Fríkirkjan - 01.07.1900, Page 9

Fríkirkjan - 01.07.1900, Page 9
105 ekki gjört með því einu, að framsetja staðliœfingar eða gjöra þeim kunnar „niðurstöður“ („Resultater"!. Til sannrar „upp- lýsingar" útheimtist, að gefnar séu ástæður fyrir því, sem staðliæft er, góðar ástæður og gildar, svo að sjá megi að stað- hæfingarnar séu réttmætar. Til sannrar „upplýsingar" útheimt- ist, að það verður að sýna fram á þann veg, sem farinn hefur verið til að komast að niðurstöðunum. En jafnaðarlega er vegur hinnar vísindalegu rannsóknar bæði langur og þröngur, með mörgum vöntunum og vonbrigð- um, áður enn niðurstöður náist. Þannig var vegur þeirra rann- sóknara, sem fyrstir gengu og ruddu brautina, og nokkurs hins sama hafa þeir menn ávallt orðið varir, er á eptir þoim fylgdu og gengu í spor þeirra. Vísindaleg bifliurannsókn er ekki hvers manns meðfæri, og getur ekki verið það. Það útheimtast nokkur skilyrði. Séu engin af skilyrðum þeim, sem á hefir verið drepið, fyrir hendi, þá er það ótímabært og ótilhlýðilegt að koma fram með þessa „upplýsingu"; og komi hún fram eigi að síður, þá veldur það tjóni og óskunda; það vekur hneixlanir og misskilning. En eigi áður nefnd skiiyrði sér stað, eða hin helztu af þeim, þá er tírni til að koma fram með „upplýsingu" þessa, og meira að segja getur það orðið óumflýjanlega nauðsynlegt, sem sé ef áður hefur verið valdið hneixli og vakinn misskilningur með ótímabærum íráskýringum ..." Grein sú, sem hér er prentuð í íslenzkri þýðingu, er upp- haf og inngangsorð að fyrirlestri um þetta efni. Leturbreyt- ingar eru gjörðar af þýðanda. Fyrirlestur þessi er haldinn í því skyni að sýna fram á nauðsyn og ágæti hinnar vísindalegu biflíurannsóknar. En eitt heimtar höfundurinn mjög svo ákveðið, sem sé góðar og gildar ástæður fyrir staðhæfingum þeim, er hin vísinda- lega biflíurannsókn heldur fram, og niðurstöðum þeim, er hún þykist liafa komizt að; að öðrum kosti séu þær ekki lagðar fram fyrir almenning. Þotta er einmitt það, sem hingað til hefur gleymzt í „Verði ljós!“; það heíur vantað hinar góðu og gildu ástæður. Mjög margt af því, sem hinir vísindalegu rannsóknarar biílíunnar halda fram nú á dögum, er ekki annað en getgátur

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.