Brúin - 18.03.1931, Qupperneq 1
3. ár*.
Miðvikudaginn 18. mars 1931.
17. tbl.
Tilkynning.
Ákveðið var 15. þ. m. á að-
alfundi fjelags þess, er gefið liefir
út blaðið »Brúin», að hætta útgáf-
unni, og var undirritaðri stjórn
fjelagsins falið að ráðstafa eign-
um og skuldum blaðsins.
Samkvæmt því hefir stjórnin
afhent hr. ritstjóra Þorleifi Jóns-
syni eignir blaðsins til fullra um-
ráða en hann aflur á móti ábyrg-
ist allar áhvilandi skuldir þess.
Eru því allir þeir, er skuldavið-
skifti hafa átt við blaðið, beðnir
að snúa sjer til hans í þvi efni.
• Bjarni Snæbjörnsson,
Guðm. Einarsson,
Helgi Guðmundsson.
Eins og sjá má af ofanrituðu
hefi jeg keypt blaðið »Brúin« af
útgefendunun, en jeg ætla ekki að
halda útgáfu þess áfram. 1 stað
þess hefi jeg ákveðið að géfa út
nýtt vikublað, svipað að stærð
og „Brúin* var meðan hún kom
út einu sinni í viku.
í þessu n>rja blaði verða rædd
landsmál og er því i þeim mál-
um ætlað að fylgja stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Auk þess mun
blaðið láta til sín taka þau mál,
er varða hag bæjarins í nútíð og
framtíð. Enn fremur mun það
skýra frá helstu viðburðum í bæn-
um, flytja innlendar og erlendar
frjettir, nýungar og fróðleik, eftir
þvi sem rúm þess og aðstaða
leyfir. —
Verð blaðsins verður 85 aurar
fyrir hvern mánuð eða kr. 2,50
fyrir ársfjórðunginn.
Fyrsta blaðinu er ætlað að
koma út föstudaginn 27. m. og
vænti jeg þess, að bæjarbúar taki
því vel og gjörist áskrifendur að
þvf. —
Virðingarfyllst
porleiíur Jóusson.
Bæjarstjornarfundur
var haldinn síðastliðinn þriðju-
dag 10. þ. m. — Sex mál voru
á dagskrá.
Fátækramál.
Samkvæmt fátækralögunum
ber fátækranefnd á þriggja ára
fresti að gera tillögur til stjórn-
arráðsins um meðalmeðlag með
óskilgetnum börnum í kaupstaðn-
um. Lagði fátækranefnd þá til-
lögu fyrir fundinn, að í næstu
3 ár, frá 14. maí n. k. að telja,
yrði meðalmeðlagið eins og það
hefir verið undanfarið, að öðru
leyti en því, að hækkunin úr
kr. 215,00 í kr 250,00 skyldi eftir-
leiðis miðast við 7 ára aldur (skóla-
skyldualdur) í stað 9 ára aldurs,
sem nú er miðað við. — Tillaga
nefndarinnar var samþykt. — ^
Fasteignamál.
Eggert Claessen hæstarjettar-
málaflutningsmaður hafði fyrir
hönd Augústar Flygenring boðiö
bænum forkaupsrjelt að húseign
hans, Vesturgötu 2, fyrir 57 þús-
und krónur. — Fasteignanefnd
lagði til að forkaupsrjettinum
væri hafnaö, og var þaö sam-
þykt. — Væntanlegur kaupandi
að eigninni er Guðrún Eiriks-
dóttir veitingakon'a lijer í bænum.
Ennfremur hafði Indriði Guð-
mundsson boðið bænum forkaups-
rjett að ræktunarlóð sinni á
svonefndum öldum. Söluverð
lóðarinnar var 75 krónur (lóðin
er alveg óræktuð, aðeins girt).
Vænlanlegur kaupandi er Bene-
dikt Jónsson. — Nefndin lagði
til að forkatipsrjettinum væri
hafnað, og var það samþykt. —
Fjárhagsmál.
Endurskoðandi bæjarreikning-
anna, Björn Steffensen, hafði
lagt iyrir fjáihugsuefnd tillögur
um breytt fyrirkomulag á kvitt-
unum fyrir útsvörum og öðrum
bæjargjöldum. — Taldi nefndin
breytingarnar mjög til bóta og
lagði til að þær yrðu uppteknar
fyrir yfirstandandi ár. — Var það
samþykt.
Bæjargjaldkeri hafði sent nefnd-
inni skýrslu um hag bæjarsjóðs,
miðað við 12. febrúar s. 1., ásamt
greinargerð. Benli gjaldkeri þar
á, að fje vantaði til launagreiðslu
starfsmanna bæjarins o. fl. —
Nefndin lagði því til, að bæjar-
stjóra væri falið að útvega 12
þúsund króna lán lil þess að
uppfylla þessar greiðslur og var
það samþykt. —
Hafnarmálið.
Landsmálafjelagið »Fram“ hafði
sent bæjarstjórn svohljóðandj á-
skorun, er hafði verið samþykt
með öllum atkvæðum á fundi
fjelagsins 13. febrúar siðasll.:
»Fundurinn álelur harðlega drátt
þann, er orðinn er á útboði hafn-
arbyggingarinnar og telur bæjar-
stjórn hafa stefnt hafnarmálinu
i tvísýnu með því, að láta fram-
kvæmd verksins dragast svo
lengi, sem raun er á orðin.
Fundurinn skorar því á bæjar-
stjórn að hrinda málinu þegar í
framkvæmd.*
Bæjarstjóri kom með tillögu
um að vísa áskoruninni til hafn-
arnefndar og var ])að samþykt.
En áður en það var gert komu
þeir Bjarni Snæbjörnsson og
Þorleifur Jónsson með svohljóð-
andi tillögu:
»Bæjarstjórn samþykkir að
ráða hæfan mann til að ljúka við
útboðslýsingu á hinum væntan-
legu hafnargörðum, og felur bæj-
arstjóra f samráði við hafnar-
ncfnd að gera það nú þegan*
Um þessa tillögu urðu nokkr-
ar umræður en að þeim loknum
( var tillagau samþvkt með 3 ttt*