Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1925, Page 8

Heimilisblaðið - 01.08.1925, Page 8
112 HEIMILÍ SBLAÐIÐ Ritfregn, Styr. Thorsteinsson: Ljóðapýðingav. I., 2. hefti. Heimilisblaðið mintist á fyrsta. heftið og árnaði því þeirra fararlieilla, að hvert íslenzkt heimili mætti opnast fyrir svo góðum gesti. Nú er annað lieftið komið, óskar Ileimil- isblaðið því liinna sömu viðtekna. Pað h'efir að sönnu fátt af hinum gömlu kunnu og kæru söngvísum að flytja, en í þess stað liefir það margt nýtt á boðstólum, margar ljóðperlur eftir fræga höfunda: Shakespeare, Goethe, Byron, Burns, Schiller, Tetöfi, Tegnér o. fl., eða þá grísk og latnesk skáld í fornöld: Soffó, Horatius, og þýðingar úr hinum frægu þjóð- sagnakvæðum, eftir Ossian, sem var skáld Háskota í fyrndinni. Pessi Ossianskvæði voru yndi allra skólamnnna vorra á 19. öld og þýddu þeir margir fleiri eða færri brot úr þeim. Par er margt spaklega sagt, svo sem þetta: »Eru alsælir þeir er ungir deyja, fagrir, fullstyrkir í frægðarljóma«. Peirri hugsun bregður til orðtaksins: »Til frægðar skal konung hafa en eigi til langlífis«. »PÚ yngismey ert eins og blómið« og »Loreley«, eftir Heine, eru gamlir og góðir kunningjar. Ilafa skáld vor hvert af öðru spreytt sig á að þýða þau (Ben. Gröndal, H. Hafstein o. fl.). Sama er að segja með ástar- vísuna eftir grísku skáldkonuna Soffó, sbr.: »Goða pað líkast unun er andspænis sitja móti þér«. Yfir öllum þessum ljóðum er sami hugð næmi blærinn, sem yfir frumortum kvæðum þjóðskáldsins. Fornmentaástin skín út úr þeim, og henni er sú stefna í skáldskapnum sam- fara, að búa alt hið hversdagslega laðandi hátíðabúniugi. Alt er eins og »sveipað feg- urðar gullblæjum«, líkt og náttúran á vorin. Stgr. Thorsteinsson var líka skáld vorsins og œskunnar. Yér hlökkum til áframhaldsins, og vonum, að íslenzku heimilin flýti fyrir því sem mest, með því að kaupa sem fyrst þau heftin, sem komin eru. Ytri frágangur er vandaður og fylgir því höfundaskrá og fróðleiksgreinar og fyrirsagnir og upphöf þeirra kvæða, sem komin eru. B. J. KYÍttamr. Júlímánudur 1925. H. 0. Hjallanesi ’25; I. J. Kirkjubóli B. ’25: K. J. Skaftfelli ’25; A. 1. Melhól ’25; S. G. Rifi ’25: H. G. Ási ’25; I. J. Reykjum ’25; D. S. Akranesi ’25; I3, J. Oddgeirshólum ’25; E. J. E. Skógum ’25; M. J. Mel- um ’25; H. J. Kotvelii ’25: H. Cl. Sandi ’25; G. J. Unnarholti ’25; S. Á. Görðum ’25; H. E. Purá ’25; S. J. Krossnesi ’25: G. M. K. Álftamýri ’25; G. S. Reynivöllum ’25; P. R. Urriðaá ’25; K. K. Fáskrúðs- flrði ’25; K. S. Hafnamesi ’25; S. Ó. Kaldaðarnesi ’25; H. M. Snjallsteinsstöðum ’25; K. G. Nikhól ’25; M. J. Hrísgarði ’25; G. F. Pétursey ’25; G. P. Dilknesi ’25; E. Ó. Strönd ’25; J. Ó. Vík ’25; S. B. Keflavík ’25; A. T. Vallatúni ’25; V. V. Búlandi ’25; G. E. Hjalla, Sf. ’25: H. E. Hömrum ’25; K. Á. St. Bolung- árvík ’25; S, E. Hamragörðum ’25; S. J. Hlíðarenda ’25; L. Á. Hesteyri ’25; A. H. S. Djúpavogi ’25; H. L. 25; G. K. Ingjaldsstöðum 25. Pakkarávarp. Hérmeð votta eg mínar hjartanlegustu þakkir öll- um þeim, sem sýndu konunni minni, sem dó á franska spítalanum í Reykjavík 23. janúar síðastliðinn, vel- vild og kærleika á einn eða annan hátt og gerðu alt sitt til að létta henni sjúkdómsbyrðina í hinni löngu banalegu hennar, og létu hluttekningu í ljósi við jarðarför hennar. Einnig votta eg tengdafólki mínu á Eyri í Fá- skrúðsfirði hjartanlegar þakkir fyrir það kær'leiksverk að taka upp á arma sína tvö yngstu börnia mín, þegar blessuð konan mín varð sem sjúklingur að fara til Reykjavíkur og heimili okkar þannig hrundi til grunna. Bið eg Guð að launa þeim öllum auðsýnda velvild og kærleika. Kleífarstekk í Breiðdal, 25. apríl 1925. Einar Jónsson. Eg' hafði hugsað mér að stækka Heimilisblaðið svo jjetta ár, að öll tölublöðin yrðu 16 síður. En vegna ýmsra erfiðleika sem mest koma af því, hvað margir gleyma að borga blaðið á réttum gjalddaga, þá get eg ekki alveg náð þessu rnarki; maí- og ágústblaðið verða 8 síður. En sjái eg mér fært að bæta þetta upp, þá geri eg það. — Vona, að næsta ár auðnist mér að ná alveg takmarkinu. •— Aðeins að allir kaup- endur blaðsins athuguðu það, að þeir vinna við það að vera skilamenn. Utgef. Útgefandi: Jón Helgason, prentari. Prentsmiðja Ljósberans.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.