Menntskælingur - 01.10.1948, Blaðsíða 8
8
MENNTSKÆLINGUR
Leikfélag M. A.
Páll Krislinsson
jonn. Leikfélags M. A.
Stofnfundur Leikfélags M.A.var
haldinn í hátíðasal skólans 18. okt.
1947. Kosin var stjórn fyrir félag-
ið og skipuðu hana: Páll Þór Krist-
insson, form., Hafsteinn Baldvins-
son, Guðrún Tómasdóttir, Baldur
Iíólmgéirsson og Sverrir Svavars-
son. Fundurinn var mjög fjölmenn-
ur. Meðlimir félagsins voru 176.
Skönnnu eftir stofnfund félags-
ins var hafinn undirbúningur að
leiksýningu. í fyrstu gekk erfiðlega
að afla leiks, er heppilegur yrði til
sýningar. Þó tókst að lokum með
aðstoð Jóns Norðfjörðs, leikara, að
fá leikinn „Saklausi svallarinn“
oftir Arnold og Bach. Jón Norð-
fjörð annaðist leikstjórn.
Þá var að útvega leikendur og
Féiagslff 1 M
gekk það greiðlega. Æfingar hóf-
ust um mánaðamótin febrúar og
marz og var unnið vel og kappsam-
iega með þeim árangri, sem flest-
um er kunnur.
Sýningar hófust 10. apríl, og
var leikurinn sýndur 9 sinnum við
ágæta aðsókn. Sökum upplestrar-
leyfis 6. bekkjar urðu sýningar að
hætta fyrr en skyldi.
Hagnaður var góður, og var hon-
um mestöllum varið til Utgarðs, í
Nemendasjóð, Píanósjóð og í aðra
sjóði skólans. Þá á Leikfélagið
einnig nokkuð í sjóði.
Rétt þykir að taka það fram, að
sökum þess hve liðið var á vorið
var ekki unnt að lialda félagsfund
eítir að sýningum lauk.
I M. A.
Nýlega var haldinn aðalfundur
I.M.A. Fráfarandi formaður, Bragi
Friðriksson, flutti skýrslu stjórnar-
innar frá s.l. ári. Skýrslan bar það
með sér, að félagslífið hafði verið
rdlfjörugt og viðburðaríkt á árinu.
Formaður minntist fráfarandi
stjórnarmeðlima, þeirra, sem nú
eru horfnir á braut héðan. Það voru
þeir Hafsteinn Baldvinsson og Þor-