Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1993, Síða 2
2
Alþýðublað Hafnarfjarðar
Spjallað við Jónas Reynisson
að loknu 90. afmælisári SPH
Hinn 22. desember 1992 varð
Sparisjóður Hafnarfjarðar 90 ára.
Þessa afmælis minnist Sparisjóð-
urinn með ýmsum hætti á afmæl-
isárinu. Alþýðublaði Hafnarfjarð-
ar fannst það vel við hæfi að
afmælisári loknu, að fá lítið eitt
að heyra frá Sparisjóðnum, hvað
þar væri helst að gerast og
hvernig til hefði tekist með af-
mælisárið. Blaðið hitti Jónas
Reynisson, annan af tveimur
sparisjóðsstjórum sjóðsins, í
Sparisjóði Hafnarfjarðar klukkan
7.45 að morgni og átti við hann
eftirfarandi viðtal.
Ég er nokkuð snemma á ferðinni
Jónas. Þú ert sennilega ekki vanur
því að vera kominn svona
snemma hingað í Sparisjóðinn ?
Jú, ég er oft mættur fyrr en þetta.
Mér þykir gott að vinna á morgn-
ana. Þá ríkir hér ró og vinnufrið-
ur. Erill dagsins er ekki farinn að
segja til sín og þess vegna gott
tækifæri til að sinna ýmsum verk-
efnum sem krefjast næðis og ein-
beitingar. Það er ekki ósjaldan,
sem ég er kominn hingað fyrir
klukkan sjö á morgnana.
Aður en lengra er haldið vil ég
gjarnan vita eitthvað um œtt þína
og uppruna. Ég veit að þú ert ekki
borinn og barnfæddur Hafnfirðing-
ur. Hvað ertu gamall og hvar
Ijggja rœtur þtnar ?
Ég er 31 árs og ólst upp hjá for-
eldrum mínum í Kópavogi. Móðir
mín er Elín Þórhallsdóttir, en fað-
ir Reynir Jónasson. Reynir er son-
ur Jónasar Sveinssonar læknis og
Sylvíu Siggeirsdóttur, en hún er
systir Kristjáns Siggeirssonar
kaupmanns í Reykjavík, sem
margir kannast við. Kristján heit-
inn Sveinsson læknir, sem mörg-
um er kunnur, er afabróðir minn.
Hvaða skólagöngu áttu að baki ?
Ég lauk skyldunámi mínu í Kópa-
vogi og fór síðan í Verslunarskól-
ann. Þaðan lauk ég stúdentsprófi
vorið 1980. Þá um haustið fór ég í
Háskóla íslands og hóf þar nám í
viðskiptafræði. Þaðan lauk ég svo
prófi vorið 1985.
Hver er starfsferill þinn hjá Spari-
sjóði Hafnarfjarðar ?
Ég hóf störf hjá Sparisjóðnum
1986, þá sem forstöðumaður hag-
deildar. Ég var gerður að aðstoð-
arsparisjóðsstjóra í maí 1987 og í
apríl 1988 tók eg við störfum
sparisjóðsstjóra. Við erum tveir
sparisjóðsstjórarnir hjá Spari-
sjóði Hafnarfjarðar, Þór Gunnars-
son og ég.
Hvernig líkar þér starfið ?
Mér finnst starfið bæði áhuga-
vert og skemmtilegt. Það er fróð-
legt og ánægjulegt að hafa fing-
urna á slagæð atvinnu- og
menningarlífsins sem dafnar hér
í bænum, en Sparisjóðurinn hef-
Jónas Reynisson
ur um áratugi verið hinn öflugi
bakhjarl atvinnulífs, viðskipta og
menningar í Hafnarfirði. Það er
gleðiefni að fylgjast með vexti og
velgengi einstaklinga og fyrir-
tækja í Hafnarfirði, að stuðla að
framþróun og uppbyggingu með
fjármálaráðgjöf og lánaveitingum.
