Heimilisblaðið - 01.08.1923, Síða 8
104
HEIMIL ISBLAÐIÐ
Ársrit Fræðafélagsins
hefir af mörgum verið talið bezta islenzka
tímaritið, enda hafa jafnan ýmsir af fremstu
rithöfundum þjóðarinnar lagt til þess. Með-
an próf. Þorvaldur Thoroddsen lifði hófst
það ávalt með ritgerð eftir hann, og nú
þegar það kemur i fyrsta sinni út að hon-
um látnum (7. árg.) byrjar það á. langri og
ítarlegri æfisögu hans eftir magister Boga
Th. Melsteð. Er æfisagan harla fróðleg og
rituð af einurð og skörungsskap. Næst er
grein um hjúahald, eftir Hákon Finnsson,
full at skynsamlegum athugunum og góð-
um tillögum. Þá er alllöng grein eftir
Valdemar Erlendsson, lækni i Friðrikshöfn,
um þann hinn ógurlega sjúkdóm er sýfilis
nefnist, eða sárasótt, og nú er talinn að
vera orðinn landlægur á íslandi. Er þar
um svo afar alvarlegt mál að ræða, að þess
væri óskandi, að ritgerðin yrði lesin á hverju
einasta íslenzku heimili, eins og líka bækl-
ingur Guðm. próf. Hannessonar um sama
efni, er landsstjórnin gaf út fyrir tveim ár-
um. í ritgerð Valdemars eru margar myndir
til skýringar og lærdómsauka. Fræðafélagið
lét sérprenta stórt upplag af henni og gaf
það sjómannafélögunum með því skilyrði.
að ágóðanum af sölunni verði varið til þess
að koma á fót islenzku sjómannaheimili er-
lendis, þar sem þess telst brýnust þörf.
Hefir það því unnið að tveim góðum mál-
efnum i senn með þessari gjöf sinui. Enn-
fremur er í Ársritinu fróðleg ritgerð um
Georg Brandes, etlir sama höfund, og
fjöldamargar smágreinar, einkum um er-
lendar bókmentir. Síðastur er þar itarlegur
ritdómur eftir ungan málfræðing, Jón Helga-
son, um íslenzku þýðinguna á Fást, það
sem út er komið af henni. Hefir sá rit-
dómur þegar vakið mjög mikla athygli
innan lands og utan.
Ársritið er afar ódýrt, eins og það hefir
ávalt verið, 12 arka bók með vönduðum
frágangi og kostar 6 krónur. X.
[Pessi grein barst Heimilisblaöinu nýlega. Það
raun hafa minst á 7. árg. Ársritsins áöur, en áleit
rétt aö birta þessa grein fyrir paö].
Barnabók,
»Sagan af Fransiskusi og Pétri« heitir
barnabók, sem Bókav. Emaus gaf út sið-
astl. haust. Hún var prentuð í gömlu »Ný-
ársgjöfinni« undir nafninu: »Grisir gjalda,
en gömul svín valda«. Margl eldra fólk mun
kannast við þessa sögu og gela mælt með
henni. Hún er þörf hugleiðing unglingum
nú sem fyr. Hún sýnir með skýrum drátt-
um hinar farssællegu afleiðingar ráðvendni
í viðskiftum og líka hinar illu afleiðingar
óráðvendninnar. Nú er kvartað um sjúkt
viðskiftalíf. Væri þá ekki gott að vér létum
börn vor lesa slika bók sem þessa. Eg vil
ráða foreldrum til að kaupa hana handa
börnum sínum til að lesa. Hún fæst hjá
ýmsum útsölumönnum Heimilisblaðsins og
í Bókaverzlunum i Reykjavik. n.
Kvittanir.
Júlímánuður 1923.
A. G. Gröf ’23 kr. 5; séra J. Á. Bíldudal ’22—''23
kr. 10; M. S. Melum ’23 kr. 36; S. A. Kollabúðum
’23 kr. 5; J. J. E.-Langholti ’23 kr. 5; P. P. Bjarnast.
'23 kr. 50; A. T. Vallarlúni ’22 kr. 5; J. O. Seyðisfirði
’23 kr. 86; M. Á. Eskifirði ’22 krÍ5; J. K. Kjarlaksst.
’22—’23 kr. 10; J. G. Hlíð ’23 kr. 10; P. E. Ey ’23
kr. 5; Kr. Kr. Fáskrúðsfirði ’23 kr. 75; J. Kr. Víði-
völlum ’23 kr. 5; E. Kr. N-Hjarðardal ’23 kr. 5;
P. G. P. Sauðárkróki ’23 kr. 5; V. S. Fuglavík ’23
kr. 5; J. Ó. Vík ’23 kr. 61; G. P. Nesi ’23 kr. 40;
S. S. Hólmavík ’23 kr. 5; Ó. G. Akureyri ’23 kr. 96;
G. S. Vestm.e. ’23 kr. 5; St. P. Skáleyjum ’23 kr. 10;
M. J. Hamraendum ’23 kr. 5; M. A. Gerfidal ’23
kr. 5; H. L. Krossi ’23 kr. 10; Kr. Kr. Blönduósi
’23 kr. 20; S. S. Geldingaholli '23 kr. 5.
Kaupendur blaðsins austanfjalls, sem und-
anfarin ár hafa borgað blaðið til Andrésar
Jónssonar, kaupm. á Eyrarbakka, eru beðnir
að borga það hér eftir beint til afgreiðslunn-
ar í Bergstaðastrœli 27.
SS* Gjalddagd blaðsius er kominui
Útgefandi: Jón Helgason, prentari.
Prentsmiðjan Gutenberg.