Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Page 7

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Page 7
Alþýðublað Hafnarfjarðar 7 Bráf tii blaðsins Dvöl í Cuxhaven Síðastliðna fimm mánuði hef ég dvalið í vinabæ okk- ar Hafnfirðinga, Cuxhaven. Ég fékk það tækifæri að heimsækja vinabæinn okk- Lára Sif Hrafnkelsdóttir ar, fara í skóla og búa hjá fjölskyldu, sem er jú alveg frábær. Cuxhaven er að sjálfsögðu hafnarbær og búa hér 72 þúsund manns. Cuxhaven hefur upp á margt að bjóða, hér er m.a. falleg strönd, hægt er að fara í siglingar, hér er ágætlega stór versl- unargata, leikhús, fjölleika- hús, góðar sundlaugar, mik- ið úrval af veitingahúsum, krár, danshús, diskótek o.s.frv. Ætlunin var fyrst og fremst að læra þýska tungumálið, en ég hef komist að því að ég hef lært miklu meira en það. Ég er í skóla hér og finnst mér hann mjög góð- ur m.a. mjög góður agi. íþróttaframboðið hér er mjög svo gott. Hér eru einnig mjög góðar líkams- ræktarstöðvar, sem ég stunda auðvitað af fullum krafti. Áður en ég lagði af stað til Cuxhaven hafði ég reyndar heyrt að Þjóðverj- ar væru frekar leiðinlegir, en ég hef komist að annari niðurstöðu, þeir eru þvert á móti mjög þægilegt og vinalegt fólk. Svo er Cuxhaven mjög vel staðsett í Evrópu og ekki er langt að fara ef maður vill heimsækja stærri borgir svo sem Berlín, Hamborg og Bremen. Mitt álit á ferð eða dvöl eins og ég er í er mjög gott. Maður verður sjálfstæðari, maður verður að treysta meir á sjálfan sig en þegar maður er heima hjá foreldr- um sínum. Maður kynnist nýrri menningu, nýju fólki og nýjum siðum og svona gæti ég lengi haldið áfram að telja upp. En sem sagt, hér er mjög gott að vera, liér er gott að vera íslendingur. Bestu kveðjur heim til Hafnarfjarðar. Lára Sif Hrafnkelsdóttir A myndinni sjáum viö frá vinstri, Pál Kristjánsson frá Hagvögnum, Gissur Guðmundsson form. lögreglumanna t Hafnarfirði, Guðmund Sófusson sýslumann, Húnbjörgu Einarsdóttur umsjónarmann með félagsstarfi aldraðra og Valgarð Valgarðsson lögregluþjón sem hefur umsjón með umferðafrœðslunni Umferðafræðsla aldraðra Umferðafræðsla er á okkar tímum ákaflega mikilvægur þáttur í lífi fólks. Hér í Hafn- arfirði hefur lögreglan um margra ára skeið veitt þessa fræðslu í grunnskólum bæjar- ins við góðar undirtektir unga fólksins. Sá lögreglu- þjónn sem nú annast þessa fræðslu hér í bæ er Valgarður Valgarðsson. Við náðum tali af Valgarði og hann lét okkur í té skemmtilegar upplýsing- ar af starfi sínu nú á þessu hausti. „Ég hef nú heimsótt alla grunnskólana og verið með umferðafræðslu í hinum ýmsu bekkjum þeirra. Þá hef ég einnig heimsótt leikskól- ann og þar er nú áhuginn ekki minni. Síðan fór ég í samvinnu við fyrirtækin Hag- vagna h/f og Almennings- vagna bs. til yngstu nemenda grunnskólanna og kynnti þeim hvernig á að umgangast strætisvagna, bæði hvað varðar umgengni í vögnunum og ekki síst þær hættur sem fyrir hendi eru þegar farið er í og úr strætó, því þá liggur mörgum ansi mikið á stund- um.“ „Er um einhverjar fleiri nýj- ungar að ræða hjá ykkur?“ „Já, nú nýlega buðum við elli- lífeyrisþegum til þessarar fræðslu. Það var að frum- kvæði Guðmundar Sófusson- ar, sýslumanns að við í sam- ráði við Húnbjörgu Einarsdóttur umsjónarmanns með félagsstarfi aldraðra hjá Hafnarfjarðarbæ buðum hin- um öldruðu í hringferð um bæinn í einum af hinum nýju vögnum Hagvagna og lauk ferðinni í Kaplakrika þar sem sest var niður og kaffi og meðlæti var á boðstólum. Þar sýndum við m.a. gamla mynd um umferðafræðslu og einnig kom kór Hvaleyrarskóla og söng fyrir gamla fólkið. Ég held að þetta hafi tekist í alla staði hið besta. Einnig verður vistfólki á Hrafnistu og öldruðum úr Garðabæ og Bessastaðahreppi boðin þessi fræðsla. Einnig má geta þess að Hafnarfjarðarbær gef- ur öllum þeim sem þessa fræðslu fá ókeypis endur- skinsmerki, sem allir eru hvattir til að nota.“ Sennilega er Valgarður sá kennari, sem hefur breiðastan hóp nemenda. Hann fæst við að fræða fólk frá 4 ára aldri og uppúr um hvernig best sé að haga sér í umferðinni og vinnur þar þakklátt starf. Að lokum bað Valgarður okk- ur hér á Alþýðublaði Hafnar- fjarðar að koma þakklæti sínu til þeirra aðila sem á einhvern hátt stuðla að bættri umferða- menningu hér í bæ og nefndi hann sérstaklega Hagvagna Almenningsvagna bs. og Hafn- arfjarðarbæ. Við þökkum Val- garði spjallið og óskum hon- um velfarnaðar í mikilvægu starfi. Þau undu sér vel á umferða- frœðslunni í Kaplakrika. Til jóla í hádeginu frá miðvikudegi til föstudags og öll kvöld Verð I kr. 1590,- í hádeginu kr. 1980,- i ákvöldin Hangikjöt - svtnabógur - London lamb - svínasteik - svínasteik með puru - svínasulta - svartfuglsbringur - svínakæfa með beikoni - pottréttur - kjötbollur - eplaflesk - rúllupylsa - salami - kartöflusalat - heitar kartöflur - rauðbeður - súrar gúrkur - 10 tegundir síld - rauðspretta - reyktur lax - rúgbrauð - marinerað flesk - marineraður silungur - fiskréttur - o.fl.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.