Brúin


Brúin - 21.09.1929, Qupperneq 2

Brúin - 21.09.1929, Qupperneq 2
2 BRÚIN Vikublað, kemur íit á hverj- um laugardegi. Útgeiendur: Nokkrir Hafnfirðingar. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorleifur Jónsson. Sími 120. Auglýsingar, afgreiðsla og innheimta: Helgi Guðmundsson. Sími 47. H.f. Prentsm. Hafnarfjarðar. Hjeraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis var haldinn í K. F. U. M. húsinu hjer í bænum 17. þ. m. Fundur- inn hófst kl. 1% e. h. með stuttri bænarathöfn. Á fundinum voru mættir 6 prestar og 10 safn- aðarfulltrúar, auk nokkurra gesta, sem komu á fundinn. Af skýrslum þeim, er prófast- ur lagði fram, kom pað í Ijós, — að fluttar hafa verið í prófasts- dæminu 415 messur á árinu 1928, en 45 messuföll orðið. En auk pess hafa og verið haldnar all- margar aukaguðspjónustur og barnaguðsþjónustur, sem ekki eru taldar í skýrslunni. Altaris- gestir hafa verið 1561, eða rúm- lega 10% fermdra safnaðarmeð- lima prófastsdæmisins. Á fundinum voru pessar helstu ályktanir gjörðar í tilefni af ýms- um fyrirspurnum, sem kirkju- málanefnd sú, er skipuð var á síðastliðnum vetri, hafði lagt og látið leggja fyrir fundinn, snert- andi breytingar á skipun presta- kalla, fækkun presta o. fl.: 1. Hjeraðsfundurinn ályktar, að ekki geti komið til mála,_ að fækka prestum í prófastsdæm- inu, og að sameining prestakalla í því sje óhugsanleg. 2. Hjeraðsfundurinn er með- mæltur framkominni ósk úr Kálfatjarnarsókn um endurreisn Kálfatjarnarprestakalls. 3. Hjeraðsfundurinn telur æski- legt, að presturinn á Mosfelli verði leystur frá pjönustu í Þingvallasókn. 4. Hjeraðsfundurinn lýsir pvíyíir, sem margítrekaðri skoðun sinni, að leggja beri niður Krýsuvíkur- kirkju og sameinaKr5rsuvíkursókn Grindavíkursókn. 5. Hjerðaðsfundurinn telur út- varp guðsþjónusta æskilegt af ýmsum ástæðum, en alls eigi hæft til þess, að geta valdið fækkun presta. 6. Hjeraðsfundurinn telur ekki líklegt, að prestar í prófastsdæm- inu geti tekið að sjer almenna fræðslu barna, pótt slíkt sje æski- legt par sem pví verður við komið, eins og t. d. í Kálfatjarn- arprestakalli, ef pað verður end- urreist. 7. Hjeraösfundurinn telur ekki að svo stöddu, svo brýna pörf breytinga á prestskosningalögun- um, að hann vilji koma með neina ákveðna ósk til breytinga í þessu efni. — Ýms fleiri málefni, snertandi kirkju- og kristindómsmál, voru tekin til umræðu, án pess að af þeim umræðum leiddi neinar ályktanir. Út af fyrirspurn, sem fram kom á fundinum, urðu allmiklar umræður um auglýsingu fræðslu- málastjóra um löggiltar kenslu- bækur í kristnum fræðum. Voru fundarmenn á einu máli um pað, að ekki gæti komið til mála að bannað yrði að kenna kver eða fræði Luthers í skólum, par sem hlutaðeigendur (kennarar og for- eldrar) kæmu sjer saman um, að ])að yrði kent. — Klukkan 5 síðd. var gengið í kirkju og hlýtt á guðsþjónustu og ræðu sjera Brynjólfs Magnús- sonar. Að guðspjónustunni lok- inni var haldið áfram fundinum, sem stóð til kl. 8 um kvöldið. Kl. 8% flutti sjera Friðrik Hall- grímsson fyrirlestur í kirkjunni um kirkju- og safnaðarlíf