Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Side 17

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Side 17
Alþýðublað Hafnarfjarðar 17 / þessu húsi, Akurgerðishúsinu, byrjaði Gunnlaugur verslun sína Gunn- laugsbúð árið 1920. Þar var hún til húsa í ár og var rekin undir kjörorð- inu: "Gunnlaugsbúð sér um sína." fékkst um land allt. Áhugi á útgerö og sjósókn Eitt af fjölmörgum áhugamál- um Gunnlaugs var útgerð og sjósókn. Það vildi svo til árið 1934, að Gunnlaugur eignað- ist jörðina Hóp í Grindavík, en íandið sem er í kringum Grindavíkurhöfn í dag var eign þeirrar jarðar. Gunnlaugur átti jörðina til 1942 og gerði þaðan út fjóra báta, sem báru eftirfarandi heiti: Stefán, Sólveig, Árni og Bjarni riddari GK 1. Hrygghrot hjá Tryggva Gunnarssyni Varðveitt er skemmtileg saga frá því, þegar hann um tví- tugs aldur vildi kaupa vélbát og hefja útgerð ásamt vini sínum og jafnaldra Guðmundi Jónassyni. Þeir félagarnir Gunnlaugur og Guðmundur voru áhugasamir um landsmálin á þessum tíma og fylgdust náið með sjálfstæðisbaráttu þjóðar sinnar í byrjun þessarar ald- ar. Þeir voru miklir aðdáend- ur Tryggva Gunnarssonar al- þingismanns og bankastjóra í Landsbanka íslands, en jafn- framt andstæðingar Hannes- ar Hafstein. Nú þurftu þeir félagar á lána- fyrirgreiðslu að halda til þess að kaupa vélbátinn og hefja útgerð. Og þá lá auðvitað beinast við að leita til Lands- bankans og Tryggva Gunnars- sonar, vinar þeirra og vopna- bróður í stjórnmálabarátt- unni, forustumannsins sem liélt hátt á lofti merki þeirra stjórnmálaskoðana sem þeir aðhylltust og börðust fyrir. Fullir bjartsýni og vonar gengu þeir á fund Tryggva með erindi sitt, en hrygg- brotnir og vonsviknir gengu þeir félagarnir af fundi hans. Hjá Tryggva og Landsbankan- um var ekkert lán að fá. Aö styöja unga menn, sem trúa á landiö sitt Hvað var nú til ráða ? Hannes Hafstein var bankastjóri í ís- landsbanka. Hann vissi þá báða ungu Hafnfirðingana á- kveðna andstæðinga sína á stjórnmálasviðinu. Samt var nú svo komið fyrir þeim félögum Gunnlaugi og Guðmundi, að það hvarflaði að þeim að leita þangað í nauðum sínum. Það lá ein- hvern veginn fyrir þeim að gefast ekki upp við að koma hugmyndum sínum í fram- kvæmd. Tvisvar brást þeim kjarkur við útidyr íslandsbanka, að leita þangað fannst þeim vera hreint feigðarflan. En þegar j^eir komu að útidyrunum í þriðja sinn hertu þeir upp hugann fóru inn og stóðu ó- styrkum fótum frammi fyrir Hannesi Hafstein og báru fram erindi sín sem best þeir gátu. Bankastjórinn og skáldið hlustaði þögull og þungbrýnn á mál ungmennanna. Reis síðan eldsnöggur úr sæti sínu, þó ekki til þess að vísa þeim dyr eins og þeir óttuð- ust. Hannes Hafstein brýndi rödd- ina og sagðist dá dirfsku þeirra og áform. Hann sagði að bankinn ætti að styrkja unga menn með trú á landið og auðvelda þeim leiðir til bjartari framtíðar. Fyrir- greiðslan var þar með tryggð og þeir Gunnlaugur og Hann- es urðu vinir til æviloka. Þannig hófst útgerðarsaga Gunnlaugs Stefánssonar. Starfandi í KFUM Gunnlaugur lét líka að sér kveða á sviði félagsmála. Hann var mikill vinur og að- dáandi séra Friðriks Friðriks- sonar, sem stofnaði KFUM í Hafnarfirði. Gunnlaugur var lengi í stjórn þess ágæta félagsskapar og annaðist með vini sínum Jóel Fr. Ingvarssyni og fleirum rekstur sunnudagaskóla KFUM í Firðinum. Þá var Gunnlaugur einn af stofnendum Félags íslenskra iðnrekenda. Sömuleiðis Kaupmannafélags Hafnarfjarðar og í stjórn þess var hann um árabil. Einnig var hann um skeið í Sjó- og verslunardómi Hafnar- fjarðar. Kvonfang og fjölskylda Hinn 5. nóvember 1921 kvæntist Gunnlaugur Snjó- laugu Guðrúnu Árnadóttur. Snjólaug fæddist 7. mars 1898 á Sauðárkróki, dóttir hjónanna Líneyjar Sigurjóns- dóttur frá Laxamýri í Þingeyj- arsýslu og Árna Björnssonar sóknarprests á Sauðárkróki. Snjólaug fluttist með foreldr- um sínum að Görðum á Álfta- nesi 1913, en þar varð séra Árni prófastur allt til ævi- loka, en heimili þeirra pró- fastshjónanna stóð í