Dökka hliðin er hins vegar sú,
þegar maður verður vitni að fjár-
hagslegu skipbroti fyrirtækja og
einstaklinga. Það er alltaf sárt að
horfa á það, þegar menn missa
eigur sínar.
Nú á Sparisjóðurinn 90 ár að baki ?
Já. Sparisjóður Hafnarfjarðar var
stofnaður 22. desember 1902 í
húsi gamla barnaskólans við Suð-
urgötu. Undanfari hans var Spari-
sjóður Álftaneshrepjjs, en Alfta-
neshreppur skiptist í Bessa-
staðahrepp og Garðahrepp árið
1878. Sex árum síðar 1884 breytt-
ist nafn Sparisjóðs Álftanes-
hrepps í Sparisjóðinn í Hafnar-
firði. Og þegar Sparisjóður
Hafnarfjarðar var stofnaður 1902
tók hann við eignum og skuldum
Sparisjóðsins í Hafnarfirði. Inni-
stæður þessa sparisjóðs 1. des-
ember 1902 voru 15.178,22 kr. og
varasjóðurinn 4.000 kr.
Það liafa orðið miklar breytingar
á starfsemi Sparisjóðsins á þess-
um 90 árum ?
Já, að sjálfsögðu. Sparisjóðurinn
hefur ávallt gætt þess að laga sig
að breyttum tíma hverju sinni
með það að leiðarljósi að verða
viðskiptavinum sínum sem best
að gagni.
Með nýrri löggjöf um sparisjóði
1985 varð mikil breyting á starf-
semi sparisjóðanna. Þá hófust al-
hliða fjármála- og gjaldeyrisvið-
skipti þeirra, þar á meðal í
Sparisjóði Hafnarfjarðar. Það
varð til mikils hagræðis fyrir
Hafnfirðinga.
Hvernig er það með lánafyrir-
greiðslu Sparisjóðsins, hverjir
annast hana ?
Það er eitt af því sem breyst hef-
ur í rás tímans. Áður fyrr tóku
sparistjóðsstjóri eða sparisjóðs-
stjórar við lánabeiðnum, sem
síðan voru lagðar fyrir spari-
sjóðsstjórn til afgreiðslu, stórar
sem smáar. Nýir tímar hafa kall-
að á ný vinnubrögð. Nú bera
sparisjóðsstjórar ábyrgð á útlán-
um gagnvart sparisjóðsstjórn og
annast afgreiðslu þeirra ásamt
útibússtjórum Sparisjóðsins og
þjónustufulltrúum eftir því sem
starfsreglur segja til um.
Hvað viltu segja um lilutverk
Sparisjóðs Hafnarfjarðar ?
Hlutverk Sparisjóðsins er góð og
traust þjónusta við viðskiptavini
sína. Þjónustan verður að taka
mið af þörfum einstaklinganna
hverju sinni. Þær eru mjög mis-
munandi og taka mið af aldri og
aðstæðum.
Fyrstu árin leggjum við áherslu á
gildi þesss að spara með ákveð-
inn tilgang í huga. Kannski eru
kaup á nýju reiðhjóli eða nýjum
skíðum takmarkið, svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Ég nefni það líka, að öll börn
sem skírð eru í Hafnarfirði,
Garðabæ og Bessastaðahreppi
fá bundna sparisjóðsbók með á-
kveðinni fjárhæð í skírnargjöf frá
Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Ég bendi líka á, að Sparisjóður
Hafnarfjarðar býður nemendum
10. bekkjar grunnskóla upp á
námskeið um fjármál einstak-
linga. Þessi námskeið hafa tekist
mjög vel, verið fjölsótt og vin-
sæl, - og væntanlega gagnleg.
Sparisjóðurinn á öflugt samstarf
við íþróttafélögin og aðstoðar
þau í uppbyggingarstarfi þeirra.
Sama á við um mörg önnur fé-
lög í bænum.
Liðveisla er sérstök námsmanna-
þjónusta sem Sparisjóðurinn
býður upp á og þannig mætti
lengi telja.
Hér er ég nú fyrst og fremst að
tala um æskuna og unga fólkið.
