Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 1

Heimilisblaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 1
Heimilisblaðið. organgur. H^ror^a^Q, nioí 1912. 5. íölu6loð. Minning. Eftir Sven Moren. Lag: Ung Áslaug, eða Dei gamle fjell. Þig barnsheimkynnið mceta mitt í minni’ eg ávalt ber. Til þín jeg hverf í hverjum draum’ og heilsa feginn þjer. M'órg hœrri trje, mörg hærri fjöll eg liefi sjeð enn þin, en yndi' og vænleik eins og þinn sjá avgun hvergi min. Og víðar hefi’ eg sólskin séð; þar sízt er munur á. En hjartans sólskin fegurst fann eg foreldrunum hjá. Við þinna fjalla blessuð brjóst, þú larndóm uppólst minn. Hvar helst seni jeg í veröld verð jeg veit mig drenginn þinn. Þinn drengur enn jeg vera vil og vera nefndur son. Þinn móðurfaðmur opinn er mjer enn, jeg hefi’ þá von. Til þin! — Til þin jeg þrái fast. Til þín of seint jeg næ. I’ó seinna verði, samt jeg kem og sjeð þig afiur fæ. Br. J. þýddi. Nokkur orð í Heimiiisblaðið. —o— Æskulýður íslands! Skylt er oss öllura þrá skilning alls þess er skynfæri vor geta. gripið, en jafn óskylt er oss, að efast um gildi þess, er skynfæri vor ekki ná til að skynja. Hlaupið ekki eftir mentarembingS'efanum, er oft rýkur út af vitum þeirra, er halda, að' þeir hafi lyklakippur vizkunnar á valdi sínu; fleygið eigi hugsunarlaust frá yður barnatrú yðar, fyrir hjal slíkra manna, því þér munuð þess aldrei bætur bíða. Berið lotningu fyrir Guði, þótt þér teljist ekki sjá hann; — þér sjáið hann í dýrð nátt- úrunnar umhverfis yður, sú sjón er dýrðleg, — já, þó er margt í kringum oss, er nægi- lega næm tilfinning gæti þreifað á og nægi- lega skörp sjón gæti greint, en slíkan skyn- færa-hæfileik vantar oss. Eitt viðbótarskynfæri hefir oss hlotnast, fyrir þögult og þrautseigt kapp einstakra- manna, og þetta viðbótar skynfæri er smá- sjáin, og fleira mætti benda á. Hversu auð- veldlega sýnir hún oss fram á, að skynfæri vor eru veik og fá, þar sem svo margt mun umhverfis oss, er þau hvorki geta þreyfað á, séð né heyrt. fó telja sumir, að af því skyn- færi þeirra ekki fá greint Guðdóminn, þá sé óaðgengilegt að bera augljósa lotningu fyrir honum, og þó mun engutn dyljast að nafnið, sem sameinar mátt hans fyrir vorum óstyrku augum: alt í öllu, auglýsir sig á hverju augnabliki, ef vér að eins veitum því eftirtekt. Minnumst þess jafnan, að skynfæri vor eru veik og fá; reynum að öðlast sem flest við- bótarskynfæri, og keppumst eftir skilningi, en minnumst þess og, að trúin er oss gefin til

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.