Muninn

Volume

Muninn - 01.05.1945, Page 3

Muninn - 01.05.1945, Page 3
MUNINN 35 Dimittendaþáttur. Það er upphaf þessa máls, að í klaustri einu í Eyjafirði ríkti sú venja, að nunnur mættu hafa samvistir nokkrar við karla eitt sinn á hverjum vetri, og þótiti þeim þá mest um vert, að þeir væru sem atgervimestir. I það sama mund var í höllu Sigurðar jarls hið mesta mannval, og þótti nunnum þar vænlegast að leita fanga. Völdu þær itil þá sveina, er nálega höfðu lok- ið ferli sínum við hirð jarlsins, og gerði abbadísin ferð sína til hallarinn- ar og bauð jarli ásamt fyrrnefndum sveinum til fagnaðar mikils. En jarl var þá í hernaði í suðurvegi, og var Þórarinn jarlsfóstri yfir hirðinni. Tók hann málaleitun þessi hið bezta, og kvað sig þangað mundu koma ásamt sveinum sínum. Uppreis nú dýrleg gleði í höllinni, og voru sveinar all- fýsandi fararinnar. En meðal þeirra voru hirðmeyjar fimm, og setti þær hljóðar við tíðindi þessi, og hugðu þær illt til þess ráðs. En á þeim degi, er ferðin skyldi hafin, kom Þórarinn að máli við þann, er mestur var virðingarmaður „Þið sátuð í tímum, var ekki svo?“ „Jú, við sátum í tímum í flestum fögum." „Eru þeir ekki anzi strangir þarna syðra?“ „O, jæja, svipaðir og hér. Bogi Ól- afsson (en það má gdta þess, að hann er sýslungi inspectorsins) er reyndar nokkuð harður í horn að taka. Hann veitir nemendum sínum meiri og minni'ákúrur í hverjum tíma, en þeir láta sér hvergi bregða. í latínu hjá Kristni Ármannssyni koma allir upp í hverjum tíma og hver aðeins í einni setningu. Hjá Magnúsi Finnbogasyni sátum við í einum íslenzkútíma, og fór hann þá í lítið annað en setninga- fræði og bragfræði." Þegar hér var komið sögu, er in- spectorinn farinn að líta allþétt á klukkuna, enda er hún farin ískyggi- lega mikið að nálgast 10, en inspector- inn lifir mjög reglusömu lífi og fer aldrei síðar en klukkan 10 í rúmið, nema þegar hann er á böllum. Biður hann oss vel að lifa, en vér þökkum fyrir oss með bukti miklu og beyging- um, svo sem vera ber. meðal sveina. Hét sá Heðinn og hafði hafizt af sjálfum sér og þó nokkuð af bróður sínum. Mælti þá Þórarinn til Héðins: „Þar sem mér þykir miklu skipta, að ferð þessi verði sem. sæmi- legust, þá vildi ég biðja yður að tak- ast á hendur forystu fararinnar og hyggja að atferli sveina.“ En Héðinn svaraði snúðugt og kvaðst hafa.verið viðbúinn málaleitun þessi og væri nú allt til reiðu, eða, mæliti hann: „hvort sjáið þér ekki hjör þann hinnmikla,er ég hef mig gyrtan, en þann hefur sendan mér nafni minn hinn engil- saxneski, en sá er nú mestur hershöfð- ingi í vesturvíking.“ Eftir það sltefndi hann saman sveinum, og tóku þeir fyrstu þegar að koma. Þar var kominn Ólafur hinn digri af Rangárvöllum og vildi þegar fara, en Heðinn skipaði hann fremstan í vinstra fylkingararm og bað hann vera stilltan. En í hægra fylkingararm skipaði hann Karl Laugvetning, og var sá hamrammur. Hann var óðamála mjög og vildi eiga hlutdeild nokkra í skipan liðsins, því að áður hafði hann haft umsjón með krökkum og kögursveinum í höll- inni. En Heðinn bað hann þegja, og stóð svo mikil ógn af orðum hans, að enginn þorði mót að mæla. Kom þar og Halldór vestmaður, og var sá mesti víkingur og hafði barið tröll og skræl- ingja á ferðum sínum. Var sá engi meðal sveina, er treystisit að keppa við hann um hylli kvenna né þreyta við hann öldrykkju. Var hann hinn mesti íþróttamaður í hvívetna. Komu þeir nú hver af öðrum Gunnar Ólason, Gunnar Sigurðsson og Gunnar Guð- mundsson af Barðaströnd og voru bæði móðir og sárir. Höfðu þeir Þórð uxafót í bönd færðan, því að þeir uggðu, að á hann rynni berserksgangur, er hann kæmist í itakfæri við meyjarn- ar. Öskraði hann ákaflega, og heyrði hljóðin um land allt. Svo segir í Þórð- arkviðu: Skulfu lönd, skelfdust lýðir, visnuðu grösin græn við uxafótar öskur ferleg, þá hann í hlekkjum hrein. Enn voru þar komnir þeir Skúli Helgason, Haraldur Sigurðsson og Einar Pálsson og léku að teningum að smásveina sið. Þar voru og þeir Sig- urður af Kljáströnd og Jón Gestsson. Sigurður hafði þá farið margar svaðil- farir og marga völsku vegið, og er sú frægust, e'r hann fékk að velli lagið með spjótinu Brynjólfsnaut í sölum Sigurðar jarls, en Jón hafði mesta frægð hlotið í viðureigninni við Framar-Pál, en sá Páll var fjölkunn- ugur og skáld gott. Einnig voru þar í hópi sveina Jón og Eggert hinir vest- firzku. Voru þeir göldróttir sem kyns- menn þeirra og höfðu upptekið nýja gerð galdrastafa. Nefndust slíkir sitafir Oddrúnir. Heðinn gekk nú rösklega fram og skipaði hvern mann á sinn stað í fylk- ingunni, og urðu næst fyrir þeir Flosi Sunnmýlingur og Tómas Háeyrar- kappi. Flosi var í gerzkum klæðum, en þau hafði Stalin samyrkjubóndi í Rússíá send honum, og líkaði Tómasi illa búningurinn, og deildu þeir fast, En svá er sagt frá Tómasi, að hann var mestur fjáröflunarmaður í liði þeirra, og voru í vörzlu hans sjóðir digrir, og vissu fáir, hve fé það var mikið. Þessu næst gengu út úr höllinni þeir Ingvi Árnesingur, Guðmundur spaki og Baldur hinn prúði Þorsiteinsson. Það er helzt frá Ingva að segja, að hann hafði embætti stór hjá jarlinum og var svo ákaflega langur, að öfundarmenn hans töldu hann kominn af Miðgarðs- ormi. Leið nú að þeim tíma, er ferðin skyldi hafin, og gerðist Heðinn órór, því að enn voru allmargir ókomnir, og dimma tók af nótlt. Sáu menn þá skyndilega bjarma bera við himin og sló felmtri á suma. En þar voru þá komnir Jóhannes hinn klæðumprúði og Guðmundur Vé Þórðarson, og var þat hvort tveggja, að af skóm Jóhann- esar lýsti skærar en sól, og af skalla Guðmundi stafaði meiri birta en af sverði Surts. Var þá bjant sem um dag. Svo segir í Skallasennu hinni eldri: Vóru klæði öll úr kjörváðum, vápn öll gulli greypt. En skór skinu skærar sólu og lýstu heim hálfan.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.