Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Qupperneq 18

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Qupperneq 18
18 Alþýðublað Hafnarfjarðar hverri góðri hugsjón, þá er ég svo af guði gerður, að ég vil halda fast á góðu máli." Sjálf- ur fylgdi hann málinu eftir með rausnarlegri gjöf og fékk aðra til liðs við sig. Lýsir þetta vel staðfestu hans, þeg- ar hann beitti sér fyrir fram- gangi mála...." Þar var aldrei svo heimsku- lega spurt aö maöur fengi ekki skynsamlegt svar Börn Stefáns Gunnlaugssonar skrifa minningargrein um Gunnlauga afa sinn látinn og segja þá m. a.um hann og Snjólaugu ömmu sína: Þessi hjón sköpuðu barna- börnum sínum sérstakan heim, sem er þeim enn jafn bjartur í minningunni og hann var í raunveruleikanum á æskuárunum. Þessi heimur afa og ömmu stóð í húsinu nr. 25 við Austurgötu í Hafn- arfirði. Það var stórt hús og fallegt með vel hirtum garði bakatil. þar var maður alltaf velkom- Engu máli skipti með hvaða Náttúra hússins var sú, að inn, á hvaða tíma sem var. erindum maður fór inn í þetta Jólablað Gunnlaugs JOÍLAILJOB frá verzlun Gunnlaugs Stefánssonar, Hafnarfirði Söngur jólasvcinsins: Lúg cr nú á lofti sól Ijós i húsum brcnna, bráðum komii blcssuó jól. boóskiip mönmim kcnnij. Allir glcójiisl cigii j>» aiinttir jalnl scm rikur, eg vil bendn öllimi » eilt sem varla svikur. Kiirlmenn, börn og konurnar komió, sjáið. rcynið; veljið hjá mér vörurnar, vöntun engri levnið. Söngur jólasvcinsins: Lg hcf flcst, scm ykknr rná óskir þráðar fvllii, bcstu kiiupin bemlir á búðíir scrhvcr hvllii. Viirningurinn valinn bcst verðið gott, sem áður citt cr sem i öllu sést. cins og riiuður þráður: biið, »ð lólkið fái mcst fvrir aurii sína: — iil þt'l f;r cg iilt iil gest inn i vcrslun mina. hús. Þeim var öllum vel tek- ið og öll greiðlega leyst. Þarna var manni frjálst að skoða og kanna allt sem hug- urinn girntist, jafnt uppi á háalofti sem niðri í kjallara . Aldrei spurði maður svo heimskulegrar spurningar í þessu húsi að maður fengi ekki við henni elskulegt og skynsamlegt svar. Ef til vill var það furðulegast við þetta hús, að allt sem í því var, stórt og smátt, virt- ist vera manni til reiðu að gjöf, ef maður aðeins lét svo lítið að nefna það. Það tók litlar sálir nokkurn tíma að átta sig á þessu, ekki síst fyrir þá sök, að á neðri hæð hússins var heil mat- vöruverslun sem meðal ann- arra gersema geymdi gler- skáp mikinn fullan af sælgæti. Með tímanum lærð- ist sú lexía, að í húsi þar sem allt stendur til boða, biður maður um það sem þarf, en annað ekki. Miðpunktur hússins var amma, blíða góða amma. Þangað var gott að leita hugg- unar ef með þurfti. Auk þess sem hún bjó til besta ís í heimi. Og þarna var afi. Afi hófst af sjálfum sér og fyr- ir eigið atgervi. Það fór ekki fram hjá neinum að hann var kraftmikill maður. Alltaf var kring um hann líf og athafnir. Það þurfti ekki að kvíða tíð- indaleysi, þegar maður var með afa..." Með þessum orðum barna- barna Gunnlaugs Stefánsson- ar lýk ég þessum skrifum á aldarafmælisdegi hans. Verk- in hans lifa sem fordæmi fyrir unga framkvæmdamenn framtíðarinnar og minning- arnar lýsa. Virðing og þökk fylgir hund- rað ára minningu Gunnlaugs kaupmanns Stefánssonar