í Vest- ■ urheimi. — Auk safnaðarfulltrúans hjeðan, Sigurgeirs Gíslasonar, voru að eins örfáir bæjarbúar á fundinum. Virðist slíkt benda til pess, að menn sjeu ekki alment áhuga- samir í þeim málum, er við koma kirkju- og safnaðarlífi í prófasts- dæminu. Má þó vera, að hjer valdi nokkuru um, ókunnugleiki manna á verkefnum pessárafunda. En á pví er enginn vafi, að á hjeraðsfundi, slíka sem þennan, geta menn sótt margvíslegan fróðleik og mikla ánægju. Bærinn og grendin. Messur á morgun. í Spítalakirkjunni: Hámessa kl. 9 árdegis. Guðspjónusta með prjedikun kl. 6 síðd. í Kálfatjarnarkirkju kl. 1 e. h., síra Árna Björnsson. — Þau börn í þjóðkirkjunni, sem fermingar er óskað fyrir nú í haust, eru beðin að koma til viðtals í próf- astshúsinu hjer á staðnum næsta mánudag kl. 1% e. h. Áttræðisafmæli á húsfrú Steinunn Jónsdóttir, Vesturbrú 10, næstkomandi miðvikudag (25. p. m.) Gagga Lund syngur í Bíóhúsinu í kvöld kl. 9. Síld hefir aílast töluvert í lagnet hjer í firðinum nú að undanförnu. Surprise kom af veiðum á miðvikudag eftir 10 daga útivist með 107 tunnur lifrar. — Flensborgarskólinn. vSkýrsla síðasta skólaárs hefir borist Brúnni. — Hafa 80 nemendur notið kenslu í skólanum þetta skólaár, 41 úr Hafnarfirði, 4 úr Reykjavík og 35 úr 13 sýslum. Burtfaraprófi luku 24 nemendur, og af þeim hlaut Þórdís Aðalbjarnardóttir hæðstu einkunn — ágætiseinkunn, 5,64. — í heimavist skólans voru 22 utanbæjarnemendur, 19 piltar og 3 stúlkur. Þær borðuðu aðeins í heimavistinni en bjuggu úti í bæ. Fæði, þjónusta, matreiðsla og upphitun varð kr. 54,11 á mann um mánuðinn. Heimavistin var í ágætu lagi, fæði gott, pjón- usta ágæt og prifnaður í hvívetna. Heimavistarráðskona var Sig- þrúður Bæringsdóttir. — Bóka- safn nemenda, „Skinfaxi“, heíir aukist nokkuð á pessu ári. Hafa nemendur sýnt pví mikla rækt. Eru nú rúm 700 bindi í pví. — Fúndafjelag skólans og skóla- líf hefir verið með fjörugasta móti þennan vetur. Sú njmng var upp tekin; að nemendur skólans sendust á ritgerðum við nem- endur Akureyrarskólans. Nokkr- ar glímuæfingar höfðu piltar í skólanum. Undanfarna vetur hefir varla sjest glíma í skólan- um, svo að ætla má að nú sje aftur að lifna yfir pessari pjóðar- í])rótt í skólanum, og væri pað vel. „Einu sinni var pað, að Flensborgarnemendur voru glímu- menn“, segir í skýrslunni. Er pað orð að sönnu, pví að margir þeirra, er hafa lært glímu í Flensborg, hafa orðið pjóðfrægir glímumenn. — Tveir utanskóla- menn hjeldu fyrirlestra við skólann, læknarnir Jónas Krist- jánsson og Jún Jónsson. Kenslu- málaráðherrann heimsótti skól- ann, hlýddi á kenslu hjá kenn- urunum og kynti sjer skólann, og flutti Jitlu síðar fyrirlestur um skólann i samkomuhúsi bæjarins og hvatti Hafnfirðinga til að hlynna að honum. — Kappleikurinn á morgun Akranessingar og Þjálfi. Tvísýn úrslit. Síðan knattspyrnufjelögin „17. júní“ og „Framsókn“ voru lögð niður, hefir aldrei farið fram kappleikur hjer í Hafnarfirði; að eins hefir knattspyrnufj. Þjálfi haft samæíingar nokkrum sinn- um með knattspyrnufj. „Víking- ur“ úr Reykjavík. En aftur á móti hefir