En hvað svo, þegar aldursárunum
fer að fjölga meira og fólk fer að
stofna heimili?
Fyrstu búskaparárin einkennast
gjarnan af stórum draumum, litl-
um börnum og glímunni við að
koma þaki yfir höfuðið. Þá hefur
unga fólkið í mörg horn að líta
og að mörgu að hyggja hvað fjár-
málin snertir. Sparisjóðurinn
stendur opinn fyrir þessu fólki
og er reiðubúinn til að veita því
fjármálalega ráðgjöf og skynsam-
lega fyrirgreiðslu.
Sparisjóðurinn veitir t. d. ráðgjöf
varðandi húsnæðiskerfið og að-
stoðar við gerð nákvæmrar
greiðsluáætlunar þar sem tekjur
og útgjöld heimilisins er sett
skipulega fram. Einnig býður
hann upp á greiðsluþjónustu,
sem er fólgin í því, að útgjöld
viðkomandi eru áætluð fyrir
heilt ár og þeim síðan jafnað nið-
ur á 12 mánuði.
Þá veitir Sparisjóðurinn alhliða
ráðgjöf varðandi ávöxtun spari-
fjár og býður upp á sparnaðar-
leiðir í formi innlánsreikninga og
verðbréfa. Hann annast örugga
vörslu fjármuna og veitir ráðgjöf
hvernig heppilegt sé að ávaxta
sparifé með tilliti til skattlagning-
ar. Hann er líka fús til ráðgjafar
um ýmis atriði um lífeyrismál og
margt fleira mætti nefna.
Og svo fœrist aldurinn yfir fólk,
hvað þá ?
Áhyggjulaust ævikvökl er eitt-
hvað sem allir óska sér. Sé heils-
an góð og fjármálin traust geta
eftirlaunaárin verið ljúfustu ævi-
árin. Sumir hafa byggt upp vara-
sjóð, sem í áranna rás hefur vax-
ið og dafnað. Varasjóðurinn
veitir eigendum sínum fjárhags-
legt öryggi og sjálfstæði. Það er
gott til þess að vita, að einn góð-
an veðurdag þarf ekki lengur að
vinna fyrir vöxtunum, en þess í
stað fara vextirnir af varasjóðn-
um að vinna fyrir eiganda sinn.
Og Sparisjóðurinn er viðskipta-
vinum sínum innan handar, ef
minnka þarf við sig húsnæðið.
Þá veitir hann skammtímalán til
þess að brúa bilið milli kaupa á
nýju húsnæði og sölu á því
gamla.
Þá nefni ég samstarf Sparisjóðs-
ins við öldrunarsamtökin Höfn,
sem er að byggja upp húsnæði
fyrir aldraða á Sólvangssvæðinu.
Það er verið að vinna skemmti-
legt og áhugavert verkefni, sem
vonandi verður til að veita
öldruðum Hafnfirðingum öryggi
og gleði.
En hver er grundvallarstefna
Sparisjóðs Hafnarfjarðar ?
Hún er sú að veita viðskipta vin-
um sínum góða og örugga ávöxt-
un sparifjár og alhliða þjónustu á
sviði fjármála, þar sem gæði
þjónustunnar eru höfð að leiðar-
Ijósi.
Sparisjóðurinn vill standa vörð
um fjárhagslegt öryggi heimil-
anna í Hafnarfirði og hlúa að öfl-
ugu atvinnulífi og heilbrigðu
framtaki einstaklinga, fyrirtækja
og Hafnarfjarðarbæjar.
Þá vill Sparisjóðurinn stuðla að
valddreifingu í hafnfirsku fjár-
málalífi, blómlegu félagslífi og
frjóu menningarstarfi hér í Hafn-
arfirði.
En nú skulum við víkja frá Spari-
sjóðnum og örlítið að þér per-
sónulega. Hvað um fjölskylduna?
Eiginkona mín er Hanna Lára
Helgadóttir héraðsdómslögmað-
ur. Við eigum tvö börn, Ingi-
björgu fimm ára og Reyni, sem
verður tveggja ára í mars.
