Heimir - 01.11.1913, Page 16
I I 2
H.EIMIR
-------------------------1-------:-----------------------------
Hann er þrí-einn, sem sje faðir, sonur og heilagur andi.
Þrenningin heíir sama guBdórn, sonurinn er jafn föBurnuni og
heilagur andi jafn fööur og syni. En á hvorn hátt þeir eru
undir eins einn og þrír, fáum vjer ekki skilið í þessu lífi. Það
er heilagur leyndardómur er enginn má skygnast inn í eða efa.
Verk föðursins er sköpun heimsins, verk sonarins, endurlausn
mannanna, og verk heilags anda, helgun mannanna, þó eru
allar persónurnar samverkandi í hverju um sig, svo að sonur-
ins er einnig skapari heimsins og faðirinn helgari maunanna.
Guð skapaði heiminn á sex dögum og hvíldist sjöunda
daginn og ákvað að hann skyldi verðu mönnum hvíldardagur.
Alt skapaði hann af engu, nema manninn og konuna er hann
skapaði 6. daginn, Líkama Adams skapaði hann af moldu, og
gæddi hann lifandi sálu, það er að segja sínum anda, en kon-
una skapaði hann af rifi úr síðu mannsins. Manninn skapaði
hann eftir sinni mynd, Alt var fullkomið og gott sem Guð
skapaði, Guðsmynd mannsins er ekki eingöngu hans líkam-
lega mynd heldur líka fólgin í háleitri þekkingu, hreinu hugar-
fari, sæluríkum sálarfriði, þjáningalausu lífi og ódauðlegu lík-
amseðli, Með sköpun Adams og Evu stofnaði guð hjónastjett-
ina, Hann setti þau í aldingarðinn Eden og leyfði þeim að borða
af öllum trjám þar nema skilningstrjenu góðs og ills.
Guð heldur öllu við, ber umhyggju fyrir öllu og stjórnar
öllu sem við ber í heiminum. Ekkert fær svo borið til að það
sje ekki eftir guðs ákvörðun og vilja. Hið illa og mótdræga
sömuleiðis sem hið góða er samkvænt hans ráðstöfun og hlýtur
ur að verða. Þeir sem illt fremja eru ákvarðaðir af guði til
þess, en þó sleppa þeir ekki hjá refsingu,
Auk mannanna skapaði guð engla, hvenær, það hefir hann ekki
opinberað, Þeir eru vitrir og voldugir andar, hafa engan
jarðneskan líkama og því ósýnilegir mönnunum. Þeir voru
allir góðir upphaflega en nokkrir syndguðu og urðu óvinir guðs
og manna og alls sem gott er. Foringi þessara föllnu engla
heitir Satan, eða djöfull, en þeir allir djöflar. Ásæka þeir
menn og geta jafnan freistað þeirra,