Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Síða 11

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Síða 11
Alþýðublað Hafnarfjarðar 11 Tvær glæsilegar Hafnarfjarðarbækur Fólkið í Firðinum Arni Gunnlaugsson Nýlega er komið út þriðja bindið af verki Árna Gunn- laugssonar, hæstaréttarlög- manns og fyrrverandi bæjar- fulltrúa, Fólkið í Firðinum. Þetta er lokabindið og er það helgað minningu föður Árna, Gunnlaugi Stefánssyni kaup- manni, en hinn 17. nóvember s.l. voru liðin 100 ár frá fæð- ingu hans. Þetta lokabindi er 227 blað- síður að stærð, með 220 myndum og 296 æviágripum eldri Hafnfirðinga. Myndir og frásagnir eru miðaðar við það, að viðkomandi hafi náð 75 ára aldri og hafi lengst af átt heima í Hafnarfirði. Að sjálfsögðu er stundum vikið frá þessu, þegar annað hjóna er yngra en 75 ára. I þessum bókum Árna er ó- hemju mikill fróðleikur fólg- inn um Hafnfirðinga, sem fæddir eru um og eftir alda- mótin síðustu og myndirnar bera vott um glöggt auga, fag- mannlegt handbragð og vönduð vinnubrögð. I bindun- um þremur er að finna sam- tals 612 ljósmyndir og æviá- grip 750 einstaklinga. Þetta er sjór af forvitnilegum fróðleik í myndum og máli. Þessar bækur Árna Gunnlaugssonar eiga efalaust eftir að ylja mörgum Hafnfirðingnum um hjartarætur og auka á gleði- Síða úr „Fðlkið í Firðinum og ánægjustundir þeirra. Það er trú mín, að fleirum fari sem mér, þegar þeir fletta þessum bókum, að þeir sjái mörg kunnugleg andlit af fólk- inu hér í Firðinum, segi síðan við sjálfa sig í hálfum hljóð- um: "Já, ég man vel eftir þessu fólki, ég mætti því oft hér á götunum og ýmsum manna- mótum. Hvað hétu þau nú aft- ur, hver voru þau og hvað gerðu þau ?" Og þá er bara að líta í æviá- gripið, tii þess að skýra minn- inguna sem blundar í hug- skotinu. Fólkið í Firðinum er bók, sem ætti að vera til á öllum grón- um heimilum hér í Hafnar- firði. Hún er sígilt heimildarit, sem styttir lesendum sínum stundir hvenær sem þeir gefa sér tíma til að fletta henni. Bókin er þeirrar náttúru, að það má fletta henni og lesa hana aftur og aftur og hún verður því skemmtilegri og hugstæðari, sem það er oftar gert. Þess vegna ætti það að verða Hafnfirðingum metnað- armál að eignast þessa bók og láta hana liggja frammi á heimilum sínum, gestum og gangandi til yndis og ánægju. Hættan sem þessu fylgir fyrir húsráðendur er kannski sú, að gestirnir gleymi sér við að skoða bókina og verði ekki til viðtals við þá. En hitt er þó líklegra, að einmitt verði sitthvað í bók- unum til þess að vekja skemmtilegar umræður um menn og málefni, rifja upp liðna tíma og gömul og góð kynni við hafnfirskt heiðurs- fólk Árni Gunnlaugsson á skilið bæði heiður og þökk fyrir bækurnar Fólkið í Firðinum. Þær verða óbrotgjarn minnis- varði um son sem minnist föður síns með ágætu verki. Mikil vinna, áhugi og atorka liggur að baki bókum sem þessum. Þær verða ekki til af sjálfu sér. Með bókunum Fólkið í Firðinum hefur enn ein perla bæst við í fjársjóði Hafnfirðinga. Hörður Zóphaníasson. Straumar Lárus Karl Ingason Lista- og menningarlíf í Hafn- arfirði hefur verið í góðum og vaxandi gangi á umliðnum árum. Listamenn á margþætt- um vettvangi listarinnar, eldri sem yngri, hafa miðlað svo miklu og góðu, gefið af sjálfum sér. Og bæjarbúar og aðrir hafa notið svo ríkulega og eiga þeim svo margt að þakka sem auðgað hafa tilver- una og lyft mannlífinu yfir gráma hversdagsleikans með listsköpun sinni. Það var því þörf og góð hug- mynd, sem spratt upp hjá á- gætum hafnfirskum ljósmynd- ara hér í bæ, Lárusi Karli Ingasyni, að koma á bók þönkum hafnfirskra lista- manna og kynningu á þeim með myndrænum hætti. Um þetta verkefni tókst gott samstarf milli höfundar, Lárusar Karls, og bæjaryfir- valda. Bókin ber nafnið "Straumar - Ljósbrot í iðu hafnfirskrar listar". Þar eru á blaði fjörutíu og einn lista- maður sem tengist Hafnar- firði með beinum og óbeinum hætti. 