Kirkjuritið - 01.03.1956, Blaðsíða 41
Organleikari í 60 ár
Guðmundur Jónsson hreppstjóri
frá Valbjarnarvöllum í Mýrasýslu
átti sjötugs afmæli 13. maí s. 1. Um
fjölda ára hefir hann verið organ-
isti í Stafholtskirkju — og 11 ára
gamall spilaði hann þar í fyrsta
sinn við kirkjulega athöfn. Guð-
mundur er maður ágætlega gefinn
og hefir gegnt og gegnir trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína, en minn-
isstæðastur verður hann vegna
sinna miklu hæfileika á músiksvið-
]nu. Beztu stundir hans munu vera,
er hann situr við hljóðfærið og lað-
ar fram ljúfa tóna, en söngvinir góðir skipa sér umhverfis hann.
Guðmundur hefir verið eftirlitsmaður söngmála í Mýraprófasts-
dæmi undanfarin ár, sóknarnefndarmaður Stafholtssóknar þar
til hann flutti frá Valbjarnarvöllum, — spilað í Stafholtskirkju
við hverja messu — og við guðþjónustur víðar. Glatt hefir það
rnig æ að sjá minn góða vin, Guðmund koma, skyldurækinn og
ahugasaman. Mæli ég fyrir mína hönd og söfnuð Stafholtskirkju,
er ég segi, að ég kunni honum beztu þakkir fyrir langt og gott
samstarf.
Kvæntur er Guðmundur Þórunni Jónsdóttur frá Galtarholti,
hinni ágætustu konu, og dvelja þau með dóttur og tengdasyni
að stórbýlinu Einarsnesi.
Vinsældir Guðmundar mátti glöggt af því marka, að á af-
mæli hans héldu Borghreppingar honum — og þeim hjónum
— veglegt samsæti í samkomuhúsi hreppsins á Brennistöðum.
Var þar margt manna saman komið, heiðursgestinum góðar gjaf-
ir gefnar, margar ræður fluttar, svo og kveðja í ljóðum.
Auðna og ánægja fylgi ætíð Guðmundi og fjölskyldu hans —
°g sem lengst vona ég að fá að heyra orgelleik hans við guðs-
þjónustur í Stafholtskirkju. Bebgur Björnsson.