Alþýðublað Hafnarfjarðar - 12.01.1930, Page 2
Alþýðublað Hafnarfjarðar.
Alpýðan verzlar h]á peim, sem anglýsa í hennar blaði.
Kosningaskrifstofa
AKþýðttflokksinis fi Hafnarfirði er á
í . ■ " . J; ' *•„( ' \ \
Linnetstíg 1 (gömlu kjötbúðinni), opin alla
virka daga frá kl. 10—12 árd. og 1—10 síðd.,
sími 236.
Reikningar
á bæjarsjóð,
sem tilheyra áiinu 1929, skulu aihentir gjaldkera fyrir
15. þ. m.
Þeir, sem eiga ógoldin gjöld til bæjarsjóðs, eru á-
mintir um að greiða þau sem allra fyrst, svo að bæj-
arsjóður geti staðið við sínar skuldbindingar.
Undir skilvísi gjaldendanna er afkorna bæjarins
komin. Bæ]arg|aldkerinn.
Valdimar Long
selur svo fjö’.breyttar vörur, að ógerningur er að telja
þær upp i stuttri ai glýsingu.
Vanhagi yður um eittnvað, þá geiið svo vel að
síma, senda eða fara í
•• : *
Verzlun Valdimars Long.
Símar 13 og 138
Gunnlangur Stefánssou
selur fjölbreyttastar, ödýrastar og beztar vörur
allra kaupmanna bæjarins.
Þar eiga allir að verzia, sem vilja fá gott
og mikið fyrir Íítið fé.
Símar 19 og 189.
krónur, og þó verður ei annað
sagt, en að góðæri hafi verið
alla þeirra stjórnartið, að undan-
skildum 2 árum eftir striðslokin.
Hér söfnuðu menn, sem fengust
við útgerð og verzlun, miklum
auði, og mátti pvi segja, að þrá-
faldlega hafi niðurjöfnunarupp-
hæðir verið alt of lágar, alt að
helmingi lægri en eðlilegt var,
borið saman við gjaldþoi og
við önnur kauptún. En
það sorglega var, að að einp
fítiil hluti skuldanna varð til fyrir
framkvæmdir, heldur varð það að
mestu eyðslufé til átu og annara
,íí>arðsamra athafna.
Pað var víst ekki hægt að segja
(annað, en að hér væru menn, sem
kunnu að búa fyrir sjálfa sig.
Segjum, að fyrir vanrækslu og
eigin vemd, séu skuldir bæjar-
ins 300 000,00 krónum hærri en
þær þyrftu að vera, og ef keypt-
ar væru allar hafnarlóðirnar, sem
þeir afhentu sjálfum sér, fyrir
það verð, sem eigendur nú .munu
krefjast, þá mun sanni nær, að
þær upphæðir til samans inyndu
úema alt að 1 milljón króna. Að
þessu athuguðu sést, að hin
gamla íhaldsstjóm hefir orðiö
ærið þungur ómagi á bænum i
fortíð, og er sú mynd ærið lík
öðrum íhaldsmyndum hér á landi
pg hjá öðrum þjóðum é ýms-'
um tímum.
Það er höfð eftir forföður hinn-
ar svo kölluðu Reykjahlíðarættar
þessi setning: — „Gæfi guð oss
hallæri, þá væri gott að lifa.“
Hann var stórbóndi sinnar tíðar.
Sagan segir frá mörgum mönn-
um, er seldu málsverði fyrir heil-
ar jarðir.. Á stríðsárunum er haft
eftir ýmsum kaupsýslumönnum,
þegar þeir græddu sem mest og
'þúsundir og milljónir dóu úr
hungri og alls konar eymd: —
„Guð gæfi að stríðið héldist sem
iengst.“ Nokkru eftir aldamót var
það algengt, að atvinnurekendur
færu til bláfátækra verkamanna
ium áramótin, þegar fátæktin var
sem sárust, og biðu þeim ýmist
,lán eða vinnu, ef þeir að eins
vi!du vinna hjá þeim fyrir lægr?