í Hafnarfirði. Hörður Zóphaníasson. Nýjar verslanir FJÖLSPORT Nú í desember opnaði ungur og innfæddur Hafn- firðingur nýja verslun með íþróttavörur að Lækj- argötu 34c. Það er hinn kunni íþróttamaður Guðmundur Karlsson sem þar er að verki og nefnir hann verslun sína FJÖLSPORT. Guðmundur verslar þarna með mikið úrval af hin- um margviðurkenndu vörum frá NIKE og einnig býður hann upp á vandaðan leikfimifatnað frá VENICE BEACH og síðast en ekki síst hinar viður- kenndu vörur frá MULTIKRAFT. Auk þessara vörutegunda er boðið upp á alls kon- ar aðrar íþróttavörur sem gagnast bæði ungum sem eldri. Verslunin FJÖLSPORT er opin alla daga frá kl. 10.00 - 17.00 og er fólki boðið upp á kaffi þegar það lítur við nú í jólaumferðinni. Við hér á Alþýðublaði Hafnarfjarðar sjáum fulla á- stæðu til að hvetja alla Hafnfirðinga til að líta við hjá Guðmundi Karlssyni í FJÖLSPORT, þar verður enginn fyrir vonbrigðum. GULLSMIÐJAN Nýlega var opnuð hér í Hafnarfirði ákaflega snyrti- leg og hlýleg verslun GULLSMIÐJAN að Lækjar- götu 34c. Verslun þessa rekur Guðrún Bjarnadótt- ir, gullsmíðameistari. Guðrún sem er innfæddur Hafnlirðingur býður þarna til sölu ýmsa muni sem hún hefur sjálf smíðað og eru þeir bæði úr gulli og silfri. Þarna getur að líta mjög fallega gripi í öllum verðflokkum, tilvalda til tækifæris- gjafa, svo ekki sé nú minnst á jólagjafir. Guðrún notar íslenska steininn í armbönd, hringi og hina ýmsu skartgripi og tekst mjög vel til. Guðrún lærði á sínum tíma iðn sína hjá Sigurði SteinjDÓr- syni í Gull og Silfur, en vann síðar lengi í Dem- antahúsinu. Við getum fyllilega mælt með gripunum í GULL- SMIÐJUNNI, Lækjargötu 34c og hvetjum Hafnfirð- inga til að líta þar við og skoða vinnu Guðrúnar Bjarnadóttur. Verslunin er opin kl. 10.00 - 18.00. OSTAHÚSIÐ Fyrir skömmu opnaði mjög skemmtileg sérverslun í miðbæ Hafnarfjarðar, nánar tiltekið að Fjarðargötu 11. Það voru hjónin María Ólafsdóttir og Þórarinn Þór- hallsson sem þarna voru að opna fyrstu ostabúð- ina í Hafnarfirði. Verslunin er mjög snyrtileg og mikið úrval af ostum, sem svo sannarlega kitla bragðlaukana. Ekki leikur nokkur vafi á því að Hafnfirðingar munu kunna að meta þessa nýju þjónustu í miðbæ Hafnarfjarðar. Ostagerð okkar íslendinga hefur tekið stórstígum framförum á undanförnum árum og í dag gefa ís- lenskir ostar hinum bestu erlendu ekkert eftir. Það er því full ástæða til þess að hvetja fólk til að versla ostana sína í OSTAHUSINU að Fjarðargötu 11. Fólki er eindregið bent á að panta ostapinnana og ostabakkana tímalega fyrir áramótin. Simi verslunarinnar er 653940 Verslunin er opin sem hér segir í desember: mánud. - laugard. 10.00 -19.00 sunnudaga 10.00 -16.00 Úrval raftækja og jólaljósa Gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum viðskipti á liðnu ári. Leikföng, básáhöld og gjafavörur í miklu úrvali. Verið velkomin Verð við allra hæfí. Verslunin Busáhöld og leikföng sf. Strandgötu 11 - 13 • Hafnarfirði • Sínti 50919 Hvammur Staðarhvammi • Sími. 650420 Hafnfirðingar verslum í Hafnarfirði Á.Á.BYGGINGAR, FAGTAK, FJARÐARMÓT, HAGVIRKI - KLETTUR, HVALUR, PÉTUR EINARSSON, S.H. VERKTAKAR, SJÁVARFISKUR OG TREFJAR

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.