákaflega mikinn skort á góðu uppeldi að sjá æskumenn og meira að segja börn reykja sígarettu eða sjúga pípuna. Ég drep hér á tó- baksnotkun unglinga og vildi ræða það mál miklu nánar, þar eð ég tel, að tóbaksnautn sé nokkurs konar undanfari áfengisnautnar. Að minnsta kosti er það reynsla langflestra ungl- inga, þegar þeir hafa reykt um nokk- urt skeið, að þá langar þá einnig til að fá sér „neðan í því“. Þess vegna 4 *

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.