Menntskælingur - 01.10.1948, Side 14
14
MENNTSKÆLINGUR
ins til þess að hleypa þeim út. Heili
minn var næstum því hættur að
starfa, svo að mér láðist að leysa
halaböndin. Kýrnar fögnuðu frels-
inu og hlupu fram á stéttina, en
scóðu allar fastar í dyrunum. Vár
nú svo þéttskipað við útgönguna,
að ég komst sjálfur engan veginn
út. Greip mig þá ógurleg hræðsla,
svo að ég tók að öskra með kún-
iim. Til allrar hamingju kom pahbi
þarna að, og var okkur þar með
borgið. Eg gekk fram á hlaðið,
staðráðinn í því að hætta öllum
b'örgunartilraunuin. Frammi á
hlaðinu hafði fólkið safnazt sam-
an. Bína gamla hafði vafið sig
sjali og klæðzt stígvclum af Birni
bónda sínum, sem reyndar voru
Læði ætluð á hægra fótinn. Hún
mælti ekki orð, en tár blikuðu í
augum hennar. Björn gamli var í
dökka jakkanum og vaðmálsnær-
Luxunum einum fata. Hann studd-
ist fram á hækjuna, liorfði inn í
glóðina og sagði, að all'af hlytist
það sama af óvarkárninni.
Tnn vinnumaður aekk meíi
skyrtuermarnar brettar upp fyrir
olnboga. Þótti honuni bersýnilega
eigi alllítið til afreka sinna koma.
Kýrnar höfðu einnig þyrpzt saman
og störðu glottandi á þetta allt.
Morguninn rann upp, grár og
kaldur. Það var ömurlegt um að
litast.
Þar sem gamli hærinn hafði stað-
ið, var nú aðeins öskubingur. Hug-
ur minn var gagntekinn söknuði.
Eg minntist stundanria, þegar stór-
liríðarnar geystust áfram, hversu
gott var þá að dveljast innan veggja
lians. Einnig mundi ég stundirnar,
ei ég hafði verið að leikum í bæjar-
simdinu, þá er veður var gott. Stór-
hríðar og stonnar höfðu ekki megn-
að að fella hann.
Meira en hálfa öld hafði hann
stnðið stoltur hér á hólnum og boð-
ið öllu byrginn. En í nótt hafði
hann ekki uggað að sér, þegar eld-
urinn læddist að honum í myrkr-
inu og með sinni alkunnu flærð bar
að lokum sigur úr býtum.
STJ ÓRNARKOSNINGAR
í MÁLFUNDAFÉL. „HUGINN“.
fóru fram dagana 5. og 9. okt. s.l. Formatíur
var kjörinn Gunnar Schram með 118 atkv.
Halidór Þ. Jónsson hlaut 116. í stjórn voru
kjörnir: Þórarinn Björnsson, skólameistari,
Þorvaldur Arason, Ólafur Haukur Árnason og
Gústaf Kuhn. í blaðstjórn MUNINS voru
Njörnir: Hjörtur Eidjárn, kennari, Ólafi'r
Haukur Árnason og Haukur Ragnarsson.
SKÁKFÉLAG M.A.
Nýlega var stofnað Skákfélag M.A.
Ber að fagna stofnun þess, og eiga þeir nem-
endur þakk'r skildar, er þar höfðu forgöngu.
Formaður félagsins var kjörinn Gunnar
Þorbergsson, og meðstjórnendur Þorsteinn
Jónsson og V.lhjálmur Þórhallsson.
Viljum vér beina þeim tilmæium til þessar-
ar nýkjörnu stjórnar, að hún athugi mögu-
leika á að komið verði á skákmóti innan
skólans, þar sem keppt verði um titilinn
„Skákmeistari M.A. 1948“.