Við keyptum okkur fyrstu íbúð-
ina árið 1987, en til Hafnarfjarðar
fluttum við ári síðar 1988. Nú
búum við á Glitvangi. Þar er fag-
urt umhverfi og gott að eiga
heima.
Áhugamál, önnur en Sparisjóður-
inn, hver eru þau ?
Skíðaiðkunin hefur alltaf átt rík
ítök í mér. Ég byrjaði 12 ára að
renna mér á skíðum og keppti
töluvert á skíðum þegar ég var
14 til 17 ára. Síðan varð tíminn
til skíðaiðkunar af skornum
skammti, en það hefur ekkert
breyst með það að enn hef ég
geysilega gaman af að skreppa á
skíði.
Annað áhugamál vil ég nefna.
Það eru ferðalög. Ég veit fátt
skemmtilegra en að ferðast inn-
an lands og utan, kynnast og
fræðast um landshætti, fólk og
lifnaðarhætti. Við eigum gott
land og fagurt Islendingar, og
fátt þekki ég betra en að ferðast
með fjölskyldunni innan lands og
njóta þeirrar fjölbreytni sem
landið okkar býður upp á.
Og fjölskyldan er vœntanlega orð-
in hafnfirsk í húð og hár ?
Það stefnir allt í þá áttina. Við
kunnum vel við okkur í Hafnar-
firði, umhverfið er fagurt og að-
laðandi, fólkið gott, framsækið
og frjálslegt. Sjálfur hef ég eign-
ast metnað fyrir Hafnarfjörð og
vil sjá framgang og reisn hans
sem mestan. Állt sýnist mér
þetta benda til þess, að Hafnfirð-
ingurinn hafi hreiðrað um sig í
hugskoti mínu.
P-
1«
P
l<
ri
rii
HER GETUR ÞU FENCIÐ VINNINGINN
UPPHÆKKAÐAN
REYKJAVIK OG NAGRENNI:
AÐALUMBOÐ*
Suöurgötu 10, sími 23130
ÚLFARSFELL
Hagamel 67, sími 24960
VERSLUNIN GRETTISGÖTU 26
sími 13665
BÓKABÚÐIN HVERAFOLD 1-3,
Grafarvogi, sími 677757
HAPPAHÚSIÐ
Kringlunni, sími 689780
VERSLUNIN EITT OG ANNAÐ
Hrísateigi 47, sími 30331
VERSLUNIN SNOTRA
Álfheimum 4, sími 35920
BENSÍNSALA HREYFILS
Fellsmúla 24, sími 685632
BÓKABÚÐIN HUGBORG
Grímsbæ, sími 686145
BÓKABÚÐ ÁRB/EJAR
Hraunbæ 102, sími 813355
VERSLUNIN STRAUMNES
Vesturbergi 76, sími 72800
'Umboöið sem var í Sjóbúöinni
er tlutt í Suöurgötu 10
MOSFELLSBÆR:
SÍBS-DEILDIN, REYKJALUNDI
simi 666200
BÓKABÚÐIN ÁSFELL
Háholti 14, sími 666620
KÓPAVOGUR:
BORGARBÚÐIN
Hófgeröi 30, sími 42630
VÍDEÓMARKAÐURINN*
Hamraborg 20A, sími 46777
‘Umboöiö í Sparisjóöi Kópavogs er
tlutt i Vídeómarkaðinn, Hamraborg 20A.
GARDABÆR:
SÍBS-DEILDIN, VÍFILSSTÖÐUM
sími 602800
BÓKABÚÐIN GRÍMA
Garðatorgi 3, sími 656020
HAFNARFJÖRDUR:
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS
Vilborg Sigurjónsdóttir, sími 50045
Tnjggðii þér möguleika
V'SA
Lægsta tniðaverð ístórliappdrætti (óbmjttfrá ífyrra) aðeins kr. 500-
... fyrir lífið sjálft
i
ri