Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1993, Blaðsíða 4
Hafnfirðingum fjölgar langmest stærstu sveitarfélaganna. Samkvæmt nýjustu upplýs- ingum frá Hagstofu íslands hefur íbúum Hafnarfjarðar fjölgað á sl. ári um 482 sem er 3.1% fjölgun og er það langt umfram landsmeðaltal sem er 1,01%. íbúar í Hafnarfirði voru 1. des 1991 15.628 en voru 1. des. 1992 orðnir 16.110. Eins og öllum er kunnugt er Hafnarfjörður nú þriðja stærsta sveitarfélag landsins og sækir nú stöðugt að Kópa- vogi sem er annað stærsta sveitarfélagið með 16.840 íbúa og er það í fyrsta skipti í áratugi sem þessi tvö sveitar- félög telja íbúa á sama þús- undinu og munurinn ekki ver- ið minni síðan 1964. Þessar staðreyndir koma kannski ekki svo mjög á ó- vart, þar sem fyrir hefur legið að undanfarin 5 - 6 ár hefur straumur fólksins legið til Hafnarfjarðar. Þetta er sér- staklega áberandi með ungt fólk, sem haft hefur á orði að hér í bæ sé lífvænlegt að búa. I Hafnarfirði hugsi forráða- menn bæjarfélagsins vel um ungviðið allt frá vöggu og hér sé alltaf mikið að gerast. í Hafnarfirði hugsi menn til framtíðar og hér finnist eng- inn barlómur, þvert á móti mæti bæjaryfirvöld krepp- utalinu með auknum fram- kvæmdum á öllum sviðum. Þetta unga fólk sem viö sjáum á myndinni getur horft björtum augum til framtíðarinnar í Hafnarfiröi í Hafnarfirði sé ekki hægt ann- að en að hrífast með og líta björtum augum til framtíðar. Hér á eftir fylgir tafla um í- búafjölgun nokkurra sam- bærilegra sveitarfélaga og sést þar greinilega hversu hlutur Hafnarfjarðar er þar mestur. Sveitarfélög Hafnarljöröur Reykjavík Kópavogur Akureyri 1991 15,628 99 653 16.635 11 137 1992 16,110 100.865 16.840 14.671 mism 482 1212 2051 234 mm 3,09 1,22 1.21 1 61 Þessar tölur eru Hafnfirðing- um öllum ákaflega upp- örvandi og sýna svart á hvítu að öll uppbygging hér í bæj- arfélaginu er og hefur undan- farin ár verið á réttri leið og fallið fólki vel í geð. Með sama hugarfari og sömu bjartsýni og trú á manninn og unnið hefur verið eftir undir stjórn jafnaðarmanna hér í bæ síðan árið 1986 mun Hafn- firðingum halda áfram að fjölga langt umfram allt landsmeðaltal á komandi árum. Og víst er að Hafnfirð- ingar munu fagna hverjum nýjum íbúa þessa bæjar. Evrópuleikir FH og Wallau Massenheim FH-ingar leika á næstunni tvo stórleiki við þýsku meistar- ana Wallau Massenheim í 8- liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik. Fyrri leikurinn fer fram ytra á sunnudaginn kemur eða 10. janúar en síðari viðureignin verður í Kaplakrika viku síð- ar, 17. janúar. Ekki þarf að efast um styrk- leika mótherjanna að þessu sinni. Wallau Massenheim er geysilega sterkt lið og er nú- verandi Þýskalandsmeistari auk þess sem liðið sigraði í Evrópukeppni bikarhafa á síðustu leiktíð. Liðið trónir nú á toppi „Bundesligunnar" og sigraði á dögunum Tusem Essen, mótherja Vals í Evr- ópukeppni bikarhafa, nokkuð örugglega. Innan raða Wallau Massen- heim eru margir sterkir ein- staklingar sem verða vonandi illa fyrirkallaðir gegn FH- ingum. Nægir þar að nefna Mikael Kállman, finnska leik- manninn sem talinn er sterkasti leikmaðurinn í þýsku deildinni í dag. Vinstri handar leikmanninn Martin Schwalb sem leikið hefur á annað hundrað landsleiki fyr- ir Þýskaland. Stefan Schöne sem einnig á fjölda lands- leikja að baki og markvörðinn Peter Hoffmann sem lék með A-Þjóðverjum þegar þeir voru og hétu. Alþýðublaðið króaði Kristján Arason Jojálfara og leikmann FH-liðsins af og spurði hann út í leikina gegn Wallau Massenheim. "Það er náttúrulega ljóst að þetta verða geysilega erfiðir leikir. Wallau Massenheim er geysilega sterkt lið og er nú í efsta sæti þýsku Bundeslig- unnar. Þeir unnu Evrópubik- arkeppnina í fyrra og stefna nú á stóra bikarinn eða Evr- óputitil meistaraliða. Það er því ljóst að við FH-ingar þurf- um að ná tveimur toppleikj- um ef möguleikarnir á að komast áfram eiga að vera fyrir hendi". „En hvernig undirbúa FH- ingar sig fyrir svona stóran bita?