Brúin

Eksemplar

Brúin - 18.10.1930, Side 1

Brúin - 18.10.1930, Side 1
2. árg. Laugardaginn 18. október 1930. 75. tbl. Aálsvari ráðhcrrans. Einhver „útverpill" Tímans, sem nefnir sig Grana, sendir mjer kvedju sína í Tímanum 11. p. m. Auðsjáanlega ætlast hann til, að ritgerð sín verði skoðuð sem vörn fyrir kenslumálaráðherrann gegn ádeilugrein, er jeg skrifaði í Brúna út af veitingu barna- skólastjórastöðunnar hjer. Hvorttveggja er, að málstaður ráðherrans er erfiður, enda er vö»rnin hin aumasta. I stað þess að rökræða málið snýst pessi höfundur að mjer persónulega, að hætti rökprota manna. Bregður hann mjer um heimsku oííors og fljótfærni. Þessum eink- unum „skólaspekingsins" get jeg vel unað, pví að betra pykir mjer last slíkra manna en lof. Hefir pví árangurinn af einluinnagjöi- inni mjer til handa oröið pvert á móti lilganginum. Og svo er pað með ritsmíðina alla. Þess^ hefði mátt vænta, að ef ráðherrann eða einhver málsvari hans reyndi að bera hönd fyrir höfuð ráðherrans, pá mundu greindar einhverjar frambærileg- ar ástæður, sem afsökuðu pessa óvenjulegu skólastjóraveitingu, pvert á móti tillögum meiri hluta skólanefndar og fræðslu- málastjóra. En lítum nú á hvern- ig petta tekst. Greinarhöfundur ber pessar af- sakanir fram í prennu lagi. Þar segir svo: J fyrsta lagi átti Guöjón Guðjónsson meira fylgi í skólanefnd Hafnarfjaröar en í ljós kom. í öðru lagi mun ráðherrann hafa brugðið út af tillögum fræðslu- málastjóra í tveimur tilfellum að eins af fimmtíu. í priðja lagi vsrður að gera ráð fyrir pví, að ráðherrann sem æðsti valdsmaður og umsjónar- maður pessara mála hafi sínar eigin skoðanir*) um pað, hversu best veröi ráðstafað mikilsverð- um skólastjórastöðum." Eyrsta afsökunin, sem höfund- ur eflaust ætlast til að talin sje veigamest, sjá allir að er hrein og bein fjarstæða. Meiri hluti skólanefndarinnar hefir pví mót- mælt henni, og sent Tímanum til birtingar svohljóðandi: „Athugasemd. í 57. tölublaði Tímans, sem út kom 11. p. m. er aðalástæðan fyrir pvi, að kenslumálaráðherr- ann veitli hr. Guðjóni Guðjóns- synibarnaskólastjórastöðunahjer, talin sú, „að Guðjón haíi átt meira fylgi í skólanefnd Hafnar- fjarðar en í ljós kom“. Ummæli pessi verða ekki skilin á annan veg en pann, að einhverjir af oss fjórum skólariefndarmönnum, sem ekki greiddu Guðjóni at- kvæði, hafi verið honum fylgjandi pótt vjer mæltum með öðrum. Þessu verðum vjer undirritaðir skólanefndarmenn að mótmæla sem algerlega tilhæfulausum ó- sannindum. Og verður að ætla að kenslumálaráðherra sje lítil pökk á pví, að haldið sje uppi vörnum fyrir gerðir hans í pessu máli á pann hátt, sem fram kem- ur í áminstu blaði. Eigi verður pað heldur talið sanngjarnt, að oss skólanefndarmönnum sje ætl- uð tvöfeldni í pessu máli, pótt vjer höfum eigi látið hr. Guðjón Guðjónsson sæta óvild, þegar hann kom hingað að starfinu, enda pótt tillögur verar um *) Allnr leturbreytingar mínar. SK S. skipun skólastjóia væru að vett- ugi virtar. Hafnarfirði, 16. október 1930. Þórður Endilonsson, Kjartan Ólafsson, Ásgrímur Sigfússon, Helgi Guðmundsson“. Athugasemd pessi tekur rjett fram um fylgi hr. Guðjóns Guð- jónssonar í skólanefndinni. Og varla verður honum talið pað til fylgisauka, að hljóöbært er um bæinn, að eini skólanefndarmað- urinn sem greiddi honum at- kvæði, hr. Davíð Kristjánsson, hafi svignað til fylgis við hann undir mjög pungri „agitation". Önnur afsökun málsvarans sýnist lítið koma málinu við, og pó síst til pess fallin, að bæta hlut ráðherrans gagnvart okkur Hafnfirðingum. Ávirðing ráðherr- ans gagnvart okkur verður pvi meiri, pví saklausari sem hann er talinn af sams konar aðförum annarsstaðar. Þriðja afsökunin sannar greini- lega pað, sem jeg hjelt fram í grein minni, að ráðherrann met- ur „sínar eigin skoðanir“ fram yfiir hagsmuni, heill og skoðanir allra viðkomenda, alveg gagnt stætt háttum og venjum allra göfugra manna, sem finna til ábyrgðar af pví, að vera trúað fyrir hag fjöldans. Þessum málsvara ráðherrans hefir pví tekist með ritgerðinni — alveg gagnstætt ætlun sinni — að pyngja heldur hlut ráðherrans en ljetta, og var pó varla á hann bætandi. Honum hefir og ágaet- lega tekist að sanna, að umkomu- lítill má sá ráðherra vera, er slíkan hefir málsvarann, þegar málstaður er svo óhægur, að mikils pyrfti við. Helgi Guðmundsson.

x

Brúin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brúin
https://timarit.is/publication/448

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.