1 raun og sanni eru þó listamennirnir fjörutíu og tveir, því með ljósmyndum sínum hefur Lárus Karl sjálf- ur fest sig á spjöld sögunnar sem listamaður linsunnar. Það eru ljósmyndir af lista- mönnunum sem eru kjölfesta þessa bókar. Ágætur texti, sem Sæmundur Stefánsson hafði umsjón með, og einnig er að finna á ensku í bókinni, gefur henni síðan aukið gildi. Ljósmyndir Lárusar Karls eru jafnfjölbreyttar og fyrirmynd- irnar. Lárusi hefur tekist að fanga hugblæ andartaksins og um leið þau meginstef sem hverjum og einum listamann- inum fylgja. Myndirnar segja svo heilmargt um bak- og for- grunn í lífi og list hvers ein- staklings sem birtist á síðum bókarinnar. Það er "kómík" í svip Sigga Sigurjóns leikara, það er bjart bros og hreyfan- leiki yfir Margréti .1. Pálma- dóttur kórstjóra, það er sveifla hjá Guðmundi "trommu" Steingrímssyni, það er yfirvegun og fágun hjá Agli Friðleifssyni, það er dulúð en um leið frumkraftur hjá Sveini Björnssyni og yfir- bragð ákveðni en um leið mýktar og víddar sem ein- kennir ljósmyndina af Eiríki Smith. Svo mætti halda áfram og tíunda á hvern hátt Lárusi Karli hefur tekist að kalla fram á ljósmynd þann innri mann sem fyrirmyndin hefur að geyma. I stuttu máli sagt: Hin besta bók sem bæjarbúar ættu flestir að eignast. Og ekki síð- ur bók til gjafa til vina og kunningja heima og erlendis. Guðmundur Árni Stefánsson Líf og gleði skín úr hverju andliti .Síðastliðinn mánudag litum við inn á æfingu í íþrótta- húsi Víðistaðaskóla, sem ekki væri nú í frásögur fær- andi nema fyrir þá sök að allir sem þátt tóku í æfing- unni voru fatlaðir, við vor- um sem sagt komnir á æf- ingu hjá íþróttafélaginu Fjörður yngsta íþróttafélagi bæjarins. Þarna ríkti svo sannarlega líf og Qör og gleðin skein úr hveiju and- liti og við hliðarlínu vallar- ins sátu foreldrar og fylgd- ust með börnum sínum. Þarna hittuin við Hönnu Kristinsdóttur formann liins unga íþróttafélags og spyij- umst fyrir um aðdraganda að stofnun félagsins. "Þannig var að við Valgerður Hróðmarsdóttir sem báðar eru mæður fatlaðra drengja sem komnir eru á þann aldur að vilja taka þátt í íþróttum fundum hjá okkur þörf til að hjálpa þeim til að geta verið með eins og önnur börn. Við fengum fulltrúa frá íþrótta- sambandi fatlaðra til kynning- arfundar hingað í maí og í framhaldi af því var stofn- fundurinn haldinn 1. júní sl. Á þann fund mættu um 60 manns og síðan liefur allt ver- ið á beinu brautinni. Við feng- um góða aðstoð frá Hafnar- jfarðarbæ og þeir Árni Guðmundsson, æskulýðsfull- trúi og Ingvar Jónsson íþróttafulltrúi bafa veitt okk- ur alla þá aðstoð sem þeim hefur verið möguleg. Fyrir alla þessa aðstoð erum við mjög þakklát." "Hverjir eru svo félagar?" "Það geta allir orðið félagar og við viljum að sjálfsögðu fá sem flesta til að gerast styrkt- arfélagar, en æfingarnar eru opnar fyrir alla fatlaða í Hafn- arfirði sem eru 6 ára og eldri og við erum með þrennskon- ar æfingar þ.e. almennar í- þróttir, boccia og sund og ég vil bara hvetja alla fatlaða til að mæta og þá sérstaklega foreldra fatlaðra barna að mæta með þau á æfingar, þau munu alls ekki sjá eftir því.” "Telur þú að margir fatlaðir mœti ekki lijá ykkur?" "Já, í Hafnarfirði eru um 60 börn undir 16 ára aldri fötluð og vildi ég gjarnan sjá þau sem allra flest hér. Sumir vita sjálfsagt ekki af þessum æf- ingum, en eg er hrædd um að sumir hverjir þori einhverra hluta vegna ekki að mæta, en ég vil bara segja þessu fólki að allir eru velkomnir til okk- ar og ég veit að börnin sem mæta hér eru yfir sig ánægð og bíða alla vikuna eftir næstu æfingu." "Og hvernig gengur svo félags- starfið?" "Bara vel, við höfum staðið í fjáröflunum sem gengið hafa vel, allir hafa tekið okkur vel, en eins og ég sagði áður þá viljum við sjá fleiri á æfingun- um, af því að við vitum hvað þetta gerir börnunum gott. Fullorðnir hafa mjög gaman af Boccia og þar eru þeir eldri í félaginu, sá elsti er reyndar 72 ára." "Þið eruð þá bjartsýn á fram- haldið?" "Já, við erum bjartsýn, við vit- um að við erum að gera góða hluti, það getum við séð á andlitum barnanna sem hér eru. Ég hvet alla bæjarbúa til að taka vel öllum fjáröflunum okkar og að þeir bendi öllum fötluðum á félagið okkar." Við þökkum Hönnu samtalið og höldum áfram að fylgjast með æfingunni hjá þeim Jóni Þór og Sveinbirni sem báðir eru menntaðir sjúkraþjálfar- ar, en þeir segja báðir að í- þróttir séu fötluðu fólki algjör nauðsyn og eru mjög ánægðir með starfsemi Fjarðar. Fyrir skömmu fœrði Kiwanisklúbburinn Hraunborg íþróttafélaginu Firði höfðinglega gjöf, 200 þús. kr. Myndin er tekin við það tœkifæri og þarna má sjá þá Hraunborgarmenn Sœvar Stefánsson, Hatlberg Guð- mundsson og Jón Gest Viggósson. Þá er þarna stjórn Fjarðarins þœr Aðalbjörg Sigþórsdóttir, Hanna G. Kristinsdóttir, María Gunnarsdóttir, Þórhildur Sigurjónsdóttir og Valgerður Hróðmarsdóttir ásamt ungum fé- lögum úr Firði.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.