Menntskælingur - 01.10.1948, Blaðsíða 2
2
MENNTSKÆLINGUK
Œjartsýni -
Það er sól yjir sundum og vogum,
og sumar í huga ég finn.
A gleðinnar leiftrandi logum
hrennur leiðindahugurinn minn.
Eg er frjáls eins og fuglinn í geimi,
og ég ferðast um óskanna lönd.
Lífið er líkt sem mig dreymi
og ég leysi’ alla fjötra og bönd.
Allt ég lít nú án sora og sorga,
og í sveitunum erfiðið dvín.
Ui skuggunum skrautlegra borga
berast skynsemisrœður lil mín.
Því það er sem veröldin vaki
í vissu um batnandi tíð.
Um að ánauð og böl sé að baki,
um blessun og frelsi hjá lýð.
Sæm. Helgason.
Stofnun hindindisfelatfs M. A
í allflestum æðri skólum lands-
ins eru starfandi vínbindindisfélög.
Félög þessi hafa með sér lands-
samband, er nefnist Samband bind-
indisfélaga í skólum. Hefir sam-
band þetta valið sér einn dag ár-
lega, 1. febrúar, sem útbreiðslu- og
baráttu-dag, og hefir sá dagur að
undanförnu verið notaður til bind-
indisfræðslu í skólum landsins.
Hér í M.A. hefir slíkt bindindis-
félag verið starfandi og verið í
Sambandi bindindisfélaga í skól-
um.
Nú um allmörg ár hefir félag
þetta legið í dái, og hefir enginn
sýnt áhuga á að endurreisa það.
Ilins vegar hefir vínnautn nemenda
farið sívaxandi hin síðari ár og
þörfin fyrir slíkan félagsskap því
sízt farið minnkandi.
Stofnun bindindisfélags í skólan-
um gæti, ef áhugi væri fyrir hendi,
bæði í senn aukið félagslíf nem-
enda og verið sterkt vopn í barátt-
unni gegn áfenginu.
Það er fyrst og fremst skylda 6.
bekkinga að hrinda máli þessu í
framkvæmd.
AÐALFUNDUR Í.M.A.
var haldinn 6. okt. s.l. í stjórn fyrir þennan
vetur voru kosin: Bragi Friðriksson, formað-
ur, Árnína Guðlaugsdóttir, Axel Kvaran (öll
endurkosin), Vilhjálmur Skúlason og Gunnar
Þorbergsson.
Formaður bauð stjórnarmeðlimi velkomna
til starfsins og rakti helztu viðfangsefni fé-
lagsins á komandi skólaári. Félagið mun að
sjálfsögðu gera sitt bezta til þess, að íþrótta-
líf skólans verði mikið og ánægjulegt. Félag-
ið mun gangast fyrir keppni í hinum ýmsu
íþróttagre'num, svo sem verið hefir.
Iþróttaæfingar eru þegar hafnar innanhúss
og dómaranámskeið í knattspyrnu stendur
fyrir dyrum.
Félagið hefir í hyggju að gangast fyrir lag-
færingu á íþróttavelli skólans, en hann er nú
í mjög slæmu ásigkomulagi. Svo getur farið,
að knattspyrnumól skólans dragist nokkuð
vegna þess. Blakmótið mun hefjast í nóvem-
ber, en handknattleiksmótið í byrjun febrúar.
í vetur munu verða æfingar í frjálsum
íþróttum í samráði við Þór og K.A. Ollum fé-
lögum Í.M.A. er he'mil þátttaka.
Af öllu starfi Í.M.A. má sjá, að félagið er
vinsælt hjá nemendum og fyllsta ástæða að
vona, að félagsstarfið gangi að óskum í vetur.