Einingin - 01.06.1902, Blaðsíða 2
2
Einingin.
i. blað.
þess er vænst, að bindindisfélögin styðji blaðið með því að útbreiða
það eftir föngum.
Verkið, sem vér bindindismennirnir erum að vinna, er mjög
þýðingarmikið og háleitt verk, óefað eitt hið þýðingarmesta, sem
unnið hefir verið á þessu landi, síðan kristni var lögtekin, og vér
hljótum að finna til þess, hve mjög það er áríðandi fyrir oss, að
vinna að því með hyggindum, óþreytandi áhuga og, umfram alt,
samtökum og sameiginlegum bróðurhug hver til annars. Það er
enn þá mikið ógert, og óvíst að nokkurum af oss, sem nú lifum,
auðnist að standa á orustuvellinum, þegar sigurinn vinst að fullu;
en vér getum átt eins mikinn þátt í honum fyrir því, ef vér vinnum
það, sem þarf að vinna og hægt er að vinna, meðan vorir dagar
endast, — vinnum saman eins og bræður, og tileinkum oss sig-
urinn eins og bræður.
Til þess að »Einingin« geti stutt að þessu, þarf hún að njóta
aðstoðar góðra manna. Sérstaklega vil ég biðja öll bindindisfélög
eða formenn þeirra, að senda henni hið allra fyrsta stutt yfirlit
yfir ástandið, hvern í sínu félagi, félagatölu, eignir, hve há séu
inntökugjöld og ársgjöld, hve oft séu haldnir fundir, hvenær félagið
var stofnað, hver er formaður þess og varaformaður, hvernig
framtíðarhorfur þess séu o. s. frv.
Eg vonast fastlega eftir því, að í flokki bindindismanna hér
norðanlands rísi upp eftirmaður síra Magnúss sál. Jónssonar frá
Laufási, sem beri merkið jafn-hátt og hann, svo að hjá oss öllutn
vakni lifandi löngun til að vinna gagn voru göfuga, góða málefni.
Með kærri kveðju til allra, sem unna oss þeirrar gæfu, er ég
yðar einl.
Bjarni Lyngholt.
5. ársþing
Umdæmisstúkunnar nr. 3
var sett á Akureyri föstud. 23. maí 1902, kl. 63lt síðdegis, af U. Æ. T.
Eftir að rannsökuð höfðu verið kjörbréf fulltrúa þeirra, er þegar voru
mættir, veitt Umdæmisstúkustigið, og skipað í nefndir til bráðabirgða, var
fundinum frestað til kl. 10V2 árdegis næsta dag, og þá aftur tekið til
starfa á Umdæmisst. stiginu. Það helzta, sem gerðist, var þetta: