Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 6
38 HEIMILISBLAÐIÐ til Hasting kamraerherra. Höeg var einnig boðinn — og hafði enda beðið um fyrsta dans- inn — og hún var ánægð og draumarnir hennar margir og ljúfir. Það hlaut eitthvað að koma fyrir þetta kveld — eitthvað dásamlega dýrðlegt! — Og það yrði að koma — einhverntíma á meðan hljóð- færaslátturinn heillaði þau — og þau yrðu að sitja út í horninu — því pálmarnir og ilm- andi rósirnar myndu í rafljósabirtunni freista — lokka gestina í danssollinum!---------- . . . Hershöfðingjafrúin herti upp hugann og sýndi manni sínum gula kjólinn, er Agnes hafði nú notað á öllum dansleikum síðastliðin 2 ár. Ekki yrði hjá því komið að skreyta hann með dökkum kniplingum, en þá myndi hann líka klæða Agnesi framúrskarandi vel. Hershöíðinginn nöldraði eitthvað um það, að úr því það yrði ekki hjá því komist, myndi hann borga það sem það kostaði. Og Agnes var yndisieg þar sem hún stóð frammi fyrir speglinum að athuga hvernig kjóllinn færi. Enginn tók eftir því að roða- rósirnar á vöngunum voru bliknaðar, og drætt- irnir kringum munninn orðnir dýpri. Hún var í svo góðu skapi — hlakkaði svo hjart- anlega til kveldsins — og þetta gerði hana iangt um yndislegri en áður! Og móðirin horfir á hana og dáist að henni i huganum! „En eitt vantar þig, Agnes mín, fallega rós til þess að láta í hárið“. Ósjálfrátt litur Agnes á blómvöndinn sem hún hélt á í hendinni — rósir og „gleym mér ei“ — sem Höeg hafði fært henni um daginn. „Nei, dóttir mín! — Þú mátt ekki skreyta þig með blómunum hans — ekki ennþá", bætti hún við brosandi og vatt sér yfir að glugganum. Hún sleit dökkrauðu rósina af rósviðnum sín- um — rósina, sem hún hafði mest glaðst yfir nú upp á síðkastið — og fæiði Agnes hana. Og meðan hún var að koma rósinni fyrir í hárinu brosti hún — en tárin komu fram í augun og læddust eitt og eitt niður kinnarnar! — Hershöfðinginn kom inn í stofuna. Hann starði undrandi á dóttur sína og mælti: „Carmen — það er Carmen!" Og um leið og hann fór, byrjaði hann að raula eitt af lögum Bizets. Vagninn var ekinn af stað. Hershöfðingjafrúin mókti í hægindastólnum. Hana dreymdi Ijómandi drauma um herra- mannssetur með turnum, útskornura bustum og gyltu gaflhlaði — og um gróðurhús með hundrað dökkrauðra rósa — og hún mátti taka eins margar og hún vildi-----------því alt þetta átti hún dóttir hennar.------ Höeg og Agnes höfðu dansað og drógu sig inn í hljóðfærasalinn. Hann hallast upp að slaghörpunni (Flygelet) en hún er hálffalin bak við blómsturtré. Henni finst hann aldrei hafa verið jafn yndislegur — jafn aðlaðandi og karlmannlegur — og í kveld. Eitthvað svo alvarlegur — en þó svo dýrðlegur. „Fröken Agnes!" segir hann, „eg er svo hjartanlega ánægður — þykir svo vænt um að hafa kynst yður. Þér eruð eitthvað svo undarlegar — og mér finst eg verði að trúa yður fyrir helgustu leyndarmálum mínum. Lítið þér nú á mig! Skín ekki gleðin og. ánægjan allstaðar út úr mér!“ „Eg veit ekki —“ segir hún brosandi. — „Það er eitthvað óvanalegt sem eg ekki get skilið. “ „Fröken Agnes! Á morgun fer eg til Montreux að sækja unnustu mína. Hún hefir verið þar sér til heilsubótar í þrjá vetur — og í dag fæ eg þœr yndislegu fréttir að hún sé albata. Við höfum síður viljað gera heyr- um kunna trúlofunina — en í sumar þegar gömlu eykitrén iaufgast, kem eg með Louise Marie — litlu drotninguna mína og set hana í hásætið á Tornholm. — Drotning!“ endur- tekur hann brosandi — „það á uú annars illa við — lýsi henni ekki rétt — hún er svo við- kvæm og blið. En þér, fröken Agnes!“ — segir hann og færir sig nær henni — „þéi

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.