Fríkirkjan - 01.07.1900, Page 5
101
húsinu og var lengi launað af fé skólans. Aðstoðarmonn
þeirra, heyrararnir („lókátar"), bjuggu í lélegum klefum í skóla-
húsinu, og það opt saman við marga lærisveina og íifðu á
gjöfurn líknsamra borgara, fóru húsa og bæja á milli með bein-
ingapokana á bakinu og frá einum skólameistaranum til ann-
ars, og leystu kennslustarfið af hondi, eins og „engin lifandi sál
væri heima.“ Stundum var heill hópur skólasveina í för með
þeim, sem þá reikuð^ fram og aptur um byggðirnar og lifðu
á því að betla og stela.
Latinukunnáttan var í því fólgin optast nær, að kunna
fyrirskrifaðar greinar utan að, en varla gátu þeir komið saman
einni latneskri máisgrein óbjagaðri, og hefði eitthvað verið
farið út í þá sálrna við þá, mundu þeir hafa svarað líkt og
Eilífur prestur í Gufudal vestra, þegar haim var spurður út úr
kirkjubænunum, sem átti að syngja í hverri messu: „Þér
spyrjið mig um það, sem vandast fáið þér.“
Háskólarnir eru komnir af höfuðkirknaskólunum. Á 12.
öldinni var fjöldi duglegra kennara í sumum þeim skólum, og
að þeim dreif óvanalegur fjöldi af námssveinum. Þessar frjálsu
samkomur öðluðust smátt og smátt sérstök réttindi og urðu
að lögbundnum félögum. Þeir fengu sérstök lögsagnarumdæmi
til forráða, og rótt til að veita lærdómsnafnbætur háskólanna
(Baccalaureus-, Magister-, Licentiat- og Doktors-nafnbótina).
Nemendum var fyrst skipt niður eptir þjóðerni, on sú skipting
lagðist fljótt niður og var þá farið eptir vísindagreinunum,
sem skólarnir kenndu.
Því þessir háskólar voru ekki stofnaðir fyrir öll vísindi,
eins og síðar. Háskóiinn í Pai'ís varð guðfræðisháskóli ailrar
Norðurálfunnar og því nákomnastur kirkjunni. Guðfræðisdeild
þess skóla var nofnd Sorbonne (Svartiskóli). Þar var Sœmundur
hinn fróði (f 1133) að námi um hríð og vissi enginn, hvar
hann var niður kominn, og þar hitti Jón Ögmundsson hann,
er seinna varð fyrsti biskup á Ilólum (f 1121), og varð hann
frægur af að færa ættjörðinni týnda soninn. í þeim skóla
lásu menn rit Aristoteless og litið eitt annað í griskri heim-
speki.