Einingin - 01.06.1902, Side 3
i. blað.
Einingin.
3
1. Skrásettir 4 meðlimir.
2. U. R. og U. S. sektaðir fyrir fjarveru.
3. Upplesin skýrsla U. Æ. T. og framlögð fylgiskjöl við hana.
4. Samþ. reikningur U. Regluboða síra Árna Björnssonar, að upphæð
kr. 6.80.
5. Upplesinn reikn. U. G. og afhentur fjármálanefndinni.
6. Lesið upp ávarp frá F. U. Æ. T.
7. Lögð fram tillaga Frkv.n. um breyting á skattgreiðslu í umdæminu,
og henni vísað til aukalaganefndar. Að svo komnu var fundi frestað til
kl. 4V2 og þá tekið fyrir:
8. Undirbúningur hins sameiginlega bindindisfundar 25. maí. Kosin nefnd
til að íhuga það mál og semja frumvarp til dagskrár.
9. Upplesið nýtt form fyrir skýrslum til umdæmisstúkunnar, og samþykt
að stúkur í umdæmunum skuli útfylla það framvegis.
10. Umdæmisstúkuþingið skorar á Framkv.n. Stórstúkunnar, að halda
næsta Stórstúkuþing á Akureyri. Samþ. í e. hl.
11. Rætt um stofnun blaðs fyrir umdæmið — úrslitum frestað þar til álit
bindindisfulltrúanna væri fengið.
12. Framkvæmdarnefndinni falið að annast um útbreiðslu í umdæminu,
og tekið fram að útbreiðsla innan Reglunnar skyldi sitja í fyrirrúmi, heim-
sókn stúkna o. fl. þ. h.
13. Framkvæmdarnefndinni falið að skora á Alþingi að samþykkja lög,
er banni alla vínsölu á skipum, er ganga eftir fastri áætlun hér við land,
og eru styrkt til þeirra ferða af landsjóði eða öðrum opinberum sjóðum
hér á landi.
14. Rætt um minningarsjóð síra Magnúss Jónssonar, og samþ. að leita
samskota til hans á hinum sameiginlega bindindisfundi þ. 25. maí.
15. Rætt um gistihús, og ráð til að halda þeim uppi, án áfengissölu.
Engin ákvörðun tekin. Þá var fundi frestað til kl. 9 árdegis, næsta dag,
og þá aftur tekið til starfa.
16. Samþykt dagskrá fyrir hinn sameiginlega bindindisfund.
17. Aukalaganefndin lagði fram tillögur til breytingar og viðauka á
aukalögum Umdæmisstúkunnar er allar voru samþyktar*. Að því loknu
var fundi frestað til kl. 5 síðdegis, með því tími var kominn til að setja
sameiginlega fulltrúafundinn.
Að honum afloknum var aftur settur fundur kl. 5 síðd.
18. Fjármálanefndin lagði fram endurskoðaða reikninga U. R. og U. G.
Við reikning U. G. ekkert athugavert. Við reikning U. R. voru þessar úr-
skurðartillögur bornar upp og samþyktar:
* Aukalögin veröa send í allar stúkur í Umdæminu, þegar þau lmfa hiotið staðfesting St. T.