kaup en mögulegt var fyrir hús-
föðurinn að komast af með til
að ha’.da lífi í fjölskyldunni, og
voru boð þessi venjulega álitin
vinaboð. Þegar átti að hefja hér
samúðarverkfall út af verkfalli
kvenn^ í Reykjavík, sagði einn
vel metinn borgari: — „ÞakkiÖ
þið fyrir að skipin koma hingað
hieð afla og vinnu frá Reykjavík,
þess meira hafið þið til að bíta
og brenr.a.“ Einn af stærstu „fram-
kiJendum" Vesturlands neitaði
að selja fátækum verkamönnum
kol skömmu fyrir jólin i vetur,
nema þeir hættu við það áform,
er félag þeirra haföi sett urp
kaup komándi árs, og sem þó
var lægra en alinent gerist.
Þessar myndir, sem hér eru
teknar og sýndar, og sem mjög
eru á víð og dreif, eru settar
hér til þess aö sýna hvemig eig-
inhagsmunastefnan verkar út frá
sér og fram í tfrnann, en ekkj
til að ófrægja neina sérstaka
'menn.
Taki maður svo hina hliðina,
mennina ., sem aldrei kunna að
búa fyrir sjálfa sig, verða mynd-
jrnar harla ólíkar. Þeir lifa fyrir
líðandi stund, og eru sem fuglar
himins,, síuppteknir af að hugsa
um velferðarmál fjöldans og
þeirra updirokuðu. Þeir eru sero
gendiboðar meistarans mikla, til
að týna það upp af vígvelli til-
verunnar, sem örmagnast hefir,
særst eða svívirzt, og koma því i
hið mikla sjúkrahús mannúðar og
réttlætis, sem nú er óðum að
stækka og fullkomnast og sem er
teiknað og bygt af vinum og
mannbótamönnum mannkynsins.
Mér virðist það ærið kaldræn
hugsun að álykta, að það séu
tilviljanir einar, er valda, að
mannvinir og imkihnenni fæðist
með ýmsum þjóðum og á ýmsum
tímamótum og umskapi andlegt
og fjárhagslegt ástand á fáum
tugum ára. Hvað á maður að
segja um Jón Sigurðsson forseta
og nokkra samtíðarmenn hans,
Skúla fógeta o. f 1. ? Menn, sem
létu sig ékkert varða um sijro
eigin hag.
(Frh.)
Dauíd Kristjánsson.
F«*éttir.
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði er á Linn-
etstíg nr. 1 (gömlu kjöthúðinni),
opin alla virka daga frá kl. 10
—12 árd. og kl. 1—10 síðd.
St. „Röskva nr. 222“ heldur
fund annað kvöld (mánud. 13.
þ. m.) á venjulegum stað og
tima. — Félagar eru beðnir að
fjölmenna, því að séu nógir á-
hlustendur, er ávalt nóg af góðu
og skemtilegu fundarefni, og
nautn er að sitja i nýju húsi.
Undanfamar vikur hefir Bjarni
læknir Snæbjömsson varið mikl-
um tíma og erfiði í að reyna að
endumeisa og lífga íhaldið í
Hafnarfirði, og hefir hann sér ti.l
aðstoðar valið Þórð lækni Edi-
lonsson til að styðja þá, sem
Bjami hefir komið á afturfæt-
uma. Er það erfitt verk og ilt,
því að skjögur er að sögn. far-
andkvilli innan flokksins og hann
á töluvert háu stigi. Annars koma
þessar tafir sér mjög illa hjá
læknunum, því ; að i bænuro
ganga margs konar sjúkdómar,
og væri því gott ef einhver ung-
ur og efnilegur læknir, sem þó
ekki væri í hinu „byltingasihn-
aða" Læknafélagi Islands, vildi
setjast hér að, þó ekki væri nema
fram yfir kosningarnar.
l Fyrirspurn:
Var Gísla Sigurgeirssynj boðið
þriðja sætið á B-listan.um, eða i
átti hann kost á nokkm líklegu I
sæti á listanum?
Suar:
Blaðið hefir sannfrétt, að svt>
muni ekki hafa verið, en „Moggi*
frá 29. dez. s. 1. vjrðist vita
betur.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
_______Þorv. Árnason.
Alþýðupra»tsmiðjaa.