Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Qupperneq 16

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Qupperneq 16
16 Alþýðublað Hafnarfjarðar Aldarminning Gunnlaugs Stefánssonar fyrrum kaupmanns í Hafnarfirði Atorkan einkenndi störf hans, en glaöværðin og hjartahlýjan andrúmsloftið kringum hann Það er þriðjudagurinn 17. nóvember 1992, þegar þetta er skrifað. Og einmitt í dag leitar minning á hugann, minning um mann sem ég rétt þekkti í sjón, en hafði heyrt mikið tal- að um, mann sem á sínum tíma lifði í daglegri tilveru og tali Hafnfirðinga. Hann hét Gunnlaugur Stefánsson þessi maður og hann hefði fagnað 100 ára afmæli í dag hefði hann lifað. Framkvœmdahugur og framkvœmdadugur. Lífshlaup og saga Gunnlaugs Stefánssonar er athygli verð. Framfarahugur og fram- kvæmdadugur setti mark sitt á manninn og glaðlegt yfir- bragð og góðlátleg kímni fylgdi honum, hvar sem hann fór. Hann og afkomendur hans hafa átt drjúgan hlut í að móta og mynda þann Hafnarfjörð, sem við eigum í dag. Sitthvað sem ég hefi séð og heyrt um Gunnlaug Stef- ánsson róta til í huga mínum og mér finnst það þess virði, að ég verði að setja það á blað. Þess vegna verður þetta skrif til. Ætt og uppruni Gunnlaugur Stefán Stefáns- son fæddist í Hafnarfirði 17. nóvember 1892. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Sól- veig Gunnlaugsdóttir og Stef- án trésmiður Sigurðsson. Sól- veig var fædd í Veghúsum í Reykjavík 1863, en Stefán var Húnvetningur að ætt, fæddur að Saurbæ í Vatnsdal árið 1859. Stefán lærði trésmíði í Hafn- arfirði hjá Jóni Steingríms- syni. Árið 1885 lauk Stefán trésmíðanámi sínu og kvænt- ist Sólveigu. Ungu hjónin fluttu til Njarðvíkur og stofn- uðu þar heimili að Þórukoti. Þar áttu þau heima næstu þrjú árin og þar fæddist elsti sonur þeirra Sigurður Jóel. Árið 1888 flytur svo fjölskyld- an til Hafnarfjarðar og átti þar heima síðan. I Hafnarfirði stækkaði fjölskyldan myndar- lega, því að þar fæddust þeim hjónum sjö börn, Ásgeir, tví- burarnir Gunnlaugur og Ingi- björg, Friðfinnur, Valgerður Þorbjörg, Tryggvi og Ingólfur. Valgerður Þorbjörg andaðist á þriðja aldursári, en hin systkinin komust öll á full- orðinsár og reyndust dug- andi atgervisfólk sem tekið var eftir og eldri Hafnfirðing- ar muna, meta og virða. Vakti athygli Fyrir útsjón- arsemi og dugnað. Árið 1889 reisti Stefán sér og fjölskyldu sinni hús syðst í Úndir hamarstúni. Húsið var almennt nefnt Stef- ánshús, stendur enn og kall- ast nú Suðurgata 25. Þegar Stefán vann að hús- byggingu sinni vakti hann at- hygli þeirra sem til hans sáu fyrir útsjónarsemi, dugnað og harðfylgi. Allt eru þetta eiginleikar sem einkennt hafa afkomendur hans í rík- um mæli. Stefán trésmiður Sigurðsson varð ekki langlífur maður. Hann lést skyndilega árið 1906, aðeins 47 ára að aldri og langt um aldur fram. Það var mikið áfall fyrir fjölskyld- una. Eftir lifði ung ekkja með sjö börn, aðeins tvö höfðu naumlega náð ferm- ingaraldri en hið yngsta var sex ára. Með dugnaði og guðshjálp tókst það. Það blés ekki byrlega fyrir fjölskyldunni í Stefánshúsi árið 1906 og það var þungur róður framundan, þegar fyrir- vinnan var failin frá. En Sól- veig sýndi þá eftirminnilega að hún var enginn veifiskati, sem beygði af þegar á móti blés. Með guðshjálp, hug- rekki og einstæðum dugnaði, svo og með drengilegri að- stoð