Borgarinn - 24.12.1923, Qupperneq 2
2.
BORGARINN
Tunglskinsnótt.
Ó, blíða, fagra, bjarta nótt,
þú bestu hugsun vekur,
og mánaskin þitt milt og rótt
úr mannsins sálu hrekur
hvert sortajel og sorgarský,
er sálgar lífsins yndi;
þú lætur vonir lifna’ á ný,
sem löngum dóu’ í skyndi.
Þín tállaus fegurð, tunglskinsnótt,
og tignin sanna, hreina,
er svalalind og sefar hljótt
þá sorg, er margir leyna.
í þinni kyrð er kært að fá
að krjúpa í lotning niður
og láta tárin lauga brá; —
ó, ljúfi næturfriður.
Þín tign er himnesk, tunglskinsnótt,
þú tryggur reynist vinur,
og heyrir andvarpsorðið hljótt,
sem aðþrengt hjartað stynur. —
Æ, láttu alla finna fró,
sem friðar hjá þjer leita,
og sefa harm, en sendu ró,
er sálum lækning veita.
Þ.
að hvessa mundi þegar fram á
daginn liði. Móðir mín hjelt samt
at mundi hanga í honum fram
Tindir kvöldið, og afrjeð því að
senda mig nú í kaupstaðinn. Jeg
lágði af stað klukkan ellefu um
Ti' '’rgunij n.
Út í kaupstaðinn var tveggja
klukkustunda gangur í góðu færi.
Bn í þetta skifti var jeg þrjár
Uukkustundir þangað, því snjór
var orðinn alldjúpur og seingeng-
inn. — Jeg náði kaupstaðnum í
sama veðri, og athafnaði mig þar
eins fljótt og jeg gat.
Klukkan var orðin fjögur þegar
jeg lagði af stað heimleiðis, með
skúfhólkinn í brjóstvasanum, og
Ijereftsposa á bakinu með nisínum í
jólagrautinn og jólaköku, sem vin-
kona móður minnar í kaupstaðn-
um sendi henni.
Það sem jeg var kátastur yfir
að hafa meðferðis, var þó skúf-
hólkurinn. Jeg hlakkaði sannar-
lega til að sjá hana systur mína
í nýju peysufötunum um jólin, —
sjá hana í síðu pilsi með mittis-
svuntu, með hvítt slifsi og skott-
húfu og hárið í fjórum fljettum,
alveg eins og fullorðnu stúlk-
urnar — og um leiö og jeg fleygöi
posanum á bakið og lagði af stað,
þá þreyfaði jeg í brjóstvasanum
eftir hólknum. — Jú, í vasanum
var hann, vandlega innvafinn í
rauðan pappír. — Hann hlaut að
vera fallegur svona ný „uppsoð-
inn' ‘, en jeg vildi ekki skoða hann
fyr en heim kæmi — jeg ætlaði
að geyma mjer þá ánægju þang-
að til.
Mjer sóttist ferðin betur.heim,
heldur en úteftir um morguninn,
enda þótt erfiðara væri að sækja
á móti veðrinu, sem heldur færð-
ist í aukana með kvöldinu, og
myrkur væri orðið af nóttu. Hug-
urinn heim bar mig hálfa leið.
Klukkan sjö náði jeg heim heiln
og höldnu. Yngri systurnar voru
komnar í jólafötin. Elsta systir
mín beið eftir skúfhólknum. Nú
tók hún hann innan úr pappírnum
og festi hann í skúfinn. Blóðrjóð
og brosandi stóð hún á gólfiuu í
baðstofunni. En hvað þau fóru
lienni vel, en einkum var það þó
liólliurinn sem skartaði. Það staf-
aði bókstaflega af honum þegar
Ijósið frá lampanum, sem hjekk
í miðri baðstofunni fjell skáhalt
á hann. Þegar við systkinin vor-
um öll komin í jólafötin, mamm.a
setti aðeins upp hreina svuntu
því liún átti eftir að mjólka laina,
þá fengum við að borða. Riir svið
og lundabagga, brauð og smjör,
og sætt kaffi á eftir með pönnu-
kökum og jólakökunni, sem jeg
kom með úr kaupstaðnum. Að
lokinni máltíðinni fengum við
yngi systkinin sitt kertið bvert,
sem við kveiktum á og ljetum
standa á borðinu. En elsta systir
min settist við borðið, tók skúf-
inn fram fyrir öxlina og leit á
hólkinn, og brosti svo ánægju)ega
til mín, að mjer fanst með því
rð fulln launuð kaupstaðarferðin.
Mamma tólt nú húslestrarbókina
ofan af hillunni, setti upp gler-
augun og byrjaði að lesa jóla-
lesturinn. En við börnin fólurn
hendur í skauti og hlýddum á,
meðan vindurinn þaut eftir bað-
stofuþekjunni og þeytti snjó-
fiyksunum út eftir alhvítri flath-
eskjunni.
Austman n.
Úr bæmmi.
Jólamessur. í þjóðkirkjunni: Að-
fangadagskvöld kl. 6, síra Árni
Björnsson. Jóladag kl. 1, síra Sig-
urjón Arnason. Annan jóladag kl. 1,
síra Arni Björnssön. í fríkirkjunni:
Aðfangadagskvöld kl. 7, síra Ólafnr
Ólafsson. Jóladag kl. 2, síra Ólafnr
Ólafsson.
fíorgaraf undurinv, er lialdast átti
á fimtudaginn fórst fyrir vegna veð-
urs en var lialdinn á föstudagskvöld
kl. 8. — Mættu þar báðir ráðherr-
arnir og hjeldu fast við þau svör or
þeir áður höfðu gefið, aö þeir vildu
ekki veita undanþáguna án þess að
I vita um vilja þingsins. — Tvent var
það er fram kom á fundinum, er get-
ur varðað oss Hafnfiröinga miklu í
þessu máli; annað að forsætisráð-
herra lofaði að stuðla að því að
þingsetningu yröi flýtt, vegna þessa
máls, um einn inánuð eða fram 1 il
15. janúar; og hitt að atvinnumála-