Heimir - 01.11.1913, Síða 4
100
HEIMIR
Uppruna eöa erföasyndin telur Björn að sje uppruna-
heimskan, vöntun skilnings og gatða, en “vizkan er ætluö til aö
lærast, en ekki til aö skapast í manni heil, eða í einu.” Er því
mannkyniö í eilífri framför. Algjör útskúfun er ekki til, alt
sköpunarverkið mælir móti því, en hegning getur veriö um
langan tíma, þ. e, meövitund um misgjörö og sársauki yfir
drýgöum ógæfuverkum. Þessi hegning skapar þekkingu. Sak-
leysi og heilagleiki er sitt hvað. , Sakleysiö er þekkingarlaust,
heilagleikinn er lífiö og stöðugleikinn í sannleikanum. “Þjer
munuö þekkja sannleikann og sannleikurinn mun gjöra yöur
frjálsa,” er spá um, alfúllkomlegleik allra manna aö lokum.
Þessar skoöanir fóru næstum oflangt í fyrstu, til þess menn
þyröu eða gætu fylgst meö þeim, og þó uröu þær víöa gleðileg
vakning til sjálfstæöis í trúarskoöunum. Meö “Njólu” byrjar
höfundurinn fyrstur, fyrir alvöru aö leggja mönnum fyrir sjónir
hvílk fásinna slíkt er, aö ætla aö í fáfræöinni s'je fólginn lykill-
inu aö guösríki. Og svo heldur hann áfram lengra en þaö, og
sýnir og sannar, aö, svo fjarri því að fáfræöin beri meö sjer
helgun, aö þá er þaö hún sem útilokar mennina frá sannleik-
ans guöi um alla tínia. Fáfræöin er syndin, og uppruna-
fáfræöin er upprunasyndin.
Þegar hann er búinn aö vekja óbeit og ótta fyrir heimsk-
unni, byrjar hann aö leiöa mönnum fyrir sjónir dýrö og mikil-
leik guös eins og náttúran opinberar það. Öll ljósadýrö nætur-
loftsins er geislaskin fjarlægra sólna. Cg hverri þessari sól fylgja
fleiri hnettir en vorri. Þó er allt þetta ekki nema minsti
hluti alheimsins, og aö öllum líkindum eru allir þessir reiki-
hnettir í hinum sólkerfunum bygðir.
Yfir ölium þessum alheimi ríkir guö. 1 heinii þessum býr
hann og er lífiö og sannleikurinn. Alheimurinn allur ínyndar
fullkomlegleikans heild. Þaöan má ekkert missast. Þar er
ekkert óþarft og ekki til einhvers þjónar. Og sannana-dæmi
þess dregur höfundurinn fram úr djúpi þekkingarinnar.
Orðfæri “Njólu” er alt svo hógvært, kærleiksríkt og
mannúölegt aö hún hefir rjettilega áunniö höfundinum það auk-