Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1993, Page 1
KRAFTUR í FRAMKVÆMDUM
- hjá Hafnarfjarðarbæ á síðasta ári
Þrátt fyrir ýmsa utanaðkomandi erfið-
leika, samdrátt og kreppu í Þjóðfélaginu,
voru framkvæmdir á vegum Hafnarfjarðar-
bæjar miklar á nýliðnu ári. Enda var það yf-
irlýst stefna bæjaryfirvalda að mæta krepp-
unni með sókn, taka á atvinnuleysinu sem
hefur verið sívaxandi í samfélaginu öllu
með því að flýta ýmsum framkvæmdum.
Hér skulu aðeins nefndar nokkrar fram-
kvæmdir sem eru í gangi af bæjarins hálfu
sem og í samstarfi Hafnarfjarðarbæjar við
ýmsa aðila á árinu 1992 og munu koma bæj-
arbúum til góða um ókomna tíð.
1. Framkvæmdir við nýjan tónlistarskóla
og safnaðarheimili við Hafnarfjarðarkirkju
hófust og verður fyrsta áfanga verksins lok-
ið um næstu áramót. Verður þá mannvirkið
fullbúið að utan ásamt lóð. Verður þá þegar
hafist handa við frágang innanhúss og
þeim verkþáttum lokið á árunum 1994/95.
2. Tekin var fyrsta skóflustungan að nýj-
um leikskóla í Setbergshverfi í sumar, sem
ber nafnið Hlíðarberg. Starfsemi hefst þar í
mars næstkomandi og verður þar rými fyrir
rúmlega 130 börn.þá var s.l. sumar opnað-
ur nýr og glæsilegur gæsluvöllur við Hlíðar-
berg. Ennfremur fékk leikskólinn við Arnar-
berg góða "andlitslyftingu" og lokið við
umfangsmiklar endurbætur á húsinu og
það stækkað verulega.
3. Frarnkvæmdir hafa verið í fullum gangi
við 2.áfanga Setbergsskóla, sem tekinn
verður í notkun næsta haust og mun stór-
bæta aðstöðu grunnskólanemenda í Set-
bergsshverfi.
4. Nýr golfskáli Keilis var tekinn í notkun
s.l. haust, sem og endurbætur á vellinum.
Fyrir dyrum stendur gerð nýs níu holu golf-
vallar í samstarfi bæjarins og Keilis suð-
vestur af Hvaleyrinni ; á hrauninu upp af
Sædýrasafninu.
Þann 16. júní sl. sumar var fyrsta skóflustungan tekin að nýja leikskóla-
nurn í Setbergi.Ungir Hafnfirðingar þau Ágúst, Hrefna, Linda Sif og
Friðrik Þór unnu verkið undir stjórn Guðmundar Árna bœjarstjóra
6. Gangur mála á Ásvöllum hjá Haukunum
hefur verið í góðu lagi. Síðastliðið sumar
var lokið við gerð grasvallar á svæðinu,
sem verður aðalleikvangur, en áður var lok-
ið við framkvæmdir við gervigrasvöll. Þá
var komið upp flóðlýsingu við gervigrasvöll
og búningshúsi einnig komið í nothæft á-
stand. í undirbúningi eru framkvæmdir við
bætta aðkomu að svæðinu fyrir akandi sem
gangandi vegfarendur, en erfiðlega hefur
gengið að ná um þau mál samkomulagi við
Vegagerð ríkisins, sem hefur yfir Reykjanes-
brautinni að segja. þess má þó vænta að í
þau mál verði hægt að ganga með krafti
með hækkandi sól, þannig að öryggi barna
og unglinga verði tryggt á leið til og frá
hinu glæsilega svæði Haukanna.
7. Lokið var við gerð nýs 220 metra við-
legukants sunnan megin í Hafnarfjarðar-
höfn, framhald af Suðurgarði. Bætir það
stórum annars ágæta aðstöðu fyrir allar
tegundir skipa og báta í höfninni.
8. í samstarfi bæjar og félagasamtakanna
Hafnar hefur risið 40 íbúða hús fyrir aldr-
aða á Sólvangssvæðinu. íbúðirnar verða af-
hentar sumardaginn fyrsta, sem er ekki
langt undan.
9. Nýtt hverfi, Mosahlíð , hefur verið brotið
undir byggð og eru fyrstu íbúar þegar flutt-
ir inn (sjá annars staðar í blaðinu). Eftir-
spurn eftir lóðum í hinu nýja hverfi hefur
verið ágæt og verður gatnagerða- og hol-
ræsaframkvæmdum við síðari áfanga Mosa-
hlíðar haldið áfram á næstu mánuðum,
þannig að enn fleiri lóðir verða á boðstól-
um á næstunni.
10. Verkdeild Iðnskólans við Flatahraun
fékk umtalsvert viðbótarrými til umráða ný-
verið þegar áður ónothæft húsrými var lag-
fært og gert sem nýtt
5. Bygging reiðskála fyrir hestamenn í Sörla upp við skeiðvöll félagsins við
Kaldárselsveg hefur gengið vel fyrir sig síðustu misseri og er skammt í að
mannvirkið verði tekið í notkun.
11. Þessu til viðbótar var ráðist í margháttaðar framkvæmdir í bæjarland-
inu, svo sem gatnagerð, malbikun, gangstéttagerð, fegrunarframkvæmdir og
fleira og fleira.Auk jiess var þjónusta á fjölmörgum sviðum bætt og löguð.
Má þar nefna nýtt strætisvagnakerfi fyrir Hafnfirðinga, sem er í raun bylting
á samgöngukerfi almenningsvagna hér í bæ.
OG ENN MEIRI KRAFTUR FRAMUNDAN
En þrátt fyrir gott síðasta ár í framkvæmdum á vegum bæjarins er enn-
þá meira á döfinni á hinu nyýbyrjaða ári. Lokið verður við þá verkáfanga
sem eru í gangi og hafist verður handa við ný verkefni. Meðal þeirra eru:
1. Nýr Ieikskóli á Hvaleyrarholti sem byrjað verður á á næstu vikum og
lokið við um næstu áramót og þá tekinn í notkun. 130 börn munu fá þar
skjól og fræðslu.
2. Undirbúningur og upphaf framkvæmda við 2.áfanga Hvaleyrarskóla.
3. Átak í holræsamálum bæjarins, sem að vísu eru í betra lagi en í flest-
um sveitarfélögum öðrum. En þar er stefnt að frekari umhverfisvernd
með hreinsun skolps og dælingu, auk þess sem útrásir eru lengdar langt í
sjó fram.
4. Stórátak í uppbyggingu nýs miðbæjar með færslu Fjarðargötu, gerð bif-
reiðastæða og fegrunarframkvæmdum í miðbæ neðan Strandgötu. Strand-
gatan fékk andlitslyftingu 1988 og nú þegar lokið er landvinningum í sjó
fram neðan núverandi Fjarðargötu skapast möguleikar til að láta hendur
standa fram úr ermum og byggja nýjan og glæsilegan miðbæ með aðdráttar-
afl - með víðtæka þjónustu sem bæjarbúar og gestir og gangandi munu
sækja. Hótel- og þjónustukjarni mun rísa, sem og aðrar nýbyggingar sem
ráð er fyrir gert í miðbæ. Miðbærinn , sem er stolt hvers bæjarfélags, mun
verða iðandi af lífi og fjöri að afloknum þessum stóru og miklu framkvæmd-
um.
Þetta og svo margt margt annað er framundan í bænum okkar. Hafnar-
tjörður er bær í sókn - bær sem iðar af lífi og tjöri. Bær þar sem fólkið vill
búa.
(