“ „Undirbúningur okkar er nokkuð hefðbundinn þó svo að leikmenn séu farnir að hugsa um þessa leiki fyrir löngu. Við höfum fengið send myndbönd frá Þýska- landi með leikjum Wallau Massenheim og hefur Héðinn Gilsson verið okkar "njósn- ari" þar ef svo má að orði komast. Jólin fóru svo í jjað að liggja yfir myndböndunum og greina leik liðsins. Þýsk félagslið eru virkilega sterk á heimavelli en hafa yf- irleitt verið lakari á útivöllum þannig að það er geysilega mikilvægt fyrir okkur að ná hagstæðum úrslitum í Þýska- landi. Takist það eru mögu- leikarnir vissulega fyrir hendi og með góðum stuðningi á- horfenda er allt hægt". Nokkur meiðsli hafa verið að hrjá FH-liðið að undanförnu og hafa Alexei Trufan og Kristján Arason báðir verið meiddir. Vonandi ganga þeir heilir til leiks á sunnudaginn þegar liðin leika fyrri leik sinn ytra. „En fara FH-ingar áfram, Kristján Arason?“ „Við verðum bara að vona það besta. Við erum að fara að leika gegn einu besta fé- lagsliði heims í dag svo að maður er hæfilega bjartsýnn en ef Kaplakrikinn fyllist og við náum góðum úrslitum úti er vissulega hægt að sigla í 4- liða úrslitin". afnar Útgefandi: Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ingvar Viktorsson Símar: 50499 og 52609 Prentun: Steinmark Fyrstu íbúarnir í Mosahlíó Myndin ertekin í stofunni lijá frumbyggjunum í Mosaldíöinni. Þarna eru þau Fjóla, Linda, Lilja, Jón Þórir og Þórunn. Sumarið 1992 hófst bygging nokkurra húsa á nýja byggingar- svæðinu í Mosahlíð og nú þegar eru fyrstu íbúarnir fluttir jjangað. Hjónin Lilja Matthíasdóttir og Jón Þórir Jónsson fluttu inn í hús sitt 17. október ásamt þremur börnum sínum. Þau sögðu að byggingarframkvæmdir hefðu gengið mjög vel og hefðu j)au flutt inn 3 mánuðum og 3 dögum eftir fyrstu skóflustunguna. Allan sinn búskap hafa þau búið í Hafnarfirði og sögðust kunna mjög vel við sig í nýja hverfinu, þó svo sannarlega væri langt í alla þjónustu. Aðspurð kváðust þau hvorki hafa orðið vör við álfa né huldufólk þarna í fámenninu yfir jól og áramót. Búast má við að fljótlega á þessu ári verði flutt í nokkur hús í nágrenni við þau Lilju og Jón Þóri en þau sögðu að það myndi strax breyta geysilega miklu þegar stræt- isvagn færi að ganga inn Lækjarbergið og yfir i Mosahlíðina en það mun gerast þegar hringtenging er komin í hverfið. Aljrýðublað Hafnarfjarðar óskar þeim Lilju og Jóni Þóri og fjöl- skyldu þeirra til hamingju með nýja húsið að Úthlíð 4 og von- ar að frumbyggjunum muni alltaf iíða vel í Mosahlíðinni. Bæjarmálaráöiö Bæjarmálaráð Alþýðuflokks- ins hér í Hafnarfirði starfar af miklum krafti. Fundir eru að jafnaði haldnir hálfsmánaðar- lega í Alþýðuhúsinu við Strandgötu. Þar eru málin rædd og krufin til mergjar og fundir oft mjög líflegir og fjöl- mennir. I bæjarmálaráðinu eru allir þeir sem sitja í nefndum, ráð- um og stjórnum á vegum AI- þýðuflokksins í Hafnarfirði. Óllum flokksmönnum er vel- komið að sækja fundi ráðsins og taka þátt í umræðum og bæjarmálastarfi flokksins. Fundir eru yfirleitt á mánu- dagskvöldum og hefjast kl. 20.30 og stefnt er að því að þeim ljúki kl. 22.00, þess vegna er mjög áríðandi að menn mæti stundvíslega. Fundir fram til vors verða sem hér segir: 18. janúar Barnavernd, upp- eldis-, og skólamál. 1. febrúar Fjárhagsáætlun 1993 og þriggja ára áætlun. 15. febrúar Brunavarnir, veitumál og áhaldahús. 1. mars Menningarmál: byggðasafn, bókasafn, Hafn- arborg, Straumur og Listahá- tíð. 15. mars Húsnæðismál. 27. mars - laugardagur kl. 10.00 Ferðamál. Á þennan fund mætir Alþýðuflokks- fólk úr Grindavík og farið verður í skoðunarferð um bæinn. 26. apríl Umhverfismál: Nátt- úruvernd, gróðurvernd, fegrun og fólkvangur. 10. maí Almennur fundur - framkvæmdir og verkefni sumarsins. Skrifstofan og blaðið Nú í vetur mun skrifstofa Alþýðuflokksins í AljDýðuhúsinu verða opin fyrst um sinn á laugardagsmorgnum kl. 10.00 - 12.00. Þá verður heitt kaffi á könnunni og eru allir bæjarbúar vel- komnir að líta við og ræða bæjarmálin. Ingvar Viktorsson, bæjarfulltrúi mun verða til viðtals og auk hans munu aðrir bæjarfulltrúar og forráðamenn flokksins í bænum verða þar til skrafs og ráðagerða. Við hvetjum fólk til að líta við og ræða málin í góðu tómi yfir rjúkandi kaffibolla. Næsia lohiblað Alþýðnblaðs 1 Ialnariiaiðar mmi koma íil hnlgina 29 - 31. jan. og er þeíni sem auglý$a Vflja bent á að hafa sambnnd við ulstjóra blaðsius tímanlega. Þá viljnm viö hi-nda á aö fresiur tíl aÖ senda lausnir á krossgát- unni LÍi jolabiaðinu er til 15. jan . en þrenn verölaun verða veitt og verða vinningshafar kynntir í n.esta hlaði.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.