Þjólfi sótt mót til Reykjavíkur. T. d. í fyrra haust tók Þjálfi pátt í haustmóti 2. aldursflokks, en prátt fyrir pað, pótt Þjálfi tapaði fyrir öllum fje- lögunum, var pó betur farið en heima setið, pví margt má af hverjum kappleik læra. Eins og kunnugt er, fór Þjálíi 30. júní síðastliðinn til Akraness, til pess að heyja par kappleik við Akranessinga. vSá kappleikur fór svo, að fje- lögin skildu jöfn, höfðu skorað 2 mörk hvort. Var pá ákveðið að úrslitaleikurinn skyldi háður í Hafnarfirði, og átti hann að fara.fram á sunnud. var, en fórst fyrir vegna óveðurs. Á morgun eiga Hafnfirðingar kost á að sjá pessi fjelög leiða saman hesta sína á íþróttavell- inum hjer. Kappleikurinn verður án efa mjög „spennandi" pví fjel. munu vera lík og í vor, og er pá vont að spá um úrslitin, en telja má víst, að bæði íjelögin hafi fullan hug á að vinna leikinn. í liði Akranessinga keppa knattspyrnumenn úr „Knatt- spyrnufjel. Akranessinga“ og „Kára“, og eru þessir: Markv. Júlíus Þórðarson, bakv. Hannes Guðmundsson og Þór- oddur Oddgeirsson, framv. Gústaf Asbjörnsson, Halldór Jónsson, og Bjarni Bjarnason, framh. ()lafur Sigurðsson, Ólafur Jónsson, Sigurbj. Jónsson, Jón Árnason, og Aðalsteinn Árnason. En úr Þjálfa keppa: Markv. Þorsteinn Björnsson, bakv. Róbert Schmith og Þráinn Sigurðsson, framv. Haraldur Kristjánsson,Kristján Andrjesson og Þorsteinn Auðunsson, framh. Jón Magnússon, Björn Björns- son, Ásmundur Símonason, Sig. T. Sigurðsson og Hinrik Auð- unSson. Vonandi verða pessir 2 kapp- leikir Akranessinga og Hafnfirð- inga til pess, að vjer megum vænta að fjelögin eigi eftir um ókomin ár að heyja kappleika bæði hjer og á Akranesi. Vjer sjáum til. Það fer einnig eftir pví, hvernig almenningur lítur á pað. Almenningsálitið er fyrsta sporið til viðgangs 'íþróttum. Knattspyrnan er göfug íprótt; hún er: leikur drengskapar, leikur skjótra hugsana, leikur samtakanna, leikur leikninnar. Merki verða seld til ágóða ípróttastarfsemi í Hafnarfirði. Fjölmennið suður á völl og sjáið hvor vinnur. Gammur. Frá Grænlandsför „Gottu“ eftir Krislján Krislinsson, stýrimann. Næstu daga eftir petta var alt tilbrey tingarlítið. ísinn var svo pjettur, að lítið varð komist áfram. Oft var legið við ísinn, skotinn einn og einn selur og fáeinir sjófuglar. Óparft var aö láta sjer leiðast pótt hægt gengi, pví ávalt var blíðveður, logn og hiti á daginn, sólin nokkuð hátt á lofti allan sólar- hringinn og svo miklar hillingar að oft sýndist par auður sjór sem ísinn var gjörsamlega óbrot- inn. Hið eina, sem við kviðum, var að við mundum ekki ná landi í Grænlandi. 13. júlí sáum við, að ómögu- legt yrði iað komast lengra inn í ísinn parna eða nokkurstaðar nálægt. Við vorum búnir að skoða ísinn allstaðar í kring og óvíða var nokkra sprungu að sjá. Við fórum að reyna að komast aftur út úr ísnum, en pað var ekki auðhlaupið að pvi að kornast 35 — 40 sjómílur gegn um ísinn, sem pá var orðinn þjettari held'

x

Brúin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brúin
https://timarit.is/publication/448

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.