Menntskælingur - 01.10.1948, Blaðsíða 4
4
MENNTSKÆLINGUR
ARS LONGA, VITA BREVIS
MAGNÚS MOSAVAL hallaði
scr hægt útaf í legubekknum og
imgleiddi stærðfræðiþraut, sem
piltungi nokkur hafði beðið hann
að hjálpa sér við. Svart hárið var
strokið slétt aftur, og ilmur af
smyrsli angaði úr því. Fötin voru
slétt og skór gljáandi, en þó gamlir
og slitnir; hálsbindi rauðbrúnt,
knýtt með stórum vellöguðum hnút.
Skólasetningin
(Framhald aj nœsta síðu á undan.)
FJÖLDI NEMENDA.
í skólanum í vetur verða um 340
nemendur, eða álíka margir og s.l.
vetur. í fyrsta sinn í sögu skólans
verður 6. bekkur þrískiptur og 3.
bekkur fjórskiptur.
ÁVARP SKÓLAMEISTARA.
Að lokum ávarpaði skólameist-
ari nemendur. Ræddi hann hið
mikla böl, sem stafar af ofnautn
áfengra drykkja, og brýndi fyrir
nemendum, að vera vel á verði fyi--
ir freistingum Bakkusar, og verja
tómstundum sínum vel.
Hann bað nemendur að gæta í
hvívetna sæmdar sinnar og skólans.
Benti hann þeim á, að hvar sem
þeir færu, og hvað, sem þeir gerðu,
væru þeir iafnan að stuðla að skól-
ans sæmd eða vansæmd.
Augun voru eins og gerist og geng-
m, og nefið sérlega beint. Litar-
háttur alldökkur og yfirbragð fram-
andi, ef til vill suðrænt. Hendur
smáar, og fingur langir með skom-
um nöglum. Hann var í næstefsta
bekk Lærða skólans og auk þess
nam hann gamaldags málaralist
hjá karli, sem bjó í timburhúsi og
hafði ofan af fyrir sér með því að
mála landslagsmyndir fyrir al-
menning.
Magnús hafði naumast hagrætt
sér á dívaninum áður en drepið var
á dyr, og inn gekk Dianna frænka
hans og vinkona. Hún var líka í
skólanum og auk þess hafði hann
þekkt hana frá því að þau voru
hæði ofurlítil peð. Dianna angaði
af dufti, sem hún hafði keypt dag-
iim áður. Hún skaut ástleitnum aug-
UiTí til Magnúsar og ávarpaði hann
með galsafengnu orðalagi. Magnús
tók lítillega undir og hélt áfram að
hugsa, meðan Dianna leit yfir dag-
blað á borðinu. Síðan settist hún
fvrir framan hann á legubekkinn
cg tók að kitla hann.
— Þú ert nú meiri aulinn, sagði
hún. Hann leit á hana köldu stríðn-
isbrosi og sagði:
— Hvern fjandann varðar þig
um það.
— Þú heldur að þú sért einhver
listamaður.