Hafnar- firði frá árinu 1928. Við lát manns síns flutti frú Líney til sonar síns Páls Árnasonar verslunarstjóra í Reykjavík. Snjólaug var manni sínum hjartkær, tryggur og traustur lífsförunautur og bjó honum og börnum þeirra aðlaðandi og fagurt heimili með glað- værð og myndarskap á öllum sviðum. Hún starfaði mikið að málefn- um Þjóðkirkjunnar í Hafnar- firði bæði með þátttöku í söngkór kirkjunnar og óeigin- gjörnum störfum með kven- félagi safnaðarins. Snjólaug var mikilhæf kona, ákaflega músíkölsk og hafði fagra söngrödd. Manni sínum reyndist Snjólaug ómetanleg- ur aflgjafi til góðra verka og stoð hans og stytta í blíðu og stríðu. Þau hjónin, Gunnlaugur og Snjólaug, eignuðust þrjú börn, Stefán Sigurð fyrrver- andi bæjarstjóra í Hafnarfirði og síðar alþingismann, Árna hæstaréttarlögmann og Sigur- laugu, sem átti við fötlun að stríða. Atkvœöamiklir afkomendur Frá þeim Snjólaugu og Gunn- laugi er mikill ættbogi kom- inn, mikið mannkosta fólk, sem þegið hefur í arf marga á- gæta hæfileika þeirra hjóna, fólk sem hefur með starfi sínu haft mikil áhrif bæði hér í Hafnarfirði og í þjóðfélaginu í þeild. Ég pefni serh dæmi þá bræður Árna og Stefán. Árni var bæj- arfulltrúi hér í Hafnarfirði í samtals 20 ár, en Stefán var bæjarfulltrúi í 16 ár, þar af bæjarstjóri í Hafnarfirði í 8 ár. Auk þess átti Stefán sæti á Al- þingi í nokkur ár. Synir Stef- áns, sonarsynir þeirra Snjó- laugar og Gunnlaugs, hafa svarið sig í ættina með póli- tískan áhuga og áhrif á stjórn- málasviðinu. Guðmundur Árni Stefánsson hefur verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði í áratug og bæjarstjóri þar frá árinu 1986. Og þrír bræðr- anna, þeir Finnur Torfi, Gunn- laugur og Guðmundur Árni hafa átt sæti á Alþingi íslend- inga. Maður mikilla mannkosta Hér á undan hefur verið stikl- að á stóru í æfi athafna- mannsins Gunnlaugs Stefáns- sonar í Hafnarfirði. Hann var maður mikilla mannkosta og tók víða til hendinni. Atorkan einkenndi störf hans en glað- værðin og hjartahlýjan and- rúmsloftið í kring um hann. Með slíkum mönnum er gott að vera og þeirra er líka bæði hollt og gott að minnast. Gunnlaugur lést hinn 22. á- gúst 1985, fyrir rúmum 7 árum. Aö halda fast á góöum mál- um Snorri Jónsson segir m. a. um Gunnlaug í ágætri minninga- grein sem birtist í Morgun- blaðinu 30. ágúst 1985: Á starfsævi hans var sjaldan logn heldur blésu um hann oft vindar, enda var maður- inn athafnásamur og tilfinn- ingaríkur og fór ekki ætíð troðnár slöðir. Gunnlaugur var gestrisinn maður og stórtækur í gjöfum og aðstoð sinni við þá, sem höllum fæti stóðu í lífsbarátt- unni. Hygg ég að smámuna- semi hafi verið óþekkt í fari 1724hans. Gunnlaugur háði á köflum tví- sýna baráttu við áfengissýk- ina en tókst ætíð að rétta við. Hann hafði ríkan áhuga á framgangi bindindismála, og sem dæmi um það má nefna að hann var upphafsmaður að stofnun bindindismála- sjóðs Sigurgeirs Gíslasonar sem stofnaður var 1948 á átt- ræðisafmæli Sigurgeirs. I bréfi um þetta mál segir hann orðrétt: "Þegar ég hef fengið köllun að leggja lið ein- I Bœndur komu víða að og versluðu við Gunnlaugsbúð, lögðu inn afurð■ ir og tóku út vörur. A þessari mynd má sjá Sigurð Jónsson bónda í Ertu íSelvogi koma með ullarinnlegg á hestum, en það átti að leggja inn í Gunnlaugsbúð. Sigurður þessi var faðir hins kunna Hafnfirðings Einars í Ertu. Myndin er líklega tekin rétt fyrir 1930. Hestalestin er að nálgast Gunnlaugsbúð og náði liún alla leið suður að Læk. Gunnlaug- ur Stefánsson tók myndina. Fjölskylda þeirra Snjólaugar Árnadóttur og Gunnlaugs Stefánssonar, talið frá vinstri: Snjólaug, Sigurlaug Elísabet, Stefán Sigurður, Sigurjóna Jóhannesdóttir (fósturdóttir þeirra Snjólaugar og Gunnlaugs), Arni og Gunnlaugur. Þetta hús reisti Gunnlaugur Stefánsson á Austurgötu 25 árið 1928. Á efri hœðinni bjó hann ásamt fjölskyldu sinni, en Gunnlaugsbúð vará neðri hœðinni. Og þar verslaði Gunnlaugur allt til ársins 1956.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.