Heimir - 01.11.1913, Blaðsíða 14

Heimir - 01.11.1913, Blaðsíða 14
I IO HEIMIR biblían sje æösti dómstóll allra mannlegra kenninga um allt hvaö er. Aö heimurinn sje alillur, aö djöfullinn sje voldugur höföingi er ráöi yfir undirheimum og jaröríki, aö meö yfirlestri ritningagreina veitist, meö brauöi og víni, hold og blóö. Þetta var kenning Lúters og jafnvel litli katekismusinn einn ber þess ótvíræðilegt vitni, Þaö er þessi tilhneiging.aö skipa sjer undir fornheiti, beita jafnvel sögufölsun til þess aö geta gjört það, sem sprottin er af þessari varfærnisstefnu, þessari djarfieysisframkomu sem einkenna viröist svo margt af því sem nú er aö gjörast. Gömlu nöfnin eru toguð út, yfir þaö nýja, út yfir nýju hugmyndirnar er aldrei tilheyrðu þeim, unz þau eru dregin í sundur, unz þau, eöa gloppan öllu heldur, getur tekið yfir alt. Þau eru toguð og teygö á allar lundir unz þau slitna sundur ein og skinnbótin hjá kyrkjupúkanum í gömlu þjóösögunni. Og þaö er það sem veriö er aö gjöra í kyrkjunni á Islandi við prestaskóla landsins, sem sagöur er lúterskur. Þaö er alment viöurkent aö hin nýja skoðun trúbragöanna sje þar viötekin, hið nýja heimsyfirlit, nin nýja guðfræði, en þessi skoðun er ekki lútersk. Því sem eðlilegt er, greinir skól- ann og ríkiskyrkjnna, sem er lútersk, á um flest höfuðatriði trúarlærdómsins, standi kyrkjan viö öll sín lögboðnu játningar- rit. Þó er veriö aö halda því fram að kennarar skóians sjeu lúterskir. Sje skólinn lúterskur, hvað er þá kyrkjan? Sje kyrkjan lútersk, hvaö er þá skólinn? Ég bið menn aö taka þaö ekki svo aö eg sje aö leitast viö aö halla gildi skólans, þótt eg neyðist til aö neita því aö hann sje lúterskur, og taki heldur vitnisburö sögunnar íyrir þvf aö þjóökyrkja íslands sje lútersk kyrkja, eöa hafi verið, sje hún breytt frá því sem hún var. Oss er sagt að eftir dauða Jóns biskups Arasonar hafi komist á lútersk siöabót á íslandi. Lög, kyrkjurjettur, játn- ingar og helgisiöir lúteskrar trúar eru í lög leiddir í danska rík- inu meö Krisjáni 3., en katólskum siö burtrýmt, áriö 1536. Sami konungur innleiðir lúterska kristni á Islandi, og hefir þar veriö lútersk kyrkja síöan. En^eins og allir vita var hún í barndómi fyrsta mannsaldurinn eftir siöaskiftin og voru þá

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.