og samheldni barna sinna, tókst henni að koma öllum hópnum til manndóms og athafna. Og þessi börn þeirra Sólveigar og Stefáns áttu sér djúpar rætur í Hafn- arfirði, ólu þar allan aldur sinn, fórnuðu Hafnarfirði og hafnfirskum málefnum starfskrafta sína og settu svip sinn á mótun og vöxt bæjar- félagsins. Skólaganga úr sögunni Gunnlaugur Stefán Stefáns- son var 14 ára að aldri er fað- ir hans féll frá. Höfðu þá ver- ið uppi ráðagerðir um að setja hann til mennta, því að hann var námsfús og efnileg- ur námsmaður. Allar ráðagerðir um nám urðu nú að engu við fráfall föðurins. Hinn ungi sveinn kaus líka fremur að verða móður sinni og systkinum að liði í hinni ströngu lífsbaráttu sem framundan var. Honum var ekkert að vanbúnaði að hefja störf og afskipti í at- vinnulífinu, þótt ungur væri að árum. Athafnaþráin var honum í brjóst borin, áræði og einbeitni skorti hann ekki og hann átti eftir að marka spor í íslenskri atvinnusögu, sem eftir var tekið. Ungur forstöðumaður Gunnlaugur varð starfsmað- ur við Kaldá, fyrstu gos- drykkjaverksmiðjuna á Is- landi, sama árið og faðir hans dó. Sú verksmiðja er talin fyrsti vísir að iðnaði í Hafnarfirði, stofnuð 1898, en eigandi hennar var Jón Þór- arinsson, sem þá var skóla- stjóri Flensborgarskólans. Gunnlaugur var 14 ára, þegar hann hóf störf hjá Kalciá og þar vann hann næstu þrjú árin eða til 17 ára aldurs. Þrátt fyrir ungan aldur ávann Gunnlaugur sér slíkt traust hjá húsbændum sínum, að tvö síðari árin annaðist hann forstöðu verksmiðjunnar. Segir það eitt allnokkuð um manninn. Bakaranám og brauðgerð Sautján ára gamall, árið 1909, hóf Gunnlaugur nám í bak- araiðn í brauðgerðarhúsi Ein- ars Þorgilssonar. Starfaði hann í brauðgerð Einars í rúman áratug eða til ársins 1920. Seinustu árin hafði hann brauðgerðina á leigu og annaðist sjálfur reksturinn. "Gunnlaugsbúð sér um sína." Þá er það, að Gunnlaugur Stefánsson snýr sér að versl- unarrekstri, þeim þætti at- vinnulífsins sem umfangs- mestur varð í lífi hans. Hann stofnar verslun í Akurgerðis- húsinu, sem stóð við Vestur- götu 10. Þetta var árið 1920. Verslunina nefndi hann Gunn- laugsbúð. Þessa verslun rak hann af miklum dugnaði og myndar- skap allt til ársins 1956, undir kjörorðinu: "Gunnlaugsbúð sér um sína". Kjörorðið þótti snjöll auglýsing og höfundur þess standa furðanlega vel við það. Enda dafnaði versl- unin vel og jókst ár frá ári. Brátt varð húsnæðið í Akur- gerði alltof lítið fyrir verslun Gunnlaugs, en hún var bæði heildsala og smásala. Því var það, að árið 1928 byggði bann sér myndarlegt, tvílyft hús á Austurgötu 25. Með því má segja að Gunnlaugur slægi tvær flugur í einu höggi, því að á efri hæð hússins var íbúð fjölskyldunnar, en versl- unin var á neðri hæðinni. GS kaffið - þjóðkunn vara En verslunarreksturinn var engan veginn nógur til að svala athafnasemi og fram- kvæmdaþreki Gunnlaugs Stef- ánssonar. Jafnframt verslun- arrekstrinum gerðist hann bæði iðnrekandi og útgerðar- maður. Hann hóf rekstur kaffiverk- smiðju að Vatnsstíg 3 í Reykjavík árið 1930. Þar fór fram bæði kaffibrennsla og kaffibætisgerð. Þessa verk- smiðju rak Gunnlaugur fram yfir stríðsárin og var GS kaff- ið og GS kaffibætirinn þjóð- kunn vara á þessum árum og "Ég berst á fáki fráum fram um veg" Gunnlaugur á hesti sínum

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.