Heimilisblaðið - 01.05.1912, Qupperneq 2
34
HEIMILISBL AÐIÐ
HEIMILISBLAÐIÐ
kcmur út einusinni á mánuði og kostar
75 aura Argangurinn
ef blaðið cr borgað fyrirfram. Koetar annarB
I krónu Argangurinn,
og er þá gjalddagi bundinn yið 1. júlí.
Uppsögn sé skrifleg og bundin við áramót,
ógild nema komin eétil útgefanda fyrir 1. okt.
llandhægast er að aenda blaðgjaldið í
óbrúkuðum frímerkjum eða póstávísun.
Utanáskrift blaðsins er:
Heimilisblaðið, Eyrarbakka,
Árnessýsla.
BiapiEaMca—jMcamgcjMgi—MCjMcdMcaS
biðlundar. eftír því þroskastigi, sem vér þá
og þá stöndum á.
Ef enginn hefði trúað því, að til væri sú
smædd, er augum vorum væri um megn að
greina, mundi enn naumlega sú útsýn fyrir
'hendi, sem orðin er, til óumræðilegrar bless-
unar, og er þó að iíkindum litið séð enn, af
þvi, er náttúran hefir þeim að sýna, sem með
ósérplægni, eftirtekt og athygli knýja á hinar
réttu dyr að Jistasafni hennar.
Sýnum hinum ósýnilega alheimsmætti —
hinum eilífa Guði — sanna lotningu og leyf-
um trúnni að halda biðlund vorri i jafnvægi,
þar til vér íyrir Guðs starfandi kraft í sjálfum
oss og meðbræðrum vorum, getum skynjað
það, sem vér hugsum oss að geta átt heimt-
ing á að skynja, meðan vér dveljum hér.
Hafið þér veitt því eftirtekt, að á einJægum
'Guðstrúarvegi munu menn ekki ilt fremja af
ásetningi, eða því, að einlægur Guðstrúar
maður mun jafnan sneiða hjá að villa aðra
út af siðgæðisveginum. Hafið þér ihugað það,
að gott heimili er auðveldast að eiga þar sem
Guðstrúin á heima, — en gott heimili —
friðsælt heimilislif, er dýrmæt eign — eign
sem enginn má án vera.
Hvert mannsbjarta er heimili út af fyrir
sig, það þrýstir hinum lífgandi blóðstraumum
til yztu eudimarka ríkis síns. Heimilin fara
eins að, hinn lifgandi straumur þeirra er frið-
ur og gleði. Eins og hjartasjúkdómar valda
heilsubresti, þannig valda heimilissjúkdómar,
o: lyndisannmarkar heimilisfólksins, heilsu-
hresti heimilanna. Það er oft sagt um sjúk-
linga; að þeir séu friðlausir, og eru þeim þá
gefin kvalastillandi meðul, jafnt fyrir því, þó
friðleysan stafi að eins frá litlum sýkingar-
bletti í líkamanum. En frjð- og gleðivana
heimili — þurfa þau ekki ekki einnig frið-
stillandi meðul? Jú sannarlega. Minnumst
þess, að hjartað er ríki út af fyrir sig, sem
í samstarfi við eitt eða fleiri skapar heimili;
að heimili er ríki út af fyrir sig, er í sam-
bandi við fleiri heimili skapar sveitina; að
hver sveit er einnig ríki út af fyrir sig, er í
sambandi við öll hin héruðin leggja undir sig
landið — skapa þjóðina,
„Stífla skal á að ósi“, segir gamalt orðtak,
og er það ei óviturlegt, þannig mun og auð-
veldast að sporna við þjóðlöstunum, að byrj-
að sé á heimiiunum, og til þess heillastarfs
er æskan mjög vel fallin, þarágleðin helsta
hreiðrið, og þar geymir framtíðin allar aðal-
vonir sínar.
Æskulýður islands! köllun þín er háleit og
mikilvæg.
Á heimilinu stendur vagga barnsins, Eden
hins óspilta lífs, þar sem barnið nýtur hins
fyrsta þroska, og aðdáanlegt er oft að sjá,
hve móðirin, lúin af striti lífsins, og oft þjók-
uð undir byrði fátæktarinnar, — er létt í
hreyfingum kringum þennan vermireit ást-
blóms síns, að sjá hve faðirinn, oft þreyttur
úr hfsbaráttunni fyrir hagsmunavelferð heim-
ilisins — brosir vonglaður barninu sínu. Frá
þessum elskuríka vorgróða vænta þau gleð-
innar saklausu inn á heimilið, þegar lífslúinn
hefir klætt þau í alvörubúninginn, og Þarna
vita þau, að fraintíðarvonirnar eru geymdar.
Æska íslands! Láttu ekki vonir foreldranna
falla í rústir, og, — þótt foreldrana hafi
brostið uppeldishæfileika, ástríki og aðhlynn-
ingu, sem stundum á sér stað að einhverju
leyti, — þá látið hvorki þá né heimilið verða
fyrir vonbrigðum. Friðsæld og saklausa gleði
ert. þú heimilinu skyld að sýna. fað borgar